Vikan - 08.05.1980, Side 16
POTTAR ERU ,
EKKI SKRAUT
MUNIR
Það fer varla milli mála að pottar eru dýrir hlutir
og því ástæða til að vanda vel valið þegar á að
festa kaup á slíkum hlut. Margir freistast til að
kaupa svokölluð pottasett, en athugið nú vel
ykkar gang áður en ráðist er í að kaupa slíkt. Það
er ekki sama til hvers nota á pottinn og því á
efnið ekki að vera það sama í öllum suðuílátunum
á heimilinu.
Hér á landi er mikið og gott
Orval suðuíláta í búsáhalda-
verslunum okkar. Fyrir þá sem
ekki hafa hugsað mikið um slíka
gripi kann að vera allflókið mál
aðfinna einmitt rétta ílátið. Við
skulum byrja á því að gera okkur
grein fyrir því hver þörfin er á
heimilinu, hvað þarf marga
potta, hve stóra og hvaða efni á
að vera í þeim. Viljum við skaft-
potta eða potta með eyrum.
Skaftpottar taka óþarflega
mikið pláss bæði í skápum og á
eldavélum, en mörgum finnst
þægilegra að þurfa ekki að beita
nema annarri hendinni til að
flytja þá Or stað. Það skiptir lika
miklu máli hvernig lag skaftsins
er og eins hvernig eyrun eru
löguð eða fest á pottinn. Lokið
verður að falla vel og þétt að
pottinum svo hitatap verði sem
minnst.
Þið þurfið að eiga allt að fjóra
potta af mismunandi stærð og
athugið vel, áður en kaupin eru
gerð, hve stórar hellurnar eru á
eldavélinni og hafið það í huga
að botninn á pottunum sé af
sömu stærð.
Algengast er að fólk kaupi
potta úr ryðfriu stáli, glerjaða
potta úr járni og stáli og álpotta.
Einnig má fá suðuilát úr eldföstu
gleri, keramik og steinlelr. Þessi
efni leiða þó hita illa og réttast
að nota þannig ílát i ofni.
í Noregi var á vegum norsku
neytendasamtakanna gerð
könnun á pottum af ýmsum
geröum. Alls voru athugaðir 56
pottar úr margvíslegum efnum.
Pottarnir voru flestir framleiddir
á Norðurlöndum. Eitthvað af
þeim var þó innflutt og voru það
þá aðallega pottar úr glerjuðu
stáli. Einnig voru með í könnun-
inni þunnir, ódýrir álpottar frá
Finnlandi og var sérstaklega
varað við slíkum ílátum. Þeir
voru of léttir og þoldu illa alla
venjulega meðferð. Steikar-
pönnur voru ekki teknar með í
þessa rannsókn.
Notagildi
Þegar á að festa kaup á pottum
þarf maður auðvitað fyrst og
fremst að gera sér grein fyrir þvi
til hvers á að nota ílátiö. Vfirleitt
hugsum viö okkur að hafa einn
1) Eldfast efni leiflir illa hita, suðurtfmi
er langur. Setjið aldrei ekfföst ílót
tóm á heita plötu og varist miklar
hitasveiflur. 2) Pottur úr glerjuðu
stáli. 3) Pottur úr ryðfrfu stáli. 4)
Kopar leiðir illa hita og maturinn
brennur gjarna við. Kopar jjarf afl
pússa svo hann líti vel út. 5) Pottar
úr járni leifla illa hita en það er gott
að steikja f þeim 6) Álpottar leiða
vel hita og pottarnir eru léttir.
pott til að sjóða í kartöflurnar,
annan fyrir súpur og grauta,
þann þriðja fyrir kjöt og meiri
háttar suðu og þann f jórða til að
sjóða í sósur og smárétti.
Pottarnir eiga að vera misstórir
og botn þeirra þarf að laga sig að
hellunum á eldavélinni okkar.
Takið því mál af hellunum áður
en farið er á stúfana að leita að
hentugum pottum.
Það er mikilvægt að huga vel
að hvernig eyrun eru staðsett á
pottunum og að skaftið sé vel og
þægilega lagað. Efnið í pott-
unum á að leiða vel hita og þarf
að þola mikinn hita. Einnig
skuluð þið athuga að pottarnir séu
sterklegir og þoli misjafna
meðferð. Fátt finnst t.d. smé-
börnum skemmtilegra en komast
Ifc Vikan 19. tbl,