Vikan - 08.12.1977, Qupperneq 107
MERKILEGASTA FJALL JARÐAR
nánd. Reyndar ætti það að vera
sjálfsögð varúðarregla allra, sem
hyggja á jökulgöngu, að skýra frá
því i byggð, svo tryggt sé, að leit
verði gerð þaðan, ef það fólk skilar
sér ekki ofan aftur undir kvöldið.
Reimt hefur löngum þótt á
Jökulhálsi eftir að skyggja tekur.
Urðu þar og margir úti áður fyrr, á
meðan það tíðkaðist að stytta sér
leiðina á milli Stapa og Ölafsvíkur
með því að fara yfir hálsinn. Þykir
það hratt gengið á þrem klukku-
stundum, en þess veit ég dæmi, að
maður fór leiðina á tveim stundum,
og var hann að sækja meðul til
Ölafsvíkur.
Varðandi Snæfellsjökul sjálfan er
annars allt í óvissu, og ef til vill
verður hann einungis til sem örnefni
eftir svo sem mannsaldur. Nema þá
að Bárður gamli Snæfellsás grípi til
sinna ráða. Um aldamótin taldist
hann 22 ferkm að stærð, en fyrir tiu
árum ekki nema 11 ferkm, og virðist
nú hopa hraðara en nokkru sinni
fyrr. Koma svo að segja árlega ný
klettabelti, gljúfur og klungur í ljós
undan jökulröndinni, svo landslag
þar tekur sífelldum svipbreytingum.
Þetta er kannski ekki svo ýkja
merkilegt; Snæfellsjökull gerir þar
einungis að fara að dæmi allra
annarra jökla á landinu.
Ekki vil ég fullyrða það, að aðrar
breytingar hafi orðið, eða séu að
verða á nesinu, því að lítið hef ég
þar annað en sjónmálin við að
styðjast. Virðist mér sem útfiri sé
nú mun meira þar við nesið, sem ég
þekki best til, til dæmis miðað við
stórstraumsfjöru, en var í minu
ungdæmi og eins — sums staðar að
minnsta kosti — að flæðarmál hafi
færst utar. Sé þetta rétt athugað
hjá mér, skilst mér, að nesið sé að
hækka úr sjó; hvort það stendur
svo í sambandi við hop Jökulsins
læt ég öðrum mér fróðari eftir að
skera úr um, en ekki þykir mér
það ólíklegt. Til sönnunar máli
minu, vil ég geta þess, að Leifur
bóndi í Hólmkoti, en sá bær er fyrir
austan Búðir, hefur veitt athygli
dálítið einkennilegu fyrirbæri. Þar
fyrir neðan virðist fjaran hafa
hækkað til muna, og í mólagi, er
risið hefur þar undan sandi, getur
að líta trjástofna, eða leifar
trjástofna, er varðveist hafa ótrú-
lega vel. Eru sumir þessir stofnar
furðu digrir, eða ámóta að þvermáli
og stólseta.
AUKNAR LÍKUR Á GOSI?
Jökullinn hopar hratt og án
afláts, það er óumdeilanleg stað-
reynd. Hvort nesið er að hækka úr
sjó, getur aftur á móti verið missýn-
ing mín, þótt mér sé nær að halda,
að svo muni ekki vera. En það
skiptir ekki svo miklu máli í
rauninni, heldur fyrst og fremst hitt
— hvort áður nefnd þróun geti
aukið líkurnar á nýju eldgosi vestur
þar. Um það getur að sjálfsögðu
enginn sagt, og þó svo að einhver
þættist geta svarað þeirri spum-
ingu, annað hvort neitandi eða
játandi, mundi hann ég trúa því
Guttormur og Þórður og kisa litla. Allar myndir n Kodakalmanakinu voru
teknar á SnæfeUsnesi. Ljósm. Kodak hf.
^adolin
l K " træ og jern
S^yl-plastma]
i. vb‘*nk
’Vít,,
Síöumúla 15, Sími33070
RUSSIAN LEATHER
GJAFAKASSAR
SEM INNIHALDA:
Eftir rakstur — Cologne —
Deodorant
- RUSSIAN LEATHER -
Fæst allsstaðar á landinu -
ISLEN2K
Qmerióka .
Tunguhálsi 11, Árbæjarhverfi, sími 82700
49. TBL. VIKAN 107