Vikan - 06.04.1978, Blaðsíða 14
PÓSTIKIW
Meinatæknir
Kceri Póstur!
Ég vona, að Helga hafi
skroppið eitthvað frá, á meðan
þú lest þetta bréf. Mig langar
að spyrja þig, hvað maður er
lengi að lcera að verða
meinatæknir, og í hvaða skðla
fer maður? Ég kaupi alltaf
Vikuna, og bróðir minn selur
hana, og þegar ég les Póstinn,
tek ég greinilega eftir því, að
það eru tveir menn (eða
konur), sem svara bréfunum
fyrir Póstinn. Annar er alltaf
mjög móðgandi og snýr út úr
öllu, það finnst mér mjög
leiðinlegt. Með fyrifram þökk
fyrir birtinguna.
Sísí Sveins
P. S. Hvað er happalitur og
happadagur fyrir þá, sem eru
fæddir 24. 2. ? Hvaða merki á
best við fiskana (bæði stelpur
og stráka) ? Hvað lest þú úr
skriftinni, og hvernig er
stafsetningin, og hvað
heldurðu, að ég sé gömul?
S.S
Bestu kveðjur til bróður þíns,
hann er greinilega góður sölu-
maður! Meinatækni er kennd
við Tækniskóla islands, en sá
skóli gefur ekki blaðamönn-
um upplýsingar í síma, og þvi
miður mátti PÖsturinn ekki vera
að því að gera sérstaka ferð
þangað fyrir þig, til að vita, hve
langt nám þetta er. Pað er því
best fyrir þig að hringja sjálf til
þeirra, síminn er 84933, skrifa
þeim, eða heimsækja þá í eigin
persónu (ég vona, að þú sért
ekki blaðamaður, því þá
geturöu alveg hætt aö hugsa
um þetta nám!) — Það er ekki
rétt hjá þér, að Pósturinn sé
tvær manneskjur...... en hann
er mannlegur og er í misjöfnu
skapi, eins og aðrir! En að
sjálfsögðu á það ekki að bitna á
þeim, sem skrifa honum.
Happalitur þeirra, sem fæddir
eru 24. 2., er grænn, happa-
tölur 3 og 6 og happadagur
er fimmtudagur. Krabbinn á
best við fiskana. Skriftin ber
vott um mjög mikla fljótfærni,
stafsetningin er ágæt og þú ert
15 ára.
Hvað segja
lögin?
Kæri Póstur.
Ekki vildir þú vera svo vænn
að segja mér, hvað 14 ára
krakkar mega vera lengi úti á
kvöldin, samkvæmt lögum, í
1000 manna bæ á Austurlandi?
Og ef þú vildir vera svo vænn
að segja mér allt happa- fyrir
þá, sem fæddir eru 26. 4. (ekki
veitir af). Hvernig finnst þér
skriftin og stafsetningin? Með
þökkum fyrir birtingu á síðasta
bréfi og þessu (ef til kemur).
I. Jóhanna J.
i 44. gr hegningarlaganna
stendur, að í kaupstöðum,
kauptúnum eða öðrum þétt-
býliskjörnum með yfir 400
manns, mega börn frá 12-15
ára aldurs vera út á kvöjdin til
kl. 20.00, en frá 1. maí — 1.
sept. til kl. 22.00, nema þau
séu I fylgd með foreldrum eða
öðrum fullorðnum ábyrgöar-
mönnum. Happatölur þess,
sem er fæddur 26. 4. eru 6 og
8, h^ppalitur gulur, og
happadagur er sunnudagur.
Skriftin er bara ágæt og staf-
setningin einnig.
Ekki nógu
gömul fyrir
pilluna
Elsku Póstur!
Eg bið þig vinsamlegast að
svara þessu bréfi, því ég er í
miklum vandræðum. Þannig er
mál með vexti, að ég er með
strák, og við sofum oft saman,
en ég er ofsalega hrædd við að
verða ólétt. Við notum nefni-
lega engar verjur, en erum
mikið að pæla í því að fá okkur
verjur. Með hverju mælir þú
helst? Má læknir segja
foreldrum frá þvt, að maður
hafi fengið pilluna hjá honum,
ef foreldramir spyrja að því?
Jæja, svo er það þetta sígilda,
hvernig eiga saman nautsstelpa
og bogmaður, og hvað lestu úr
skriftinni?
Ein í vandræðum.
Á ég að fara til pabba að
fyrra bragði?
KœriPóstur!
Þetta er í fyrsta skipti, sem ég skrifa þér. Þess
vegna vona ég, að þú svarir spurningum mínum.
Er leyfilegt, að kennarar leggi hendur á nemendur
sína? Þannig er mál með vexti, að enskukennari
minn leggur hendur á okkur. Margir segja, að
hann sé flogaveikur, en hverju á maður að trúa ?
Jæja, þá er komið að aðalspurningunum: Pabbi og
mamma eru skilin, og við systkinin erum hjá
mömmu. Þau skildu vegna þess að pabbi drakk
svo mikið, en pabbi er húsasmiður, og margir
sækjast eftir honum. Svo fór hann vestur á land og
var þar sumarið sem leið, og þegar hann kom í
bæinn, þá spurði hann ekkert eftir okkur. Svo
þegar ég kom um jólin til hans, þá fór hann að
kvartaum, hvað ég kæmi sjaldan. En ég ætla mér
ekki að fara til hans, nema hann spyrji um mig.
Einnst þér það rangt af mér? Jæja, hvað lestu úr
skrift minni, og hvað heldur þú, að ég sé gömul?
Eg þakka fyrirfram birtinguna.
Sigga.
Kennarar MEGA EKKI leggja hendur á nemendur sína, og ef
það er rétt, að enskukennarinn þinn geri það, ættuð þið
bekkjarsystkinin hiklaust að tala við skólastjórann um þetta
mál. Ég fæ ekki séð, að þótt hann sé flogaveikur, hafi hann
nokkurn rétt til að leggja hendur á ykkur, Ég tel, að þú ættir
að fara til föður þíns að fyrra bragði. Sennilegast líður honum
illa og vill gjarnan umgangast ykkur meira, en hefur kannski
ekki kjark í sér til þess, sérstaklega ekki ef hann drekkur
mikið. Þið ættuð öll að leggjast á eitt og hjálpa honum út úr
drykkjuvandamálinu, það er nokkuð, sem hægt er að sigrast
á, og þá breytist eflaust allt til batnaðar. Ef hann hins vegar
sýnir þér engan áhuga, eftir að þú hefur stigið fyrsta skrefið
— þá er þetta orðið alvarlegt vandamál, sem Pósturinn
treystir sér ekki að ráða fram úr. Skriftin ber vott um ákveðni
og hörku, og þú ert 14 ára.
14 VIKAN 14. TBL.