Vikan - 10.11.1977, Síða 16
rauninni er ég heppin með lífið (
heild. Þegar maður hugsar um allt
það fólk, sem á um sárt aö binda
vegna slysa og annars þess háttar,
skilur maður fyrst, hvað maður á
gott sjálfur.
— Strákarnir heita Þorsteinn,
sem er tíu ára, Magnús níu ára og
svo Stefán litli Þorvaldur, sem er
aðeins á öðru ári. Og svo má ekki
gleymaaðalfjölskyldumeölimnum,
honum Brandi Stephensen, sem er
kötturinn okkar.
LEIKURINN
— Nú lærðir þú að leika Helga.
Hvernig stóð þá á því, að þú fórst að
vinna hjá útvarpinu?
— Ja, það bara fór svona.
Annars get ég sagt þér svona til að
hafa allt með, að ég er lærður
barnakennari líka. En ástæðan til
þess, aðégfórekkialhuga út íleika,
er fyrst og fremst sú, að ég er ekki
nógu góð leikkona. Það er nú svo
einfalt.
— Segðu mér svolítið meira um
þetta.
— Ég útskrifaðist úr leiklistar-
skóla Leikfélags Reykjavíkur sein-
asta árið, sem hann útskrifaði. Ég
og fyrrverandi maðurinn minn,
Guðmundur Magnússon, hófum
nám saman. En ég tafðist, vegna
þess að ég átti eldri strákana tvo á
námstímanum.
— Ég lék svolítið í nokkur ár. Til
dæmis í ,,Fló á skinni," smá-
hlutverk. Og svo lék ég í ,,Sjö
stelpum." Um tíma hljóp ég svo í
skarðið fyrir Valgerði Dan í
„Selurinn hefur mannsaugu."
Öðru man ég ekki eftir í augnablik-
inu. Nema hvað ég hef leikið
töluvert í útvarpinu.
GAMAN AÐ SKÚRA
— Svo þú hefur snúið þér að
börnunum?
— Já, ég elska börn. Það
skemmtilegasta, sem ég geri, er að
skúra gólf og skipta um bleiur. Þaö
er svo gaman að gera eitthvað fyrir
börn. Þau eru svo glöð og þakklát,
aö maður smitast sjálfur og verður
glaður. Ég held, að menn fái ekkert
út úr lífinu, nema þeir geri öðrum
gott, sérstaklega þó börnum.
— Erekkisvolítiðerfittfyrirþigað
sjá fyrir þremur strákum svona
alveg ein?
— Ég er sko ekkert ein. Ég hef
heila stóra fjölskyldu á bak við mig,
og hún hefur reynst mér ákaflega
vel. Hvað ætli mér sé vorkunn. En
ég get vorkennt kornungum
stúlkum, sem eru að eiga börn og
standa svo ef til vill uppi með þau
algerlega einar. Ég aftur á móti á
Ég er sko aldeilis ekki ein.
gott hús, góða fjölskyldu og
yndisleg börn, svo ég þarf ekki að
kvarta.
— En varla eru launin þín há fyrir
ekki meiri vinnu?
— Nei, það er satt. Launin eru
skammarlega lág. Með öllu hef ég
um hundrað þúsund krónur á
mánuði.
VILEKKIVINNA ALLAN DAGINN
MEÐ BÖRNUM
— Það hlýtur nú samt að vera
dálítið þreytandi til lengdar að
hugsa um þrjá stráka?
— Þaðgetursvosemveriö. En ég
hef það mikið að gera, aö ég hef
hreinlega ekki tíma til aö láta mér
leiðast. Ég hef engan tíma til að
hugsa um það, hvernig mér líður,
börnin sitja í fyrirrúmi.
— Hefur þér ekki flogið ( hug að
fara að kenna, úr því að þú ert með
tilskiliö próf og þér þykir svona
gaman að börnum?
— Víst hefur mér dottið það f
höug. Mér finnst ákaflega gaman
að kenna, því ég hef kennt. Þá fær
maðurlíkasvolangtfrlásumrin. Ég
gæti vel þegið frí til þess að vera
með börnunum mtnum og gera það
sem mig langar. En það heldur aftur
af mér, að ég vil ekki vinna með
16 VIKAN 45. TBL.