Vikan


Vikan - 08.12.1977, Page 73

Vikan - 08.12.1977, Page 73
MARSIPAN má hvort heldur sem vill, kaupa úti í búð eða búa til heima, (þannig er það reyndar best). Marsipan erbúið til úr200gr af möndlum, 4-8 dl af flórsykri (eftir því hve fínt marsipanið á að vera, það verður fínna með minna magni af flórsykri, en drýgra með meira) og eggjahvítu. Flysjið möndlurnar, leggiðþærtil þerrisá pappír, jafnvel í nokkra daga. Malið þær tvisvar í kvörn og blandið saman við flórsykurinn. Bætið óþeyttri eggja- hvítunni smátt og smátt saman við, þangað til deigið loðir vel saman. Eltið það, þangað til það er mjúkt og slétt. HJÚPSÚKKULAÐI er oft erfitt að fá, svo það verðum við að búa út sjálf úr dökku eða Ijósu súkkulaði, sem þá er brætt í vatnsbaði. Gætið þess vel, að ekki komist vatn eða gufa í súkkulaðið. Ef súkkulaði er ekki nógu þunnt, má setja þunnar flísar af kókosfeiti eða nokkra dropa af matarolíu út í. Hrærið með gaffli í súkkulaðibráðinni. Hitinn í súkku- laðinu á að vera ca. 33° C. Ef hitinn er of mikill eða lítill, verður súkkulaðið Ijótt og grátt. 1. PORTVÍNSSVESKJUR. Leggið stórar sveskjur í bleyti í portvíni. Takið steinana úr og sjóðið við hægan hita, þartil vínið er næstum gufað upp. Þurrkið sveskjurnar á rist, fyllið þær með lítilli marsipanrúllu. Ef vill, má rúlla þeim upp úr perlusykri. 2. og 3. MUSLIKONFEKT OG MUSLIKÚLUR 250 gr kókósfeiti, 2 msk. kakó, 100 gr miisli (einskonar kornflögur) ca. 6 msk. flórsykur, 100 gr hakkaðar rúsínur, hakkaðir hnetu- kjarnar og sultaður appelsínubörk- ur. Hitið kókósfeitina og hrærið stöðugt í, takið pottinn af hitanum og bætið öllu saman við. Kælið deigið í köldu vatnsbaði og hrærið í allan tímann. Bragðbætið með meira kakói eða sykri, ef þarf. Setjið deigið í lítil pappaform, eða mótið það í kúlur, sem velt er upp úr kakói. Geymið konfektið á köldum stað. 4. MARSIPANKÚLUR MEÐ VALHNETUM. Rúllið kúlur úr marsipandeigi og klemmið þær varlega milli tveggja valhnetukjarna. 5. SÚKKULAÐIKONFEKT MEÐ ROMMI. 1 dl rjómi, 125grsúkkulaði, ca. 3 msk. romm, 50 gr kakó, lítilsháttar flórsykur til bragðbætis. Látið suðuna koma upp á rjómanum, brjótið súkkulaðið út í og bræðið það. Blandið romminu saman við og kælið í vatnsbaði, hrærið rösklega í á meðan. Þegar deigið hefur kólnað til hálfs, er kakóinu blandað saman við og hrært áfram, þangað til deigið er þykkt og slétt. Setjið flórsykur í, ef súkkulaðið er ekki mjög sætt. Sprautið deiginu í lítil pappírsform, eða látið það standa í ísskápnum nokkurntíma, og þá má rúlla deigið íkúlurogdýfaþeimíhjúpsúkkulaði. Munið að geyma konfektið alltaf í kulda. 6. MARSIPANKONFEKT MEÐ SÚKKULAÐI. Mótið lítil stykki úr marsipani og setjið hjúpsúkkulaði ofan á, leggið hnetu, kokkteilávexti eða súkkat ofan á. 7. MARSIPANBRAUÐ. Blandið ýmiskonar ávöxtum saman við marsipan, s.s. hökkuð- um rúsínum, döðlum, hnetum, apríkósum, kokkteilberjumo.s.frv. Mótið brauðið og penslið það með súkkulaðibráð. Skreytið með val- hnetukjörnum. 8. KRANSAKÖKUKONFEKT. (40-46 STK.) 250 gr hreint marsipan (kransa- kökudeig), 60-75 gr sigtaður flórsykur, 1-1 1/2 eggjahvíta. Skraut: Hnetur, möndlur, kokteil- ber og sultaður appelsínubörkur. Blandið flórsykri og eggjahvítu saman viðkransakökudeigið, þartil þaðermátulegamjúkttilaðsprauta því gegnum sprautuhólk. Sprautið litlar kúlur á vel smurða bökunar- plötu (eða á álpappír), eða í konfektpappírsform. Skreytið og bakið í 5-7 mín. I vel heitum ofni. 9. MARSIPANKÚLUR MEÐ MÖNDLUM OG SÚKKULAÐI. Rúllið marsipankúlur og dýfið þeim í hjúpsúkkulaði til hálfs, skreytið með hálfri möndlu. 10. MARSIPAN MEÐ SÚKKU- LAÐIHRINGJUM. Kaupið súkkulaðihringi (eða kattartungur) og leggið saman tvo og tvo utan um marsipankúlu. 11. NÚGGABITAR MFÐ MARSI- PANI OG HNETUM Kaupið mjúkt núgga, skerið það í bita og skreytið með litlum marsipankúlum og hnetum. 12. KRÓKAN-MARSIPAN MEÐ SÚKKULAÐI. Eltið marsipandeigið saman við krókan (brúnaður sykur), mótið kúlur og dýfið þeim til hálfs í bráðið súkkulaði, skreytið með kokkteil- berjum. 13. MARSIPAN-MOKKA-KÚLUR MEÐ HNETUM. Hnoðið kaffidufti saman við marsipandeigið, bragðbætið með kakólíkjör (eða öðrum líkjör) og flórsykri. Mótið kúlur, dýfið í súkkulaði og skreytið með hnetu- kjörnum. 14. HNETUKARAMELLUR (KRÓKAN). 1 /4 kg sykur, 50 gr möndlur eða hnetukjarnar. Setjið sykurinn í þykkbotna pott og hitið, þangaðtil sykurinn er Ijósbrúnn og bráðnaður til fulls. Hrærið í stöðugt. Takið pottinn af hitanum og setjiö hakkaðar möndlurnar í. Smyrjiö smjörpappír vel með smjörlíki eða olíu og hellið sykurbræðingnum á. Skerið í ferkantaða bita með oddhvössum hníf, sem dýft er í heitt vatn. Geymið í lcftþéttum umbúðum. 15. APRIKÓSUKONFEKT. Sjóðið apríkósur í sykurlegi og kælið (ekki sjóða lengi). Leggið saman apríkósu, kattartungu og marsipan. 16. SÚKKULAÐITUNGUR MEÐ MARSIPANI. Leggið marsipankúlu milli tveggja kattartungubita og veltið upp úr hökkuðum möndlum. 17. ANANASBITAR MEÐ SÚKKULAÐIHJÚP. Skerið ananashringi í litla bita og þurrkið á eldhúsrúllu ofan á ofni, eða í bakaraofninum við mjög vægan hita. Þegar bitarnir eru vel þurrir, eru þeir penslaðir með bræddu súkkulaði. 18. MJÚKT NÚGGA MEÐ SÚKKULAÐIHJÚP OG VAL — HNETUM Kaupið mjúkt núgga, skerið í litla bita og hjúpið þá með súkkulaði, skreytið með valhnetukjörnum. 19. RJÓMAKARAMELLUR. 3/4 msk. smjör, 2 dl sykur, 2 dl rjómi, 1 1/4msk. þrúgusykur, 1/2 dl hakkaðir hnetukjarnar, ef vill. Blandið öllu saman í þykkbotna pott (nema hnetunum, ef þær eru notaðar) og sjóðið í ca. 20 mín. Hrærið af og til fyrstu 10 mín., en svostöðugteftirþað. Prófið, hvort deigið er mátulegt, með því að setja pr' jfu í kalt vatn. Ef hægt er að móta mjúka kúlu, er deigið fullbúið. Hellið deiginu upp á smurða plötu. Skerið í ferkantaða bita. 20. MARSIPANRÚLLA. Eltið saman marsipan, sigtað kakó og bragðbætið með líkjör. Fletjið deigið út í ferkantaða köku. Fletjið út jafn stóra köku úr hreinu marsipani, leggið saman bæði lögin og rúllið saman. 21. BRÚNAÐAR MÖNDLUR. 1 1 /2 dl flórsykur, 1 dl möndlur, 1/4 dl vatn. Nuddið möndlurnar vandlega með mjúkum eldhúspappír og setjið þær í þykkbotna pott með flórsykriog vatni. Hrærið stöðugt í. Þegar vatnið hefur gufað upp, myndast í fyrstu gráleitur litur á möndlunum. Nú er mikilvægt að hræra allan tímann, þangað til sykurinn er fullbræddur og hefur hjúpað möndlurnar til fulls. Hellið möndlunum á smurðan pappír, látið þær ekki snertast. Geymið í loftþéttum umbúðum. r Gómsætt iólakonfekt k SJÁ MYNDAOPNUR 8-11 ji Uppskriftir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.