Vikan - 08.05.1980, Síða 17
Þýtt í samráði við Neytendasamtökin úr Forbruker-Rapporten. S.H.
en samkvæmt niðurstöðu neyt-
endasamtakanna var þaðekki
taliö til ágætis.
Glerjað stál
Það er mikið úrval af pottum
úr stáli með glerungi bæði utan
sem innan. Það er mjög létt að
þvo þessi ílát. En sterkar sýrur
skemma glerunginn, hann getur
orðið mattur og ójafn. Einnig
brotnar út úr pottunum við högg
og við mikinn hita getur
glerungurinn sprungið. Þessir
pottar eru því heldur viðkvæmir
hlutir. Auðvitað fer endingin eftir
upphaflegum gæðum en það er
ekki auðvelt að átta sig á því í
upphafi hver þau eru.
Sléttur botn
Botninn á pottinum á að vera
sléttur og falla vel að hellunni.
Þannig verður hitinn best nýttur.
Það skiptir ekki öllu máli þó
potturinn nái út fyrir helluna, en
hann má ekki vera minni en
hellan.
En allra best er að botninn sé
alveg í samræmi við helluna.
Ef pottbotninn er mjög þunnur
er meiri hætta á að maturinn
brenni við. Það kom í Ijós að síst
brann við í pottum úr áli. Það
skiptir líka miklu máli að botninn
sé af réttri þykkt. Mjólkurmat er
langbest að sjóða í álpottum. Það
var niðurstaða í fyrrnefndri
könnun aö hvorki pottar úr
ryðfríu stáli eða með glerungi
voru heppilegir til þess að
matreiöa i mjólkurmat.
Hellustærð
Algengasta stærð á hellum á
þeim eldavélum sem við
þekkjum er 14,5 sm, 18 sm og 22
sm. Stærðin á pottunum sem hér
eru falir er nokkuð i samræmi
viöþetta. Þið skuluð þó vera búin
að mæla út til vonar og vara og
bera saman við uppgefna stærð i
versluninni. Þið sparið mikið
rafmagn ef potturinn er í
samræmi við hellustærðina og
það er þvi til nokkurs að vinna ef
tekst að velja mátulega stóra
potta.
Skrautmunir
Þvi miður freistast margir til
að kaupa potta eftir útlitinu og
hugsa ekkert um notagildi. Það
getur auðvitað stundum farið
saman, að fallegur hlutur sé
frábær að öllum gæðum, en þvi
miður eru fínheitin oft á kostnað
gæðanna. Flestum pottum fylgir
leiðarvísir og upplýsingar um
efni og meðferö. Kynnið ykkur
leiðarvísinn eftir föngum og verið
óhrædd við að leita ráða hjá
afgreiöslufólkinu. Rétt mun að
kaupa potta úr mismunandi
efnum, þannig að þá sé hægt að
velja hvern skal nota við þetta
eða hitt tækifæriö. Niðurstaða
norsku könnunarinnar var samt
alfarið álpottunum í hag.
í pottaskápinn og þá er eins gott
að pottarnir þoli högg.
Best er að botninn á pottinum
sé þykkur, bæði svo potturinn sé
stöðugur og til að síður brenni
við í honum.
Ál leiðir vel hita
Pottar úr áli eru að jafnaði
bestu ilátin, þó með því skilyrði
að þeir séu nokkuð þykkir og
botninn ekki minna en 1/2 sm
þykkur. Ál leiðir mjög vel hita.
Gallinn við ál er sá að ýmsar
sýrur og saltupplausnir gera
pottana flekkótta og stundum
geta myndast svartar smáholur.
En hægt er að meöhöndla ál á
ýmsan hátt til að komast hjá
þessu. Er þá um nokkurs konar
húðun að ræða, en því miður
nuddast hún af þegar mikið er
skafið eða nuddað.
Hægt mun að fá potta úr áli
sem eru með glerungi að utan en
teflon að innan. Glerungurinn
hlífir auðvitað m jög en teflon
hefur ekki reynst vel.
Teflon er nokkurs konar plast-
húð sem notuö er innan í potta og
pönnur til að koma í veg fyrir að
matur brenni við. Það hefur sýnt
sig að þetta er fremur gagnslítiö
ráð. Ef við notum þeytara eða
hrærum með áhöldum sem hafa
hvassar brúnir geta komið
skemmdir í húðina. Með pottum
sem hafa teflonhúð fylgja
stundum leiðbeiningar og þá
varað við að nota áhöld sem geta
rifið húðina. Það er líka mjög
varasamt að pottur með teflon-
húð ofhitni. Það kom fram, i
rannsókninni að teflon var stund-
um notað til að fela hve botninn
var þunnur.
Álpotta ætti ekki að þvo i
UDDbvottavél. Þeir verða mattir
Hór er dœmi um vel formufl eyru.
Þafl er þægilegt afl taka í þau og
engin hætta á afl maður brenni sig
á pottinum.
Handföng, eyru og tappar á lokum
mega ekki leiða hita. Það á ekki að
vera nauðsynlegt að nota potta-
leppa.
Til vinstri er stálpottur með álbotni. með glerungi afl utan. Ryflfrftt stál
Til hægri er skaftpottur úr stáli en leiflir illa hita.
Takifl eftir hvernig tappar eru á hætta sá á að maflur brenni sig á
lokum pottanna. Það er slæmt ef hendinni þegar lokinu er lyft.
þeir eru smáir efla f grópi þannig afl
Algengasta stærfl á eldaválahellum
er 14,5, 18 og 22 sm. Gætið þess að
botninn á pottinum sé sem næst
jafnstór hellunni.
og flekkóttir. Glerjaða álpotta
með teflon má þó setja i
uppþvottavél.
Ryðfrítt stál
Ryðfrítt stál, sem notað er í
suöupotta, er blanda með 18%
króm og 8% sink. Stáliö þolir vel
högg og ómjúka meðferð og þolir
vel kemisk efni, þó ekki sterkar
saltupplausnir. En ryðfrítt stál
leiðir illa hita. Slíkir pottar ættu
þvi aðvera með kopar-messing-
eða álbotni. Hið siðastnefnda er
algengast. Matur festist mjög við
potta úr ryðfriu stáli, þó svo
botninn sé úr öðru efni. Hægt er
að forðast að allt brenni við með
því að hafa aldrei háan hita á
plötunni.
Ryðfrítt stál þolir flest þvotta-
efni en ekki má skafa eða rífa
með grófum bursta óhreinindin
af.
Pottar úr ryðfríu stáli eru
einnig til með glerungi að utan
19> tbl. Vikan 17