Vikan


Vikan - 02.11.1978, Síða 2

Vikan - 02.11.1978, Síða 2
44. tbl. 40. árg. 2. nóv. 1978 Verð kr. 650 GREINAR OG VIÐTÖL: 4 Drukkum Bonnes Mares á fremstu krá Parísar. 10. grein Jónasar Kristjánssonar um matstaði í París. 6 Myndir í laufi. 1. grein Ævars Kvaran i greinaflokknum Undarleg atvik. 8 Nauðgun, orsök og afieiðing. Rætt við afbrotafræðing, geðlækni og rannsóknarlögreglumann, birtar eigin frásagnir fórnarlamba og blaðað í hæstaréttardómum. 36 Lífsundrið mikla, 3. grein: Sextán marka státinn strákur. 40 Vikan á neytendamarkaði: Ljósin verða aö vera í samræmi við allt annað. SÖGUR: 18 Lagið þeirra. Smásaga eftir Marie Joseph. 22 Fuilkomin flóttaáæltun. Mini- krimmi eftir Willy Breinholst. 25 Litla stúlkan viö endann á trjágöng- unum. 2. hluti framhaldssögu eftir Laird Koenig. 46 Stúlkan Kalli. 6. hluti framhalds- sögu eftir Christina Green. ÝMISLEGT: 2 Mest um fólk. 16 Myndasyrpa: Úr feróalaginu. 20 Vikan kynnir: Að fjárfesta í feldi. 30 Stjömuspá — Hvað cr þetta? 31 John Travolta: Örfá orð og opnu- plakat. 34 Tækni fyrir alla. 35 Draumar. 52 Eldhús Vikunnar og Klúbbur mat- reiðslumanna: Cevapcici. 54 Heilabrot. VIKAN. Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristin Halldórsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Helgi Pétursson. Blaðamenn: Borghildur Anna Jónsdóttir. Eirikur Jónsson. Hrafnhildur Sveinsdóttir, Jóhanna Þráins- dóttir. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Jim Smart. Auglýsingastjóri: lngvar Sveinsson. Ritstjórn i Siðumúla 12. auglýsingar, afgreiðsla og dreifing i Þverholti 11. simi 27022. Pósthólf 533. Verð i lausasölu 650 kr. Áskriftarverð kr. 2400 pr. mánuð, kr. 7200 fyrir 13 tölublöð árs- fjórðungslega, eða kr. 13.530 fyrir 26 blöð hálfsárs- lega. Askriftarverð greiðist fyrirfram, gjalddagar: Nóvember, febrúar, mai, ágúst. Áskrift i Reykjavik og Kópavogi greiðist mánaðarlega. „HANN ER HREINT OG BEINT TÖFRANDI" Okkur hér á vikunni finnst við alltaf eiga svolítið í honum John Travolta. Það hafði naum- ast sést stafkrókur uni piltinn í íslensku blaði, þegar við birtum grein um hann í apríl síðast- liðnum, en nú er hann á allra vörum. Það var Saturday Night Fever, sem setti Travolta-æðið í gang, myndin, sem byjað var að sýna í Háskólabíói í október, og þetta æði hefur sennilega náð hámarki með Grease, sem væntanleg er sem jólamynd. Þykir nú enginn maður með mönnum, á hérlendum diskó- tekum, nema hann geti sveiflað sér með sem líkustum tilburðum og við eru hafðir í „Saturday Night Fever, og fara menn jafn- vel i dansskóla til að ná sem bestum árangri. Við skruppum í Háskólabíó frumsýningarkvöldið 7. október, tókum nokkra áhorfendur tali og spurðum þá álits á myndinni. En í næsta blaði gerum við enn betur og komum með opnu- plakat í litum af kempunni Travolta. John Travolta og Karen Gorney i einu af sinum frábæru dansatriöum i myndinni Saturday Night Fever. Ljósmyndir: Ragnar Th. Sigurdsson fTIEJT UmFÓLK HS Mikil mannþröng myndaðist fyrir utan Háskólabíó, daginn sem Saturday Night Fever var frumsýnd, og varð að takmarka aögang að miðasölunni til þess að ekki hlytust slys af. J

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.