Vikan - 10.11.1977, Blaðsíða 20
BOÐBERAR ÚTTANS
minningin um rifrildi þeirra Mary
og hún ætlaði að leiðrétta það við
fyrsta tækifæri.
Tækifæri gafst þó ekki fyrr en
eftir matinn. Á meðan Angela fór að
huga að kaffinu fóru Sara og Mary
upp á loft.
Sara byrjaði strax. „Mary, mér
þykir leitt það, sem gerðist i dag.
Ég sé nú að ég var of fljót á mér. Ég
hélt bara vegna þess að þú hefðir
skipt um skoðun, hvað varðaði að
fara til lögreglunnar, að þú hefðir
líka skipt um skoðun um sannleiks-
gildi orða minna.
,,Ég hugsaði alls ekki á þá leið
svo þú skalt hætta að hafa
áhyggjur af þvi. Þetta var bara
kjánalegur misskilningur. Svona,
brostu nú. Komum og njótum
samkvæmisins.
Þær voru búnar að koma sér
þægilega fyrir í setustofunni, þegar
dyrnar inn í borðstofuna opnuðust
skyndilega og mikill skarkali barst
inn i stofuna. Konurnar litu hvor á
aðra sposkar á svip. Mennirnir þrir
skemmtu sér oft við það, sem þeir
kölluðu „gott rifrildi.”
„Það er allt of mikið af þessari
sálarfræðivitleysu þessa dagana.”
Rödd Alecs hækkaði, þegar menn-
irnir fóru í gegnum anddyrið. Það er
fólk eins og þú, David, sem ýtir
undir ofbeldi með þvi að vera of
Iingeðja. Ég er sammála Frank. Ég
stend með gamla uppeldinu.” Hann
þagnaði.
„Við viljum endilega fá að heyra
um, hvað þið hafið verið að rífast,”
sagði Angela brosandi.
„Við vorum að ræða um atburð-
inn í blaðinu í morgun. Þetta í
sambandi við dómarann. Sáuð þið
það?”
Sara hristi höfuðið.
„í gærkvöldi opnaði dómari
nokkur dyrnar hjá sér fyrir ein-
hverjum. Tveir menn þröngvuðu
sér inn og lömdu hann.” David
þagnaði. „Við vorum að rífast um,
hvernig fara skyldi með mennina
eða refsa þeim.”
Sara virtist forviða. , ,Ég skil ekki
hvers vegna þið eruð svona æstir út
af þessu. Svona lagað gerist hvað
eftir annað ekki satt?”
„Kannski að við höfum ekki
útskýrt þetta nógu vel.” Alec
hallaði sér fram alvarlegur í bragði.
„Ástæðan fyrir árásinni var sú að
þessi ákveðni dómari hafði sent
annan manninn i fangelsi og honum
fannst dómurinn ósanngjarn.
„Við höfum einfaldlega ekki efni
á að leyfa einstaklingum að taka
lögin í sinar hendur og taka út sinar
eigin hefndir.... Sara?
Orðið „hefnd” glumdi í höfðinu á
Söru. Herbergið tók að snúast fyrir
augum hennar, fyrst rólega, síðan
hraðar, þar til miskunnsamt myrkr-
ið gleypti hana að lokum eftir
æðisgengna hringiðu.
Brennandi viskíið á vörum henn-
ar, streymandi niður kverkarnar
kom henni til meðvitundar. Hún
sneri sér undan, veiklulega.
„Það er allt í lagi með mig núna.”
„Reyndu ekki að standa upp
strax, elskan. Slappaðu bara af.”
Alec var þungur á svip, en honum
létti.
„Það er allt i lagi með mig núna.”
„Allt í lagi, elskan.” Rödd Alecs
var róandi.
„Samt sem áður,” hélt hann
áfram, „því skyldi líða yfir þig að
ástæðulausu?”
„Já, hvers vegna leið yfir mig?”
hugsaði Sara. Þá mundi hún. Það
var „hefnd”. Og hún lokaði
augunum þegar allar hugmyndimar
komu aftur í huga hennar. „Sara?”
sagði Alec með þungri áherslu.
„Sara, er allt í lagi með þig?”
Hún opnaði augun með áreynslu
og reyndi að setjast upp.
„Ég hélt það hefði liðið yfir þig
aftur.”
Sara kreisti fram bros. „Nei, mér
líður ágætlega núna. Einungis
svolitið þreytt. Það væri skynsam-
legt að fara heim núna.”
Þau fóru. Sara baðst afsökunar
og þau hin lýstu yfir áhyggjum
sinum.
Það ríkti óþægileg þögn þegar
Alec ók niður innkeyrsluna og
beygði út á götuna. Sara renndi
ekki grun í, hvað hann var að
hugsa.
Hún var viss um að hann myndi
ekki sætta sig við að láta við svo
búið standa en hún hikaði við að
hefja samræðurnar. Hún þurfti
tíma til að átta sig á þvi, hvað fólst í
þessum skilningsneista. Núna
þegar hún hafði öðlast skilning,
virtist þetta allt vera svo einfalt.
„Þú ert mjög þögul.”
, ,Ég var að hugsa um þetta með
dómarann.”
„Hvað varstu að hugsa um
hann?” Alec var mildur í röddinni
en hendur hans krepptust um
stýrið.
Hún missti kjarkinn. Hún var
rugluð, ekki út af þessari nýju
hugmynd heldur út af Alec. Hún
vissi ekki lengur, hvers hún gat
vænst af honum.
„Ekkert sérstakt. Meðal annarra
orða, gátan um gatið í runnanum er
leyst.” Og hún sagði honum allt um
eplin hans herra Turners.
„Ég skil.” Hljómurinn í rödd
Alecs boðaði ekki gott. „Ég verð að
ræða við herra Turner.”
„0, nei, Alec. Hugsaðu þér bara,
Nú getum við boðið þessi finnsk-hönnuðu sófa-
sett með leðuráklæði. Framleiðum þau einnig
með áklæðum eftir eigin vali. Eigum margar
tegundir af leðursófasettum.
Litið inn!
Verið velkomin!
ilfBÍKl
76 975 SMIDJUVEGI6 SIMI 44544
20VIKAN 45. TBL.