Vikan


Vikan - 02.11.1978, Qupperneq 51

Vikan - 02.11.1978, Qupperneq 51
Hann tók um hönd hennar. Kalli ró- aðist, þegar hann snart hana. Þetta var Tommi. sem stóð við hlið hennar og sagði henni, að þeir Róbert hefður s.æst á mál sin. Tommi — maðurinn hennar. Hún færði sig nær honum og skildi ekkert í því, hvers vegna hún hafði kviðið þessari stundu. Hún brosti og lauk upp vörunum til að segja eitthvað vingjarnlegt I sáttaskyni, en Tommi varð fljótari til. „Heyrðu, Kalli.” Hann hélt áfram urn hönd hennar. „Ég veit, hvað þér finnst um kvöldið i kvöld. Við höfum minnst á þetta einu sinni eða tvisvar og ég veit, að þú vilt aðeins hafa þetta sýndarhjóna- band. Hvers vegna reynum við ekki að hreinsa andrúmsloftið með þvi að fara út að ganga? Eða fara i sund. Ég hef ekki farið i sund frá þvi að ég kom frá Astralíu. Manstu eftir miðnætursundferðunum okkar i gamla daga? Ætli gamli pollur- inn sé nægilega fullur af vatni núna?” Þau horfðust i augu. „Hvernig list þér á það, Kalli?" „Já! Ó, Já!" Hún gein svo sakleysis- lega við agninu. Allt til að rjúfa innri þensluna, sem sífellt jókst eftir þvi, sem leið á kvöldið. „Gott, farðu upp og náðu I sundbol.” Augu Tomma glömpuðu, þegar hann ýtti henni aðstiganum. Stundarfjórðungi siðar óku þau út af hlaðinu og í áttina að ánni. DaRT-FLJÓT niðaði og söng, þegar þau komu að djúpum, fjarlægum hylnum, sem var umkringdur vatnsbörð- um klettum, sem voru silfurgráir i tunglsljósinu. Voru virkilega rúm sautján ár frá þvi, að þau höfðu baðað sig þarna siðast? Buslað og hrópað i svölu vatninu, legið i sólbaði másandi af hita. þrætandi og i striðsham á þessum sömu klettum? „Allt er óbreytt.” Það var hrifningar- blær i rödd Kalla og Tommi tók óvænt um hönd hennar. Hún nam staðar og leit á andlit hans, sem bar við himin. „Náttúran breytist ekki, Kalii. Fólk ekki heldur innst inni. Auðvitað eru skapbrigðin mismunandi ör en innst inni breytist þaðekki.” Eitthvað snart hjarta hennar, ný vissa, ný viska, sem gladdi hana. „Tommi! Þú komst með mig hingað I ákveðnum tilgangi. Til að gera mér skilj- anlegt. . .” Tommi kinkaði kolli og þau störðu þegjandi hvort á annað. Hann rauf þögnina. „Ofan í með þig,” sagði hann glað- lega. „Ferðu fúslega ofan i sjálf eða þarf ég að henda þér?" „Þú þyrðir það aldrei!” Kalla iðraði þessara orða, þegar hann stökk til henn- ar. „Eftir andartak." sagði hann og hneppti frá sér skyrtunni. En Kalli flýði niður árfarveginn og hneppti líka frá sér fötunum á hlaupunum. Hún komst í vatnið rétt áður en Winther vinsælustu og bestu þríhjólin Tomrni náði henni og greip andann á lofti, þegar tunglskinsbjart, iskalt vatnið luktist um hana. Eitt sekúndubrot var henni of kalt til að hún gæti hugsað og hún synti niður ána, þegar skvampið sagði henni, að Tommi hefði stungið sér. Eftir nokkrar minútur kom hún að fljótsbakkanum og hélt sér í trjágrein, sem hékk yfir bakkann. Tommi kom úr kafi við hlið hennar. Hann strauk hárið úr augunum og brosti. „Þú náðir mér ekki! Þú hefúr aldrei haft við mér!” Það glitraði á augu Kalla I tunglsljósinu, þegar hún sagði þetta._ „Nei, það hef ég aldrei getað .. .” Hann var þarna við hlið hennar og horfði á hana eins og aldrei fyrr, ákaft og ástúðlegt augnaráð, svo að Kalla hlýnaði um hjartarætur. Hún máttiekki egna hann lengur, ekki þennan nýja, ókunna Tomrna. „Ég ætla að klæða mig,” sagði hún og fór upp úr. „Mér er kalt.” Hún gekk eftir árbakkanum að hand- klæði sínu og fötum og heyrði fótatak Tomrna að baki sér. Tomrni var fljótari að klæða sig en Kalli. „Við skulum fá okkur gönguferð til að hlýja okkur,” sagði hann og snéri sér að Kalla. sem var að hneppa að sér skyrtunni. Hann brosti og hún fann per- sónutöfra hans umlykja sig og rósemi hans gagntók huga hennar. „Já.” Hann setti blaut sundfötin i körfuna, sem Kalli hafði haft meðferðis og tók um hönd hennar. „Komdu, við skulum klifa tindinn." Brott frá niðandi ánni umlukti þögnin þau. Þögn, sem ekkert rauf nema andar- dráttur þeirra. sem dýpkaði, þegar sótti á brattann. Yar Tor gnæfði yfir þeim, þegar þau komu út úr skógarjaðrinum við fljótið. Ofar, ofar klifu þau og horfðu yfir tungl- skinsbjarta heiðina. „Sjáðu stjörnurnar . . ." Kalli nam staðar til að kasta mæðinni ogstara upp I stjörnuglóð himinhvelfingarinnar. „Hugsaðu ekki um stjörnurnar. Haltu áfram!” Tom tók þéttar um hönd henn- ar og það var ákefð I rödd hans, sem hún skildi ekki i fyrstu. Uns þau komu að steinhrúgu. Kalli leit á hann. „Þetta eru kofarústir," sagði Tommi lágt og hún starði á steinhringinn, sent eitt sinn hafði verið undirstaða húss. „Frá brons-öld . . .” Kalli var ringluð. „Hættu þessu grobbi. Ég þekki sögu sveitarinnar jafn- vel og þú . . .” Þá skildi hún hann og hjarta hennar var þrungið von. Hún brosti hrifin framan í Tomma. „Ó, Tommi! Þú sagðist ætla að gera mér þetta skiljanlegt og þú hefur gert það! Fólkið, sem hér bjó.var alveg eins og við. Það var jarðbundið, það lifði á afrakstri jarðar eins og við — það unni heiðinni og tók þvi, sent hún gaf.” „Já?" sagði Tommi uppörvandi og þrýsti henni aðsér. „Hér bjó það. elskaðist, eignaðist börn. Það ól upp fjölskyldur sínar hér. Tonimi. . .” „Guði sé lof! Loksins!” sagði hann innilega. „Ég hélt. að þú skildir þetta aldrei! Stúlka ntin, barátta okkar, von brigði og sigur eru öll hluti lifsins. Þetta hefur allt komið fyrir áður og á eftir að koma fyrir til eilifðar. Jafnvel á Moor- hill. Sérstaklega á Moorhill. Skilurðu, hvaðégá við.elsku Kalli mín?” Hún kinkaði kolli sigri hrósandi i hamingju sinni. „Já, já, ég skil." Hann leit i andlit hennar. „Viðeigum eftir að rifast. sáryrði rnunu falla, en ég held, aðokkur takist það, sem við viljum i sameiningu." Hann kyssti hana og brosti svo spyrjandi um ieið og hann leiddi hana inn í steinhringinn. „Hér hefst upphafið, Kalli." Í tunglsljósinu sá hún burknaflet við einn steinvegginn. Það var af honum ferskur og hreinn ilmur tengdur heið- inni, meira tælandi en nokkurt rúm gert af mannlegum mætti. „Ó, Tommi!" Þetta var eins og kjök- ur, sem breyttist þó fljótlega i hlátur, þegar hann tók hana í fang sér og bar hana að burknarúminu. Þau vöknuðu bæði í dögun. Gullið höfuð Tomnia hvíldi við hlið hennar á ilmandi burknunum. Stjörnurnar á himinhvelfingunni bliknuðu ein af ann- arri og fyrsti fuglasöngurinn hljómaði i tæru morgunloftinu. Kalli skildi hann eftir og tindi græna burkna af fötum sinum, þegar hún gekk út um innganginn á steinhringnum. Hún settist undir stóran stein og leit yfir sveitina. Heiðin var að vakna úr næturdvala. Heiðin, sem varð purpurarauð i sólskin- inu. Steinarnir, sem voru í gráum og svörtum litbrigðum og skinu i birtunni. Lævirki hóf sig til himins og söng sína silfurtæru tóna. Kalli leit letilega yfir öxlina og breiddi faðminn gegnt Tomma, þegar hann reis á fætur og stóð upp af burknabeðinum. „Þetta er himneskt, Tommi. Komdu og sjáðu.” Þau ræddust ekki við þar, sern þau sátu. Þau gætu talað seinna. þegar gömlu, hversdagslegu vandamálin létu á sér bæra — þegar hringrás lifsins liefði aftur heimt þau til sin. Nú voru þau al- sæl með endurminningu hamingju stunda; endurminningu. sem var horn- steinn lifs þeirra saman. ENDIR. 44. tbl. Vikan 51
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.