Vikan - 06.04.1978, Síða 36
Jú, vissulega er líffræðilegur munur
EF þúert
í?
Verður fljótt þreytt á kvöldin.
Sofnar fljótt og fast.
Vaknar hress og úthvíld.
Á best með að vinna á morgnana.
Ert þú A- manneskja eða B-mann-
eskja? Ert þú ein af þeim öfundsverðu
persónum, sem stekkur fram úr rúminu
hress og kát, sem syngur í sturtunni, og
skokkar ef til vill stuttan spöl, áður en
hún heldur til vinnu? Eða ert þú kannski
ein af þeim, sem gæti Dorgað hvað sem
væri fyrir að fá að liggja ,,bara pínulítið
lengur", sem rétt getur skreiðst fram úr
rúminu og er varla vöknuð fyrr en undir
hádegi ?
En í sannleika sagt, þá á nú
morgunhaninn sín takmörk. Hann
byrjar að geispa snemma á kvöldin, og
það getur oft verið erfitt aö fá hann til
að koma í bíó, því hann sofnar alltaf. Þá
er nátthrafninn í essinu sínu, tekur
gjarnan fram saumavélina eða
heimavinnu af skrifstofunni, og hann
bókstaflega elskar aö sitja og rabba
langt fram á nótt.
En skiptir það yfirleitt nokkru máli,
hvort maöur er A- eða B-manneskja?
Hvort það skiptir máli? Hugsiö ykkur
hjón, sem hafa svona ólíkar svefn-
venjur. Ef þau sofa ekki einfaldlega í sitt
hverju svefnherberginu, verða þau að
taka endalaust tillit til hvors annars,
annars getur farið að hrikta í stoöum
hjónabandsins.
er hægt að draga skýr mörk á milli A-
og B-manneskju. A-manneskjan verður
fljótt þreytt á kvöldin, sofnar fljótt og
djúpt og vaknar hress, úthvíld og í góðu
skapi. Þetta fólk vinnur yfirleitt mjög
vel á morgnana. En B-manneskjurnar
eru þreyttar á morgnana, það er erfitt
að fá þær til að fara á fætur, þær ætla
aldrei að geta fest hugann við vinnuna
á morgnana, en þegar líöa tekur á
daginn, þá fara þær að lifna við og
geta haldið áfram aö vinna langt fram
eftir nóttu. Sumir halda því fram, að
það fólk, sem ekki stundar líkamleg
störf, sé oftar B-manneskjur.
Rannsóknir, sem gerðar hafa verið á
heilastarfsemi benda til þess, að
breytingarnar frá svefni yfir í vöku
gangi miklu hægar hjá B-manneskjum.
Þess vegna er alls ekki hægt að segja,
að það sé einungis leti að kenna, þótt
sumum þyki gott að lúra fram eftir.
Eru hvítflibbarnir
B-manneskjur?
Þegar talaö er um svefnvenjur fólks,
Sólarhringsferill á
geimferðaöld.
Hér áður fyrr varð fólk að vinna öll
aökallandi störf á milli sólaruppkomu
og sólseturs.Engum datt þá i hug að
afsaka letihauginn, sem ekki gat
drattast fram úr rúminu klukkan sjö,
með því, að hann væri B-manneskja.
En með aukinni tækiniþróun, rafmagni
o.s.frv. hófust nýir tímar í lífi þeirra, og
skaltu ald
-manrn
þeir hafa fengiö tækifæri til að ráða
sínum vinnutíma sjálfir, hvaö þaö
snerti.
Það voru þó fyrst og fremst hina-
ar svimandi öru framfarir í
samgöngumálum, sem fyrst vöktu fólk
til umhugsunar um mismunandi sólar-
hringsferil manna. Þessari þróun er ef
til vill best að lýsa með tveimur bóka-
titlum: ..Umhverfis jöröina á áttatiu
dögum" (1878) eftir Jules Verne og
,,Umhverfis jörðina á átta dögum"
(1931) eftir Wiley Post. Ef slík bók væri
skrifuö I dag, myndi hún eflaust hljóta
nafnið „Umhverfis jöröina á áttatíu og
átta mínútum,” sem er mesti hraði
geimfars á slíri braut.
Lengi hefur fólk vitað, að allar lifandi
verur hafa sólarhringsferilf sem er
tuttugu og fjórir tímar, samsvarandi
þeim tíma, sem það tekur sólina aö fara
hring I kring um jörðina. Og þar af eyöa
þær einum þriðja af þessum tíma til
þess að sofa. Og þaö var strax á tímum
Aristotelesar, sem menn töluöu um
sólarhringsferil hjá lifandi verum, en þá
tóku menn mið af þvi, hvernig blómin
opnuðust og lokuöust alltaf á vissum
tíma sólarhringsins. En það er ekki
hægt að segja að neinar rannsóknir hafi
veriö geröar á þessu fyrirbæri, fyrr en
síöustu árin.
Það var ameriskur lífefnafræðingur,
sem fyrstur byrjaöi að velta þessu
alvarlega fyrir sér, árið 1950, eftir að
hann hafði flogið frá Ameriku til
Þýskalands og aftur til baka á mjög
skömmum tima. Hann segir aö við
höfum,,innstillta klukku." Þessi klukka
léti ekkert heyra í sér, ef við ferðumst
milli staöa, til dæmis meö hestvagni. En
um leið og við förum að gera eitthvaö
róttækara, til dæmis að fljúga frá austri
til vestur frá Tókíó til Kaupmanna-
hafnar, þá segir tímamismunurinn til sin
um leiö, og sólarhringsferillinn fer allur
úr skorðum. Það getur tekið um þaö bil
viku að jafna sig eftir slíkt, svo að fólk
geti farið að sofa á réttum tímum aftur.
Úthald og
líkamshiti.
Venjulegt fólk fer reyndar sjaldan
slíkar vegalengdir, en innbyggða
klukkan gengur stöðugt. Við vöknum
yfirleitt á sama tíma á morgnana
verðum syfjuö á sama tima á kvöldin.
Það hefur lengi verið vitað, að hægt
væri að skipta fólki i A-manneskjur og
B-manneskjur, en ekki ástæðuna fyrir
því.
Árið 1963 sýndi amerískur vísinda-
maður að nafni Kleitmann fram á
það, að línurit yfir úthald og hitastig
líkamans fylgdust aö. Með tilraunum
hafði hann fundiö út, að þeir, sem
höfðu öll einkenni þess að vera A-
manneskjur, hefðu hærri líkamshitastig
á morgnana en B-manneskjur, og það
var ekki fyrr en líöa tók á daginn, sem
B-manneskjur náðu því hitastigi. En
hann heldur því einnig fram, að þaö sé
hópur af fólki, sem hvorki tilheyrir A né
B, heldur standi einhvers staðar mitt á
milli.
En er mögulegt að breyta sínum eigin
sólarhringsferli? spyrja margir sjálfan
36 VIKAN 14. TBL.