Vikan - 08.05.1980, Side 11
Brynhildur Georgía Bjömsson.
Hún er fædd í Sviþjóð, uppalin í
Danmörku og Þýskalandi, dvaldi sex ár
af lífi sínu í Suður-Ameriku en kom svo
heim til að gerast bátasjómaður, bóndi og
kennari. Brynhildur Georgia Björnsson
hefur ekki bundið bagga sina sömu
hnútum og samferðamennirnir, lífs-
hlaup hennar hefur verið sviptingameira
en flestra landa hennar. Og í þessu
viðtali við Vikuna stiklar hún á stóru í
úrtaki á stormasamri ævi sinni.
— Ég er fædd í Sviþjóð. dóttir Björns
Björnssonar og Mariu Jónsdóttur
Maack. Ég ólst svo að nokkru leyti upp í
Danmörku þar sem afi minn, Sveinn
Björnsson, siðar forseti Islands, var
sendiherra og á stríðsárunum var ég í
heimavistarskóla í Norður-Þýskalandi.
Það voru hræðilegir tímar, fólk átti
afskaplega bágt en það var eins og
erfiðleikarnir tengdu það betur saman.
Annars var ég svo ung þá að ég var ekki
farin að gera mér grein fyrir alvöru
lífsins, ég hafði alltaf á tilfinningunni að
þrátt fyrir allt væri mér óhætt. Loft-
árásir voru tíðar. það leið varla sú nótt
að við þyrftum ekki að leita í loftvarna-
byrgin. Mér leiddist það og reyndi
stundum að sleppa við það. En refsingin
var sú að ég var skikkuð i viku-
uppvask sem mér fannst öllu verra en
loftvarnabyrgin. Þannig var skrúfað
fyrir þann leka.
— Matvörur voru af mjög skornum
skammti, ungpíudraumar minir snerust
þess vegna ekki um prins á hvitum hesti
heldur mat. Ég komst þó öðru hverju í
fri til Danmerkur þar sem ég úóð mig
út af góðgæti, keypti síðan ýmsa smá-
vöru eins og tvinnakefli og öryggisnælur og
skipti á þessu og mat í Þýskalandi.
Flísaframleiðslan sem
fór f vaskinn
— Þegar skólanámi lauk réðst ég sem
heimiliskennari til Suður-Ameríku.
Þannig hafði ég ætlað mér að flakka um
á milli ríkja og skoða mig um. Ég byrjaði
hjá þýskri fjölskyldu í Buenos Aires en
var ekki búin að vera þar nema í 3 vikur
þegar ástin kom til skjalanna i liki landa
Matvörur voru af
mjög skornum
skammti, ungpíu-
draumar mínir snerust
þess vegna ekki um
prins á hvítum hesti
heldur mat.
Ég held aö þaö sé
eitthvaö þaö viöbjóðs-
legasta sem ég hef
komist í um dagana
því þegar hitinn kemst
upp í vissa gráðu rís
líkið upp í kistunni,
rétt áöur en það
verður aö ösku.
míns þó furðulegt megi virðast að fara
svo langan veg til að leita að slíku. Enda
var það svo sannarlega ekki áætlunin.
En við gengum sem sagt i hjónaband.
Hann var með alveg sérstaka flísafram-
leiðslu á prjónunum en þegar til kom
áttu flisar þessar og loftslagið cnea
samleið svo það fór allt i vaskinn. 'Jm
tima seldum við þvottasnúrur í mismun-
andi löngum rúllum, svo réðst ég sem
hjúkrunarkona til þýskrar konu sem rak
búgarð utan við Buenos Aires. Hún átti
lamaðan eiginmann sem ég átti að sjá
um. Hann var með afbrigðum spikaður
og ég átti fullt í fangi með að snúa
honum í rúminu enda alveg komin á
steypinn. Hann dó svo drottni sinum,
blessaður maðurinn, og vegna hitans eru
lík brennd þarna samdægurs. l.ögin
kröfðust þess að eitthvert óvilhallt vitni
væri viðstatt atburðinn og ég tók það að
mér. Ég held það sé það viðbjóðslegasta
sem ég hef komist í um dagana því
þegar hitinn kemst upp i vissa gráðu rís
likið upp í kistunni, rétt áður en það
verðuraðösku.
— Eg dvaldi alls í sex ár i Suður-
Ameríku, aðallega Argentinu, og á
þessum tíma fékkst ég svo sannarlega
við sitt af hverju mér til lifsviðurværis.
Ég fékk t.d. statistahlutverk i kvikmynd
með þeim Cesar Romero og Mariu
Montez sem þá voru frægar stjörnur. Ég
átti að vera mætt klukkan 7 á morgnana
til vinnu og fékk 17 pesos á dag. En
mestur hluti dagsins fór i hangs meðan
sama atriðið var tekið upp aftur og
aftur. Ég man t.d. eftir einum degi sem
fór allur i að endurtaka atriði þar sem
Cesar Romero stendur uppi á kassa og á
að kyssa Mariu Montez. Ég held að
þetta hafi verið leiðinlegasta vinnan sem
ég hef komist i, svona aðgerðaleysi á
ákaflega illa viðmig.
— Það tók mig langan tíma að komast
inn í latneska hugsunarháttinn þó ég
væri fljót að læra málið. Þarna lætur
fólk hverjum degi nægja sína þjáningu
sem er afskaplega framandi hugsunar-
háttur fyrir Norðurlandabúa. En smám
saman smitast maður af þessu unaðslega
19. tbl. Vikan XI