Vikan


Vikan - 08.12.1977, Page 105

Vikan - 08.12.1977, Page 105
MERKILEGASTA FJALL JARÐAR Jökullinn og orðið yrkisefni, og þá yfirleitt sem bakgrunnur sögusviðs- ins, það er eins og þá hafi skort hugrekki til að ganga á hólm við sjálfan hann, og er þeim það naumast láandi. Þó er Jón Trausti, eða réttara sagt Guðmundur Magnússon, þar undantekning. ,,Yfir hraun og hrjóstur — yfir bert og blásið landið gnœfir Snœfells- jökull,” segir hann í upphafi skáldsögu sinnar, „Sýður á keip- um”, og heldur svo áfram, „gnæfir Snæfellsjökull, hið mikla og út- brunna eldfjall, með giginn í miðju fjallinu, fullan af jökli. Þar stendur þessi mikli og fagri fjallajöfur sem risavaxið minnismerki löngu-löngu liðinna stórviðburða í ríki hljóðrar og þunglyndislegrar náttúrunnar. Hið efra er eilífur jökull, og ber mjallhvítar hyrnurnar hátt, en Undan jöklinum kvíslast breiðar hraunelfur alla leið í sjó fram, eins og storknaðir blóðstraumar úr brjósti fjallsins. Umhverfis fjallið eru fangamörk jarðeldanna hvar- vetna — leifar gamalla giga og hver hraunsteypan ofan á annarri. Brimið erjar hvíldarlaust á hraun- brúnunum og brýtur þær upp. Há hraunskör gnæfir meðfram sjónum á löngum kafla, þar sem sjórótið sýður og drynur í kolsvörtum hellum og spýtist upp um gjámar. bar eru Svörtuloft. Annars staðar er eldgamall gigur kominn í sjóinn, gjallhrúgunni er sópað burtu, en hrauntappamir standa eftir eins og risavaxin tannbrot. Það em Lón- úrangar....” Guðmundur Magnússon hafði árum saman horft á Snæfellsjökul baðan sem hann átti heima í ^oykjavík, að því er hann segir í -.Perðasögu af Snæfellsnesi,” og svo sterkur varð seiður Jökulsins, ®ð hans sögn, að loks fékk hann ekki staðið gegn honum og hélt vestur á Snæfellsnes. Reið hringinn 1 kring um Jökul með töskuhest í faumi og hrífst því meir af fegurð hans og óskiljanlegum töfrum, sem hynni þeirra verða nánari: „Snæ- fellsjökull —! Það fara um mig einhver þýð þægindi, hvenær sem oier verður hugsað til hans í allri dýrð sinni.... Hann er ekki aftaka- hár, um 4000 fet, en hann er allra fjalla fegurstur . . . formfegurðin sJálf, fyrirmynd íslenskrar fjalla- fegurðar, eins og uppfyllt ósk.” Þetta segir Guðmundur, og hafði h&nn þó ferðast suður í Alpafjöll og Sviss, svo ekki skorti hann fræg og fbgur fjöll til samanburðar. Jóhannes Sveinsson Kjarval hvaldi um árabil löngum í Einars- ^áni __ keypti jörðina að hálfu, eins og getið er á öðrum stað — og þar „kvað” hann í línum og litum margt það fegursta sem um Jökulinn hefur ort verið. Væri það merkileg saga af samskiptum hans og Jökulsins, sem Kristján refa- skytta í Einarslóni gæti sagt, ef hann væri ekki dauður. Á Kristján, þá greindu og glaðsinna tófuskyttu, er minnst nokkuð í fyrra hefti þessarar bókar. Hann var skyggn og kunnugur vel í híbýlum huldu- fólks, og marga stundina stóð hann eða sat í námunda við meistarann, tottaði pípuna sína og fylgdist með starfi hans. „Sérðu ekki trölls- andlitið þarna?” spurði Kristján. „Jú,” svaraði meistarinn, „það er ljótt, aldeilis lystilega ljótt. Það er ekki að spyrja að augunum þínum.” Og þar með var tröllsandlitinu tryggt líf í meistaraverkinu. Steingrímur Thorsteinsson, skáldið sem fegurst hefur kveðið um íslenska náttúru, er fæddur að Amarstapa og sleit þar bamsskón- um. Eins og að líkum lætur, færði hann Jöklinum þá ljóðfóm, sem bóðum sómdi, honum og þeim hvíta ós, en auk þess bera mörg af ógleymanlegustu kvæðum hans þess ótvíræð merki, að löngum var honum hugstæð heiðríkja sú og kyrrð, sem frá þessum bemskuvini hans stafar. Eða svo hafa sagt mér greinargóðir menn, og efast ég ekki um það. En þrátt fyrir alla sína heims- frægð að fornu og nýju og aðdrátt- arafl sitt á meistara í leyndum fræðum, skáld, listamenn og ferða- langa, er Jökullinn yfir það hafinn að gera sér upp litillæti nokkmm til þóknunar. Hann gnæfir enn sem fyrr „yfir hraun og hrjóstur” í sinni heiðu og stoltu ró, eins og hann vilji magna allt líf í umhverfi sínu helgri orku, mosann i hraungjótunum, tófuna á greninu, sauðkindumar ó beit, jafnvel mannkindurnar, þótt vafalítið reynist móttökuskilyrðin þar oft hvað erfiðust. Eða hann hjúpar tign sína dul grómyrkra skýjabólstra, rétt eins og hann sé orðinn þreyttur á allri lágkúmnni í byggðum og leit sambands við æðri máttarvöld í hljóðri hugleiðslu, að hætti meistaranna. „SIGLDI EIRÍKUR I HAF....” Enginn skyldi ætla sér að sýna honum oflæti eða flysjungshátt í viðskiptum, eða gera sér dælt við hann. Geta þá reynst köld fang- brögð hans. Er ekki vitað til, að hann hafi sleppt tökum á neinum, sem freistuðu hans til slíkra atlota, utan einni konu franskri fyrir fáum ámm. Var hún dregin upp úr þrjátíu og sex metra djúpri spmngu, í fullu fjöri og hafði ekki orðið neitt meint við faðmlögin. Heitfengar til atlota þær frönsku! Þótti allur sá atburður með ólíkind- um, en vaðurinn var mældur og allt eins rígvottfest og hugsast getur. Vildu sumir leggja þann skilning í fyrirbærið, að Jökullinn hefði viljað láta konuna njóta þess, að hún var samlandi Jules Verne — aðrir, að Þórður Halldórsson er ekki við eina fjölina felldur. Vestur á Snæfells- nesi stundar hann skötuveiðar, en þegar hann er í Reykjavík, þá málar hann. Hann hefur haldið nokkrar sýningar á verkum sínum, og þessi mynd var tekin ó sýningu, sem hann hélt í Hafnarfirði um síðustu páska. hann heföi ekki kært sig um frekar kynni af fólki þeirra þjóðar. Jafnvel þótt nútimafólk taki lifmögnunarkenninguna viðlíka hátíðlega og kirkjan kenninguna um, að jörðin væri flöt, getur þó enginn neitað því, að undir Jökli hafi það gerst, sem hiklaust má telja einhvern merkilegasta atburð í veraldarsögunni, því að þaðan tók Eiríkur rauði stefnu á Grænland. „Sigldi Eiríkur í haf undan Snjófellsjökli,” segir í sögu hans. Það varekkieinungis, að Grænland finndist frá Snæfellsnesi, heldur vom fyrstu hvítu mennirnir, sem þar námu land, flestir undan Jökli. í framhaldi af því mó segja, að Ameríka hafi fundist fró Snæfells- nesi í fyrra skiptið. Er það í fyllsta samræmi við skapgerð okkar, Jöklara, að týna öllu þessu aftur i vemleikanum, en geyma það i sög- um. Og vera svo ekki neitt að leyna Kristófer Kólumbus þeim stað- reyndum, sem við vissum traust- astar þar að lútandi, veturinn 1477-8, þegar hann dvaldist á Ingjaldshóli. Okkur munaði nú ekki mikið um að gefa spænskum Ameriku með öllum gögnum og gæðum, fyrst við áttum söguna! Við höfum aldrei verið neinar smásálir — og gátum auk þess gert tilkall til þess landskika hvenær sem við vildum og nenntum. Við höfum að vísu ekki haft nennu í okkur til þess enn, enda alltaf í nógu að snúast... Auk þess vafasamt, hver eign fer að verða í Ameríku hvað úr hverju, ef áfram heldur sem horfir. Ekki verður okkur undir Jökli um, það kennt. Við höfðum vit á að týna henni aftur! ÁUNDANHALDI Snæfellsjökul á að ganga að austanverðu. Að sunnanverðu er hann mjög sprunginn, og sprung- urnar hyldjúpar og breikka margar undir börmunum, svo óvönum jöklagöngumönnum, og reyndar öllum, getur stafað af þeim mikil hætta. Að vísu er jökullinn líka nokkuð sprunginn að norðaustan- verðu, en þar eru sprungurnar fæstar breiðari en það, að vel má stíga yfir þær. Samt sem áður er ekkert vit í því að nokkur leggi einn á jökulinn, og ekki heldur, að menn gangi hann lausir, fari tveir eða fleiri saman. Séu menn tengdir og hafi góða broddstafi ætti hættan af sprungunum að vera hverfandi þeim megin, sem áður getur. Þess ber þó að gæta, að aldrei er of varlega farið, og aldrei ættu menn að hætta sér ó jökulinn, er kunnugir telja, að þoka geti skollið yfir, þegar á líður daginn, eða hvassviðri sé í 49. TBL. VIKAN 105
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.