Vikan - 08.05.1980, Page 26
Vikan og Heimilisiönaöarfélag Islands
Spjaldvefnaður
— œvaforn list-
grein
o
c.
/ dag er œtlunin að kynna
spjaldvefnað og eru þeir eflaust
margir, lesendur Vikunnar, sem
aldrei hafa heyrt minnst á þessa
tegund vefnaðar. Þau tœki sem
til þarf eru mjög einfóld og œtti
því ekkert að vera til fyrirstöðu
að þið, lesendur góðir, kynnið
ykkur þessa œvafornu listgrein,
sem talið er að landnámsmenn
hafi flutt með sér til íslands.
Talið er að sögu spjald-
vefnaðar megi rekja þúsund ár
aftur í tímann og mun hann vera
upprunninn austur í hinum
fornu menningarlöndum. Þaðan
barst hann norður um álfur en
til íslands er talið að hann hafi
flust með landnámsmönnum.
Það er löngu liðin sú tíð þegar
spjaldvefnaður var iðkaður á
hverju heimili en fjöldi
spjaldofinna banda, sem geymst
hafa og ofin eru undantekingar-
lítið fyrir síðustu aldamót, ber
glöggt vitni þess að þá hafa
margir kunnað listilega þessa
tegund vefnaðar og sést það best
á því hvílíkt snilldarhandbragð
er á flestum þessum böndum.
Flest böndin eru varðveitt í
Þjóðminjasafninu.
Spjaldofin bönd voru til
Merkiö götin á spjöldunum eins
og teikningin sýnir, ath. wol röð-
ina á bókstöfunum. Teikningin
sýnir hægri hlið spjaldsins.
Merkið götin með sömu bókstöf-
um á vinstri hlið.
2
Veljið tvo liti (t.d. grettisgarn)
misdökka. Rekið faðmslanga
uppistöðu í 6 spjöld: 12 þræði
dökka og 12 þræði Ijósa = 24
þræðir (sjá mynd 1).
3
Dragið þræðina i spjöldin eftir
teiknuðu mynstri. Þar táknar
lóðrétt rúðuröð eitt spjald og
rúöurnar fjórar eitt gat hver, sjá
bókstafi. Þræðirnir eru dregnir
inn í hægri hlið á öllum spjöldum
= (sjá mynd 2).
= dökkur þráður.
= I jós þráður.
stóran hnút þegar þeir eru allir
orðnir jafnstrekktir (sjá
teikningu).
4
Mittisbandi (belti) er smeygt
inn í skiliðvið hnútinn og bundið
um mittið. Lykkjuhnútur gerður
á uppistöðuna og snærislykkja
kappmelluð upp fyrir þann hnút
og smeygt upp á hurðarhún,
gluggakrók, ofn eða annað sem
ekki lætur undan. Stóllinn
7 1. mynstur. A B C D
1. spjald: dökkur dökkur Ijós Ijós
2. spjald: Ijós dökkur dökkur Ijós
3. spjald: Ijós Ijós dökkur dökkur (teikning)
4. spjald: dökkur Ijós 1 jós dökkur
5. spjald: dökkur dökkur Ijós Ijós
6. spjald: Ijós dökkur dökkur Ijós
Þegar dregið hefur verið í öll
spjöldin er krossbundið um þau,
ekki fast, svo mynstrið ruglist
ekki. Ath. að bókstafirnir eiga að
standast á. Lausu endarnir eru
stroknir fram úr
spjöldunum og bundnir saman i
færður þar til uppistaðan er
hæfilega strekkt.
5
ivafið er undið i skilhönk (sjá
mynd 3). Það sést mjög lítið,
má því vera hvor liturinn sem
er. Krossbandið utan um
spjöldin f jarlægt.
Ofið: Spjöldunum er öllum snúið
í einu, 1/4 úr hring, að sér eða
frá sér, farið með fingri inn í
skilið upp við spjöldin, fingurinn
færður að bandinu (hnútnum
fyrst) og ivafið dregið i gegnum
skilið, spjöldunum snúið (1/4 úr
hring), fingur inn í skilið á sama
hátt, þrýst með honum á ívafið
og jaðar lagfærður um leið ef
þarf, ívafið í gegn, spjöldunum
snúiðo.s.frv. (sjá mynd3og5).
Snúningar sem myndast aftan
við spjöldin eru látnir hverfa,
annaðhvort með því að snúa
spjöldunum stundum að sér og
stundum frá sér með vissu milli-
bili (auðvelt) eða með því að
klippa upp úr slönguendanum og
rekja snúðinn ofan af þráðunum
þeim megin, jafna síðan þræðina
og hnýta saman á ný
(seinlegra).
8
Einfaldasti frágangur á spjald-
ofnum böndum er að láta uppi-
stöðuendana mynda skúfa (sjá
mynd 6).
9
Vefið 4-5 sýnishorn úr uppi-
stöðunni, 25-30 sm löng.
a) Spjöldunum snúið í sömu átt
fyrir hverja 10-15 sm.
b) Spjöldunum snúið 4 sinnum
að sér og 4 sinnum frá, til
skiptis.
c) Mynstrinu breytt. Veltið
öðrum helming spjaldanna,
4. 5. og 6., þannig að sú hlið
sem áður var hægri hlið
verði vinstri. Raðið síðan
litum með því að snúa
þessum spjöldum hverju
fyrir sig þannig að litir í 6.
spjaldi standist á við liti i 1.
spjaldi, i 5. spjaldi eins og í
2. spjaldi og í 4. spjaldi eins
og í 3. spjaldi (sjá mynstur-
teikningu). Spjöldunum
snúið eins og áður, öllum i
einu 1/4 úr hring.
d) Mynstrinu breytt. Raðið lit-
um þannig að sami litur í
hverju spjaldi sé annað-
hvort að ofan eða neðan.
Vefið síðan með þvi að snúa
spjöldunum hálfhring frá
sér og hálfhring að sér til
skiptis.
Munið að binda um spjöldin áður
en slakaðer á uppistöðunni.
26 Vikan 19. tbl.