Vikan - 16.08.1979, Page 63
urra spurninga. Hvað eru Halli
og Laddi gamlir? Eru þeir gift-
ir? Hvað eiga þeir mörg börn?
Hvað heita þau? Hvað heita
konurnar? Hvar eiga þeir
heima?
Hvað er Björgvin gamall?
Hvar á hann heima? Hvað
heitir konan hans? Hvað á
hann mörg börn? Hvað heita
þau? Heitir hann fullu nafni
Björgvin Helgi?
Með fyrirfram þökk fyrir
svarið. Ein forvitin.
P.S. Hvað er hægt að senda
Helgu til að japla á.
Eins og áður segir, Helga er
alæta og þvi með vöxt sam-
kvæmt því. Því miður, Póstur-
inn hefur þá reglu að gefa ekki
upp neitt í einkalífi einstaklinga i
poppheiminum. Þú gætir reynt
að skrifa útgáfunni, sem gefur út
plöturnar þeirra, og athugað
hvort þeir vilja segja þér eitt-
hvað frekar. Eitt ætti þó að vera
í lagi að segja þér — hann heitir,
að sögn kunnugra, fullu nafni
Björgvin Helgi.
En ég fór
Kæri Póstur!
Hvað á ég að gera? Þannig
er mál með vexti að ég er mjög
hrifin af strák, en ég veit nú
ekki hvort hann er hrifinn af
mér, vegna þess að í vinnunni
talar hann ekki við mig. En eitt
kvöldið þegar ég fór ú t að
labba þá var hann úti í glugga
þar sem hann býr. Svo spurði
hann mig, hvort ég vildi heim-
sækja sig, en ég sagði nei því
ég er svo feimin. Eg get varla
talað við stráka þá roðna ég
svo mikið, að ég veit ekki hvað
ég á að segja, svo hélt ég
áfram. Um kvöldið hitti ég
hann hjá bíóhúsinu og hann
bauð gott kvöld og spurði
hvort mér þætti gaman að
labba ogégsagði já. Jæja, svo
spurði hann, hvort ég vildi
koma að labba og ég sagði já.
Hann spurði hvort að mamma
uiyndi komast að því að ég
befði heimsótt hann og ég
sagði nei, eins og satt er. Þá
spurði hann mig, hvort hann
mœtti bjóða mér í glas, ég
sagði nei! Eg drekk ekki og
reyki ekki, ég er að verða 16
úra. Hann bauð mér líka bjór.
en ég sagði nei. Þegar ég ætlaði
að fara, sagði hann alltaf: ekki
fara. En ég fór. Jæja, hvað á
ég nú að gera, Póstur góður?
Eg vonast eftir svari því að ég
hef skrifað 3svar sinnum en
aldrei fengið svar.
Með kærri þökk fyrir birt-
ingu, ef bréfið verður birt.
Gunna Stína.
Það er varla annað hægt en
svara þér í fjórða skiptið eða
hvað finnst þér?
Það langbesta, sem þú getur
gert, er að bíða bara róleg og at-
huga hvort hann reynir ekki að
tala við þig að fyrra bragði, það
er að segja af því að þú segist
vera svo feimin. Þú gætir nú líka
reynt að herða upp hugann og
tala sjálf við drenginn, þeir tímar
eru löngu liðnir að karlmaður-
inn eigi alltaf að hafa frum-
kvæðið. Ef hann býður þér aftur
inn skaltu ekki þiggja neitt að
drekka til þess eins að þóknast
honum, en tali hann ekkert við
þig í vinnunni skaltu fara var-
lega i að trúa öllu sem hann segir
utan vinnustaðarins.
Pennavlnlr
Hulda Jónsdóttir, Mánagötu 6, 730
Reyðarfirði og Þórstina Hlín Sigurjóns-
dóttir, Heiðarveg 2, 730 Reyðarfirði,
langar að komast í bréfasamband við
krakka á aldrinum 14—16 ára. Áhuga-
mál margvísleg. Mynd fylgi fyrsta bréfi
ef hægt er. Svörum öllum bréfum.
Rua Cambúa 200/201, J.G. — Ilha do
Governador Rio de Janeira/RJ 21.940
— Brasil. José Augusto R. Pereire. Ég
er 17 ára og óska eftir íslenskum penna-
vini. Ég er nemi. Áhugamál mín eru
aðallega að safna frímerkjum og póst-
kortum frá öðrum löndum.
Ranjan Perera. 16, Asoka Avuene,
Jayanthipura, Battaramulla, Sri Lanka.
Ég er 20 ára Sri Lankastrákur og mig
langar til að skrifast á við einhverja
islenska stúlku. Áhugamál mín eru:
Tónlist, ljósmyndun og frímerkja-
söfnun.
Jóhanna Björk Guðjónsdóttir,
Faxatúni 6,210 Garðabæ. Mig langar til
að skrifast á við krakka á aldrinum 11-
12 ára (er sjálf 11 ára). Áhugamál mín
eru: Sund, hestar, ferðalög, frímerki,
handbolti og strákar.
Aðalheiður Ósk Þorleifsdóttir, Borgar-
gerði, 755 Stöðvarfirði. Óska eftir
pennavinum á aldrinum 13-16 ára (er
sjálf 14 ára). Áhugamál mín eru:
Íþróttir, sund, ferðalög og margt fl.
Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
Birgitta Benediktsdóttir, Steinholti, 755
Stöðvarfirði. Óska eftir pennavinum á
aldrinum 12-15 ára. Áhugamál margvís-
leg. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
Sigríöur Margrét Vigfúsdóttir, Aðal-
stræti 61, 450 Patreksfirði. Óskar eftir
að skrifast á við stráka á aldrinum 12—
14 ára (er sjálf 13). Svarar öllum bréf-
um.
Gunnar Guðmundsson, Hæðargarði 2,
108 Reykjavik. Óska eftir pennavinum á
aldrinum 20—25 ára. Áhugamál: Hest-
ar, sveitavinna og margt fleira. Svara
öllum bréfum.
Sigrún Hulda Sæmundsdóttir Túngötu
8, Reyðarfirði, óskar eftir pennavinum á
aldrinum II—13 ára, (er sjálf 12 ára).
Svarar öllum bréfum. Mynd fylgi fyrsta
bréfi.
Ingvar Guðmundsson, Haga, Holtum,
801 Selfossi. Ég óska eftir pennavinum á
aldrinum 12—14 ára (ég er sjálfur 12
ára). Helstu áhugamál mín eru: Frí-
merkjasöfnun, skák og lestur bóka.
Magdalena Svanhvít Kristinsdóttir,
Breksdyk 41, 8614 AX Oudega —W—
Holland. Óskar eftir að skrifast á við
krakka á aldrinum 12—14 ára, (er sjálf
13, að verða 14). Áhugamál eru marg-
vísleg. Æskilegt að mynd fylgi fyrsta
bréfi ef hægt er.
Bára Baldursdóttir, Kirkjuvegi 6, 530
Hvammstanga. Kristin Guðmundsdóttir,
Helguhvammi, 531 Hvammstanga,
Ásgerður F. Guðmundsdóttir, Breiða-
vaði, 541 Blönduósi. Óskum eftir penna-
vinum á aldrinum 15-17 ára, bæði
strákum og stelpum (erum sjálfar 16 ára
á þessu ári). Áhugamál okkar er allt milli
himins og jarðar, allt nema sólin og
skólinn. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt
er (einhver mynd). Svörum öllum
bréfum sem vit er í.
Miss Laura March, Ruskin Road, Dak
Ridge, New Jersey 07438 U.S.A. 17 ára,
óskar eftir pennavinum á Islandi og hún
hefur margvísleg áhugamál.
Joseph Bonney. P.O.Box 177, Cape
Coast, Ghana W-A. Óska eftir
islenskum pennavini. Áhugamál eru:
Lestur, tónlist og fótbolti. Joseph er 16
ára og vill pennavini af báðum kynjum.
Albert Sam, Asscciation Importdnt
L.T.B. P.O. box 648, Cape Coast-Chana.
Óska eftir íslenskum pennavini, ég skrifa
á ensku. Aðaláhugamál mín eru:
Iþróttir, m.a. borðtennis, biblíulestur,
söfnun frimerkja og póstkorta. Að
síðustu þykir mér gaman að skipta á
gjöfum.
Mr. Charles Adu Tom. P.O. Box 174,
Cape Coast, Ghana W/A. Óska eftir
íslenskum pennavini, skrifa ensku.
Aðaláhugamál eru: Lestur bréfa, tennis,
biblíulestur og skipti á gjöfum.
James Bierkett, Box 321 Wylie Texas
75098. Mig langar til að skrifast á við
stúlkur á aldrinum 14-44 ára.
Aðaláhugamál eru: Iþróttir, útilíf og
draumar.
Geraldine H. Handley. 5, Wertworth
Avenue, Margate, Kent, England. Ég er
ung húsmóðir með tvö börn og mig
langar til að skrifast á við konur í öðrum
löndum. Ég er 28 ára, ég á stúlku sem er
4 ára og son sem er 10 mánaða. Áður en
ég varð húsmóðir var ég kennari. Ég
skrifa eingöngu á ensku.
Leo M. Scott. 1151 5th ave. So. 107,
Edmond Washington 98020 USA.
Bandarískur kennari af sænskum ættum
óskar eftir islenskum pennavini.
Áhugamál eru: Skíði, siglingar, ferðalög
og tónlist.
33. tbl. Vikan 63