Vikan - 08.05.1980, Page 21
Fjórði hluti
sent fjögurra ára dreng í heimavistar-
skóla. Afi og amma? Ted fannst sem
hans eigin foreldrar hefðu eytt öllum
sínum kröftum í að vera afi og amma
barnanna hans Ralphs í gegnum árin.
Hann tók það nærri sér hvað þau sýndu
Billy litinn áhuga þá sjaldan þau komu
til New York. Faðir hans sat límdur við
sjónvarpið, jafnvel þótt Billy væri að
gera eitthvað sem var alveg einstakt í
augum Teds. Eins og til dæmis að brosa.
Móðir hans tönnlaðist sífellt á þvi hvað
Ralph hefði verið yndislegt barn og hvað
börnin hans Ralphs hefðu verið yndis-
leg ungbörn. Ef foreldrar hans
nenntu ekki einu einu sinni að sýna Billy
neinn áhuga á skyndiferðum sínum til
New York var hæpið að áhuginn yrði
neitt meiri þó þau sætu uppi með hann
til langframa.Tengdaforeldrar hans voru
algjörar andstæður að þvi leyti að þar
gengu öfgarnar í þveröfuga átt. Þau
voru hlægilega taugaveikluð. — Látið
hann ekki standa þarna, hann gæti
dottið út um gluggann. — Mamma, við
erum með öryggislæsingar á gluggun-
um. — Hann er með hita. — nei,
Harriet, það er dagurinn sem hefur hita.
Næstum fjörutíu stig. Hann gæti látið
þau hafa drenginn og vonað svo að hann
spjaraði sig þrátt fyrir allt. Það var að
minnsta kosti áreiðanlegt að Billy mundi
ekki detta út um neinn glugga í þeirra
umsjá. En mundi þeim þykja vænt um
Billy? Voru þau yfirleitt tengdaforeldrar
Teds lengur? Allt virtust þetta
óskynsamlegar ráðstafanir. Hvorug
voru fær um að hafa Billy. Billy var
barnið hans. Hann tilheyrði honum. Ted
ætlaði að gera sitt besta. Það var það
sem hann vildi.
Hann sótti Billy í leikskólann og fór
með hann heim. Thelma hringdi og
bauðst til að hafa hann. Það var ekkert
aukaálag á hana því börnunum kom svo
vel saman. Hún spurði hvort hann hefði
heyrt nokkuð frá Jóhönnu. Honum
fannst hann skulda fólki skýringu og
sagði henni því að Jóhanna kæmi ekki
aftur. Hún ætlaði ekki heldur að hafa
Billy. Thelma tók andköf. Hann gat
heyrt það í gegnum simann, alveg greini-
leg andköf.
— Guð minn góður.
— Þetta er svo sem enginn heims-
Þýðandi: Jóhanna Þráinsdóttir
19. tbl. Vikan 21