Vikan - 08.12.1977, Blaðsíða 27
Sinn er siður í landi hverju
Margir sazkja
miðnazturmassu
— Það hefur oft vakið aðdáun mína og undrun,
hve íslendingar eru vel heima í málefnum lands
míns og þjóðar, sagði franski sendiherrann í
samtali við Vikuna. Þeir spyrja mig oft út í það,
sem þar er að gerast, og það er ekki erfitt að svara
þeim, því þeir virðast þekkja svo vel til.
Vikan ræddi við frönsku sendi-
herrahjónin, Lucé og Jaques
Pradelles de Latour-Dejeau á
i heimili þeirra á Skálholtsstíg 6,
I skemmtilegu gömlu timburhúsi,
J sem flutt var inn frá Noregi og
byggt árið 1909.
Þau hjónin komu hingað í júni
1973 og kváðust hafa verið mjög
ánægð með að fá loks tækifæri til
að dveljast með norrænni þjóð.
Þau höfðu áður starfað víða um
heim, eins og diplómata er siður, í
Hollandi, Belgíu, Austurríki, Ind-
landi, Marokkó4 Alsír og að sjálf-
sögðu í París.
Sendiherrann brosti, þegar við
forvitnuðumst um, hve margir
Frakkar myndu búsettir hér á
landi. — Þeirvoru nákvæmlega 36
í síðustu viku, sagði hann, en ég
veit það svona upp á hár vegna
þess að framundan eru mjög
þýðingarmiklar kosningar í Frakk-
landi, og við veröum að hafa
nákvæmar tölur yfir Frakka, sem
dveljast fjarri heimalandinu.
Þau hjónin sögðu, að áhugi
Frakka á islandi færi stööugt
vaxandi og frönskum ferðamönn-
um fjölgaði ár frá ári. Einnig kváðu
, þau frönskumælandi Íslendinga
sennilega miklu fleiri en menn
yfirleitt héldu, og talsvert öflug
menningarstarfsemi væri hér á
vegum Alliance Francaise, sem
þau mátu mikils. Einnig nefndu
þau athyglisverðan klúbb kvenna,
sem sendiherrafrúin er þátttakandi
[, en þessar konur koma saman til
að lesa og ræöa franskar bók-
menntir. Og fleira mætti nefna um
samskipti Frakka og íslendinga.
En aðalumræðuefniö átti að
sjálfsögöu að vera jólin. Og þau
hjónin fræða okkur um jólahald í
Frakklandi.
Til skamms tíma má segja, að
haldin hafi verið tvenns konar jól í
Frakklandi, þótt hinir mismunandi
siðir hafi blandast nokkuð hin
síðari ár. Jólahald í Norður-
Frakklandi er í rauninni líkara
norrænu jólahaldi heldur en því
jólahaldi, sem tíðkast sunnan til.
Jólatréð er miklu algengara og
kom miklu fyrr til sögunnar [
Norður-Frakklandi, og jólasveinar
og fleiri jólasiöi' eru einnig með
öðrum hætti. Þar hafa þeir til
dæmis St. Nicolas (heilagan
Nikulás), sem kemur 6. des., en
sunnar er það Pére Noél (jóla-
faðir), sem kemur á sjálfum
jólunum.
í Suöur-Frakklandi eru jólahald
og jólaskreytingar meira tengd
fæðingunni sjálfri, skreytingarnar
eru jatan og jesúbarnið og allt í
kringum það. Jaques minnist
þess, þegar hann var barn, að það
tók fjölskylduna nokkrar vikur fyrir
jól að ganga frá jólaskreytingunni,
sem tók yfir heilt borð í einu
horninu. Þar voru alls konar
byggingar og manna- og dýra-
myndir úr leir, og á bak við hverja
styttu var einhver saga.
Aöfangadagur er almennur
vinnudagur í Frakklandi fram að
hádegi, verslanir eru opnar til kl.
10 um kvöldið og mikið um að
vera. Það er rómversk-kaþólskur
siður að fara til miðnæturmessu,
en margir aðrir sækja einnig þær
messur, sem eru mjög hátíðlegar
og mikil og fögur tónlist.
Börnin setja skóinn sinn á
arinhilluna, og á jóladagsmorgun
eru jólabögglar opnaðir. Síðan er
farið til kirkju, en aðalmáltíðin er
snædd kl. 12-2. Ostrur eru mjög
víða á borðum, en einnig er
algengur forréttur ,,foie gras
truffé," sem er gæsalifrarkæfa
með sérstökum sjaldgæfum
sveppum, sem vaxa við rætur
eikartrjáa. Síðan er það gæs í
sumum héruðum, en kalkúni með
kastaníuhnetufyllingu er líklega
algengari. Og loks er það eftir-
rétturinn Buche de Noél, mjög
sérstakur eftirréttur, sem Frakkar
borða á jólum. Nafnið þýðir í
rauninni eldiviðarbútur jólanna, og
við ætlum að reyna að koma
uppskriftinni til skila, þótt erfitt
kunni að reynast að leika hana
eftir. Gott vín er drukkið með
matnum, og um áramót er
kampavínið ómissandi.
Lucé og Jaques hugsa gott til
jólanna hér á íslandi, hafa enda
reynsluna og sögðu, að þeim
gengi betur að ná hinni sönnu
jólatilfinningu hér heldur en til
dæmis í Bangkok, þar sem kirkju-
gluggarnir voru galopnir vegna
hitans og fuglarnir flugu syngjandi
út og inn.
K.H.
BUCHE DE NOEL:
1 kg mauk úr kastaníuhnetum
250 g súkkulaði
100 g smjör
5 cl mjólk eða vatn
1 /4 I rjómi
60 gr sykurblóm til skreytingar.
Súkkulaöið, sem hefurverið brætt
í mjólkinni eða vatninu við vægan
hita, er blandað smjörinu, þessari
blöndu er síðan hellt yfir hnetu-
maukið og hrært mikið og vel.
Deigið er kælt í ísskáp í nokkra
klukkutíma. Síðan er það mótað í
rúllu og skreytt með þeyttum
rjóma og skrautblómum.
49. TBL. VIKAN27