Vikan - 02.11.1978, Blaðsíða 15
aðra þætti rannsóknarinnar, það fer eftir
þeim gögnum, sem fyrir liggja og
aðstæðum hverju sinni. Geðlæknirinn úr-
skurðar, hvort maðurinn sé sakhæfur. Sé
maðurinn ekki sakhæfur, er ekki höfðað
opinbert mál á hendur honum, heldur fær
hann þá meðhöndlun, er læknirinn
ákveður. Hann er þá ekki lengur á vegum
dómsyfirvalda.
Tvær lögreglukonur starfa hjá rann-
sóknarlögreglu rikisins, báðar í þeirri deild,
er fjalla um nauðgunarafbrot. Það er engin
launung, að þær hafa fengið smjörþefinn af
þessum málum. Stúlkur, sem kæra
nauðgun, verða að segja sögu sína án þess
að draga undan minnsta smáatriði. Það er
áreiðanlega auðveldara og minna auð-
mýkjandi fyrir þær að lýsa þessu fyrir
annarri kynsystur heldur en karlmanni.
Við reynum að gera þeim þetta eins létt-
bært og unnt er í þessum kringumstæðum.
194. grein hegningarlaganna hljóðar á
þessa leið. Ef kvenmanni er þröngvað til
holdlegs samræðis með ofbeldi eða frelsis-
sviptingu, eða með því að vekja henni ótta
um líf, heilbrigði eða velferð hennar sjálfrar
eða náinna vandamanna, þá varðar það
fangelsi ekki skemur en eitt ár, og allt að 16
árum eða ævilangt. Sömu refsingu skal sá
sæta, sem kemst yfir kvenmann með þvi að
svipta hann sjálfræði sínu.
Bræóraborgarstíg 16 Sími 12923-19156
Þetta eru gömul lög, samin löngu áður
en jafnréttismálin komu í brennipunktinn
og þess vegna alls ekki gert ráð fyrir, að
karlmaður geti kært nauðgun. Við höfum
heldur aldrei fengið slíkt mál í hendur, en
að sjálfsögðu fengi mál hans sömu meðferð
frá okkar hendi og ef um stúlku væri að
ræða. T.
DEA TRIERM0RCH
VETRARBORN
Þýðing: Nína BjörkÁrnadóttir
Þetta er skáldsaga um 18 konur og baksvið þeirra í þjóðfélaginu
og innan veggja fjölskyldunnar. Þær eru allar staddar á fæðingar-
deild. Aðrar persónur eru eiginmenn, börn og venslafólk, ræst-
ingarkonur, sjúkraliðar, hjúkrunarfólk, Ijósmæður, læknar, pró-
fessorar — og öll nýfæddu börnin. í sögunni speglast hið sér-
kennilega andrúmsloft sem þar ríkir, blandað kvíða og tilhlökkun,
þar sem konurnar deila sorg og gleði. Sumar hafa fætt, aðrar
bíóa þess að fæða. Milli kvennanna skapast gagnkvæmur skiln-
ingur og samúð og órjúfandi tengsl, þó svo að Jeiðir þeirra eigi
eftir aó skilja.
Myndirnar gerði höfundurinn sem einnig er grafíklistamaður.
Bókin hefur hlotið óhemjugóóar viðtökur í Danmörku og selst í
nálega 100 þúsund eintökum. Hún var sæmd dönsku bókmennta-
verólaununum „Gullnu lárberin“ árið 1977. Sagan hefur verið
kvikmynduð.
Ógleymanlegur lestur bæði körlum og konum. Höfundurinn lýkur
upp veröld sem aöeins konur hafa hingað til átt aðgang að.
44. tbl. Vikan 15