Vikan - 02.11.1978, Page 4
íslensku ferðafólki í París vísað til veitingahúsavegar
Drukkum Bonnes Mares
á fremstu krá Parísar
Við vorum heppin að hafa pantað, þvi
að matstofan var full af frönskum kaup-
sýslumönnum og frönsku sveitafólki i
kaupstaðarferð. Það borgar sig raunar
alltaf að panta I síma, ef maður ætlar að
heimsækja verulega góð veitingahús í
París.
Heimilislegt var inni í litlu
bakherberginu. Smámyndir héngu uppi
Næst á eftir Le Bistrot de Paris, sem
lýst var I siðasta tölublaði Vikunnar,
fengu sérfræðingar blaðsins bestan mat
á kránni „Allard”. Þar við bætist, að
okkur fannst umhverfi og andrúmsloft
hvergi skemmtilegra en á Allard. Þess
vegna eru þessi tvö veitingahús jafnir
óskastaðir okkar i París.
Allard er viðurkennd sem fremsta krá
Parísar. Hún hefur verið fræg siðan
1930. Nú er hún í eigu sonar stofnand-
ans og er vinsælli en nokkru sinni fyrr.
André Allard stjórnar I veitingasalnum,
og kona hans, Fernande Allard, sér um
eldhúsið. Hún er talinn einn besti
kvenkokkur Parísar.
UMVAFIN LOFISÉR-
FRÆÐINGA
Matstofan er umvafin lofi sér-
fræðinga. Hún varð í sjötta sæti í
atkvæðagreiðslu Kléber-akademíunnar
um veitingahús ársins 1978. Árið 1967
var hún kjörin veitingahús ársins. í
Kléber-bókinni fær hún einkunnina:
Pottur með kórónu, sem þýðir: Frábær
matur i einl'öldu umhverfi. Michelin
gefur henni eina stjörnu. Og Gault-
Millau gefa henni 15 stig af 20 möguleg-
um eða einkunnina: Tvær kokkahúfur,
sem er hin næsthæsta mögulega.
Kráin er í gömlu hornhúsi frá dögum
Mariu af Medici og Richelieu kardínála
frá fyrri hluta sautjándu aldar. Hún er
aðeins fimm mínútna gang frá Saint-
Michel brúnni. Gengið er frá Saint-
Michel torgi inn aðliggjandi Saint-André
des Arts torg og þaðan inn Rue Saint-
André-des-Arts. Er kráin fljótlega á
vinstri hönd.
SAG Á GÓLFUM, MARM-
ARIÁ BORÐUM
Innréttingar eru fornlegar, sag á
gólfum og marmaraplötur á borðum.
Fremst er zink-bar, sem Frommer segir,
að Alain Delon og frú Pompidou venji
komur sínar á, að visu ekki saman.
Hvorugt var viðstatt, þegar við komum
og fengum sæti i bakherberginu, sem er
friðsælla.
I
Králn ber þess merki, að IMu hefur
verið breytt I nœrri hálfa öld. Hún er I
húsi frá dögum Mariu af Medici og
Richelieu kardfnála Hvítklædda
mamman á myndinni er hins vegar
klœdd eftir sumartisku ársins 1978.
á fóðruðum veggjunum. Þjónarnir voru
á miðjum aldri, glaðlegir og broshýrir,
með skósíðar svuntur og einstaklega
elskulegir við gesti. Þetta var greinilega
staður, þar sem heppilegt var að láta
þjóninn ráða matarvali. Við fórum þá
leiðina og fengum frábæran mat.
FYRSTA FLOKKS 37 EKRU
VÍNGARÐUR
l annan forréttinn fengum við
persiljukryddaða svínakjötskæfu
(jambon persillé), mjög góða. í hinn
fengum við tólf vínakrasnigla (excargots
de bourgogne), aldeilis frábæra.
I annan aðalréttinn fengum við
þunnar kálfakjötsneiðar, steiktar á teini
(veau a la berrichonne), mjög góðar. í
hinn fengurn við lambalæri með gulum
baunum (gigot d’agneau flageolet), frá-
bært á bragðið-.
I annan eftirréttinn fengum við hind-
ber og litil, skógartínd jarðarber
(frambois et fraises de bois), stórkostlega
góð. í hinn fengum við grænsítrónu-
ísfroðu (sorbet au cotron vert), mjög
góða. Þarna voru á boðstólum vín á
ýmiss konar verði. Við ákváðum að gera
4VUun44<tfel