Vikan - 06.04.1978, Qupperneq 9
fjölskyldan hefur gaman af að
sýsla i kringum hestana, sem hafa
opnað þeim nýjan heim í kringum
Reykjavik. Það er Kara’Pálsdóttir,
sem heldur á Grétu litlu.
Tískuverslanir hafa skotið upp kollinum, hver á fcetur
annarri á undanförnum árum. Flestir þekkja nöfn þeirra,
en færri þekkja fólkið, sem að baki þeim standa.
Ein af fyrstu „litlu ” tískuverslununum hérlendis er
verslunin „Fanný'’ sem opnuð var árið 1971. Eigendur
verslunarinnar eru hjónin Fanný Jónmundsdóttir og
Valdimar Jóhannesson, en þau eiga einnig verslunina
Bazar. Flestir skyldu álíta, að það væri nóg að reka tvær
verslanir, en það er ekki álit þeirra hjóna. Auk verslana-
rekstursins hafa þau urnboð fyrir tvær tegundir af
frönskum snyrtivörum, reka saumastofu í kjallaranum
heima hjá sér og eru á hestbaki þess á milli. Þar að auki
eiga þau þrjú börn, Jóhannes, 11 ára, Guðrúnu 5 ára og
Grétu 1 árs en einnig ólu þau upp köttinn Pela, frá því
hann var fjögurra daga gamall.
Vikan heimsóttiþau hjónin á heimili þeirra í
Fossvoginumt
— Hvernig datt ykkur í hug að opna
verslun?
Fanný: — Það leiddi eitt af öðru. Ég
hafði starfað sem sýningarstúlka —
var reynar ein af þeim fyrstu, sem tók
tískusýningarpróf hérlendis, Það var
hjá Tískuþjónustunni undir stjórn
Mariu Ragnars, en upp úr þeim
samtökum varð KARON til, sem
Hanna Frimanns stjórnar nú, og var ég
ein af stofnendum þeirra samtaka. Út
frá þessu fór ég að hanna föt. Það kom
eiginlega mest til af því, að oft þegar
við vorum að sýna, var leitað álits hjá
okkur á þeim fatnaði, sem við sýndum.
Þá sá maður fljótt, hverju var ábóta-
vant og sagði sitt álit. Ég hannaði
aðallega i sambandi við ullarfatnað og
einnig eitthvað úr gæruskinni og
skinni fyrir Sláturfélagið, Snælduna,
Belgjagerðina og fyrirtæki austur á
Selfossi. Þó held ég, að ég hafi aðallega
farið út í það að opna verslun af löngun
14. TBL. VIKAN 9