Vikan - 08.12.1977, Page 19
til fyrirmyndar, og hann getur
mótaö llf þitt til góðs. Þaö er ekki
gott að ráð/egg/a einum og einum,
hversu langt á að hleypa strák /
fyrsta sinn, — en þó get ég sagt
þér, aö þaö var alveg rétt hjá þér
að sofa ekki hjá honum. Það er
a/drei hægt að segja fyrirfram,
hvaö hver persóna vill; sumir vilja,
aö maður tali og sé einlægur, en
aðrir vilja aftur á móti láta mann
hlusta. Þú verður bara að finna út
sjálf, hvernig viðkomandi er, skapi
farinn. Ég vona svo bara, að þetta
fari allt vel hjá þér. Ég held þú sért
fimmtán ára.
ÞAU BÚA VIÐ ÞORPIÐ „BASSI-
LÓNA"
Kæri Póstur!
Mig langar aö biöja þig aö svara
nokkrum spurningum. Hvernig
get ég fengið að vita, hvar fólk á
heima úti á Spáni, þau eiga heima
við þorpið Bassilóna. Hvað
er happalitur, steinn, dagur og
tala þess, sem er fæddur 12. aprtl?
Hvernig eiga saman hrútur og
tvíburi sem vinkonur? En hrútur
(stelpa) og tvlburi (strákur), og
hrútur (stelpa) og dreki (stelpa),
sem vinkonur? Hvert á ég að snúa
mér, ef mig langar að fara í vist út,
til dæmis til Norðurlandanna?
Þakka allt gamalt og gott í Vikunni
og vona, að þú birtir þetta bréf
með svari.
Inga.
Þorpið Bassilóna?? Meinarðu ekki
stórborgina Barcelona? 'Þú getur
bara a/ls ekki fengið að vita, hvar
þetta fólk býr, nema það skrifi þér
og /áti heimilisfang sitt fylgja.
Happatölur þess, sem er fæddur
12. aprít eru 3 og 9, happalitur er
rauöur, happadagur þriðjudagur.
Veit ekki um steininn. Hrútsstelpa
og tvlburastelpa eiga vel saman
sem vinkonur, en það getur orðið
öllu erfiðara hjá hrútsstelpu og
drekastelpu að kynnast vel. Hrúts-
stelpa og tvlburastrákur eiga vel
saman, ef hrútsste/pan varast að
troða sér fram fyrir hann. Það er
stundum auglýst eftir stúlkum /
vist / dagblöðunum, en þú getur
einnig snúið þér til sendiráðs þess
lands, sem þig langar til, og séð,
hvort þeir geti ekki hjálpaö þér
þar.
SPURT UM VIKUNA O. FL.
Hæ, hæ, Póstur!
Ég ætla að leggja fyrir þig
nokkrar spurningar. Sú fyrsta
hljóðar þannig: Hvar get ég fengið
gamlar Vikur? Hvenær kom Vikan
fyrst út? Hvaða litur, steinn, blóm
og tala er fyrir þann, sem er
fæddur 21. 8? i hvaða blaði er
viðtaliö við Brynju Nordquist? Bæ,
bæ. Meö fyrirfram þökk (ef þetta
birtist) Tískudrós.
Gamlar Vikur ættirðu að geta
fengið hjá afgreiðslu blaðsins að
Þverholti 2, sími 36720. Fyrsta
tölublað Vikunnar kom út 17.
nóvember 1938. Happatölur þess,
sem er fæddur 21. 8. eru 4 og 5,
happalitur Ijósgrátt og Ijósrautt,
um blóm og stein veit ég ekki.
Viðtalið við Brynju kom 136. tbl.
1976, sem kom út 3. sept.
Pcfinaviiiir
Hlln Sverrisdóttir, Reykjabraut 19,
Þorlákshöfn og Harpa Hilmars-
dóttir, Setbergi 17, Þor/ákshöfn,
óska eftir að skrifast á við stráka á
aldrinum 12-14 ára. Mynd fylgi
fyrsta bréfi, ef hægt er. Svara
öllum bréfum. Áhugamál margvís-
leg.
Sigríður H. Ingólfsdóttir, Mána-
sundi8, 240 Grindavík, óskar eftir
að komast í bréfasamband við
stelpur og stráka á aldrinum 14-15
ára. Er sjálf 14 ára. Áhugamál eru
fótbolti, hestar, skíði, dans, popp-
tónlist, böll, strákar og margt
fleira.
Lára Eyjólfsdóttir, Kópareykjum,
Reykholtsdal, 311 Borgarfirði,
óskar eftir pennavinum á aldrinum
12-14 ára. Er sjálf 13 ára.
Áhugamál margvísleg. Mynd fylgi
fyrsta bréfi, ef hægt er. Svarar
öllum bréfum.
Guðfinna Fransdóttir, B/ikanesi
26, Arnarnesi, 210 Garðabæ,
óskar eftir pennavinum á aldrinum
10-12 ára. Er sjálf 11 ára. Mynd
fylgi fyrsta bréfi, ef hægt er.
Svarar öllum bréfum.
Amfríður Friðriksdóttir, Hálsi,
Svarfaðardal, Eyjafjarðarsýslu,
óskar eftir að skrifast á við stelpur
og stráka á aldrinum 14-20 ára. Er
sjálf 16 ára.
Lynn Norbeck, 4301 Confederate
Point Road, Apartment 96, Jack-
sonville, Florida, Zipcode 32210,
U.S.A., óskar eftir pennavinum á
íslandi á aldrinum 20-25 ára. Er
sjálf 26 ára. Áhugamál eru m.a.
sund, útivist, tónlist og ferðalög.
HÖRPUÚTGÁFAN
KIRKJUBRAUT 19 - SÍMI 93-1540 -
PÓSTHÓLF 25 - 300 AKRANES - ÍSLAND
LÍFSHÆTTULEG EFTIKFÖR
eftir Gavin Lyall
Vorskt flutningaskip ferst í
árekstri. Glötuð skipsdagbók
orsakar röð æsispennandi og
ógnvekjandi atburða. Þar þurfti
íiugrekki, snarræði, karl-
mennsku og teflt var um að
sigra eða deyja. ,,Besta
skemmtiskáldsaga ársins,”
•sagði Daily Herald. TEFLT Á
^jTÆPASTA VAÐ eftir sama
.höfund seldist upp á svipstundu
síðustu jól.
ÁST I SKUGGA ÖTTANS
eftir ERLING POULSEN
Robert Lund fær ekki staðist
hrífandi, dularfullar konur.
Hann kynnist algleymi og
unaðsstundum ástarinnar, en
jafnframt kveljandi efasemdum.
Hver var myrta stúlkan með
bláa demantinn? Gátan verður
stöðugt dularfyllri. Lesendur'
munu sammála um að þeir hafi
vart lesið aðra bók eins spenn-
og ÁST í SKUGGA ÖTTANS. ®
ELDHEIT AST
Karin Mattson og Eiríkur Leng-
el voru ung og ástfangin.
Eldheit ást brann í hjörtum
þeirra og gerði þau vitstola af
þrá, sem ekki mátti fullnægja.
Karinu dreymdi um frægð og
frama. Á örfleygri stundu var
hún komin í hringiðu eiturlyfja
og vímugjafa. Eirikur var hand-'
tekin, sakaður um morð. Eldheit
ást er ein vinsælasta og mest
selda bókin sem út hefur komið
eftir BODIL FORSBERG.
SKÆRULIÐAR 1 SKJÖLI
MYRKURS
„Hann dró öryggispinnann úr
sprengjukassanum. Brynvörðu
bílarnir þeyttust í loft upp. Þá
heyrði hann í þyrlunni, sem kom
æðandi.” Ögnvekjandi saga um
nútíma skæruhernað. Þessi bók
er svo spennandi að enginn
leggur hana frá sér fyrr en lokið
er lestri síðustu blaðsíðu og
gleymir henni aldrei Höfundur-
inn er sjálfur meistari spennu-
sagna FRANCIS CLIFFORD.
ERUNOPOUtSEN
Ast i skugga
óttans
49. TBL.VIKAN 19