Vikan - 08.05.1980, Side 30
Draumar
Stopp — þvi þetta
er Kristófer
Kólumbus
Kæri draumráðandi.
Viltu ráða þennan draum sem
mig dreymdi. Ég var með
vinkonu minni og sáum við
krakka (10 mánaða — 3 ára).
Þeir voru mjög illa klæddir.
Við tókum þessa krakka inn í
eitthvert hús sem ég átti að
eiga heima í og fórum inn í ein-
hverja kompu. Við klæddum
krakkana (þeir voru þrír). Ég
tók til öll fötin og þegar ég
ætlaði að fara að klœða þriðja
krakkann var vinkona mín
búin að því. Við fórum með
krakkana (held heim til þeirra
en í eitthvert skiptið var eins
og krakkarnir væru dúkkur).
Þessi vinkona mín, X, er sko
alls engin pía (maður getur ekki
orðað þetta almennilega),
ofboðslega sein I öllu. Jæja, ég
var úti að labba, þá sá ég X í
bíl, brúnni, sanseraðri Cortinu,
og var hún við stýrið. Hún
bað mig að koma í bíó og svo
sagði hún að hún mætti vera á
bílnum og mér fannst það
skrýtið því pabbi hennar er svo
umhyggjusamur yfir bílnum.
Þar að auki er hún undir
lögaldri.
Ég var í skólanum og var
systir mín með mér. Ég var að
reyna að sýna henni tvær
stelpur (önnur hundljót og
leiðinleg en hin æðislega sæt,
Z). Síðan ætlaði ég að sýna
systur minni glas sem ég hafði
keypt. Þá sé ég tvœr stelpur I
mínum bekk (vinkonur) vera að
fara eitthvað með stelpu sem er
I sama aldurshóp og við (hún
talar ekkert við okkur). Jæja,
þá kemur Z að mér og fer að
tala við mig. Ég fer með systur
minni í eina stofuna I
skólanum og þar er lítill skápur
sem ég á. Kennarinn sem hefur
þessa stofu hleypti mér og
systur minni inn). Ég fór í
skápinn og náði í glasið (sem
var rauðvínsglas) og sýndi
henni það. Þá allt í einu var
kominn strákurinn sem ég var
að passa, Bjössi, og síðan kom
annar strákur sem sagðist heita
Bogi. Þá kom mamma Bjössa
og sagði að hann héti ekki Bogi
heldur Hörður (eða Hrólfur) og
var hann bróðir Bjössa og
tveimur árum yngri (5 ára).
Svo kom annar strákur sem
átti að vera bróðir þeirra
(Arnar eða Árni) og var hann
þriggja ára. Þá breyttist skóla-
stofan í herbergi. Ég fór niður
á gang og var þá allt eins og I
höll. Ég var að horfa á ein-
hvern leik og allir þeir er sátu
saman voru í hálfgerðum krók.
Ég hló eitthvað að leiknum en
þá byrjaði maður í klefa við
hliðina á mér að lemja mig
með brúnum púða i hausinn
og hló hann síðan illgirnislega.
Allt í einu voru brœðurnir
orðnir stórir og áttu að erfa
mann sem var dáinn. Það var
einnig annar maður sem átti að
erfa manninn en þeir ætluðu
að drepa hann tilað fá alla
peningana. Þeir voru búnir að
setja hann á kross. Þegar ég
kom sagði ég: Stoppið þetta því
þetta er Kristófer Kólumbus.
Svo sýndi ég fólkinu blað þar
sem sýnt var að allir þessir
fjórir menn áttu að fá mikla
peninga, Bjössi mest en þessi á
krossinum minnst. Kær
kveðja. 20
Einkennandi fyrir næstu
tímabil í lífi þínu er rótleysi og
þú ættir að varast að láta vini
þína ráða of mikið yfir
athöfnum þínum. Vinkona þín,
sem var á bíl föður síns í
upphafi draumsins, mun eiga
velgengni að fagna á næstunni
og hún gæti haft góð áhrif á
ýmislegt í umhverfi þínu á
næstunni. Smávægilegir
erfiðleikar valda þér hugarangri
um tíma en úr öllu rætist á
óvæntan máta. Farðu varlega í
allar meiriháttar ákvarðanir
varðandi framtíðina og ýmis-
legt í lok draumsins bendir til
að hollast væri að leggja meiri
rækt við vinnu og nám innan
veggja skólans.
Siglt með strönd-
inni_________________________
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi draum sem mér
þætti vænt um að fá ráðinn.
Mér fannst ég og konan mín
vera stödd um borð í
hvalveiðiskipi. Ég eyddi fyrstu
tímunum í að læra handtökin
um borð en ekki man ég hvað
hún gerði á meðan. Ætli hún
hafi ekki bara verið niðri hjá
kokknuml! Svo þegar kvöldaði
fannst mér okkur vera ætlaður
svefnstaður inni hjá skipstjór-
anum og var það mikill heiður.
Þegar dagaði aftur fór ég upp á
dekk og horfði yfir hafið. Þá
fannst mér eins og skipstjórinn
sigldi svo nálægt landi að mér
var ekki farið að standa á
sama. Ég spurði hann hvað
hann meinti með því að sigla
svona alveg upp að ströndinni.
Hann svaraði því til að hann
vissi alveg hvað hann vœri að
gera og að hann hefði aldrei
siglt í strand hingað til. Mér
fannst þetta ákafega furðulegt
og skildi ekki almennilega hvað
hann ætlaði sér að veiða svo
nálœgt landi!
Einhvern veginn svona var
nú draumurinn og vona ég að
þú sjáir eitthvað út úr þessu.
Áskrifandi.
Skipsferð í draumi er oftlega
táknræn fyrir lífsgöngu dreym-
andans, eða ákveðna hluta
hennar. Sennilega er það svo í
þessum draumi og mun skip-
stjórinn vera einhver áhrifa-
valdur í lífi þínu, jafnvel tákn
fleiri en eins manns í vökunni.
Flest bendir til þess að þú
eigir reglusamt og farsælt líf
fyrir höndum en ákveðin öfl
valdi því að á stundum finnist
þér lífsgöngunni stjórnað um of
fyrir þig af öðru fólki.
Engin stór áföll ná að valda
þér tjóni og bæði fjárhags-
afkoma og annað mun verða á
sólarhliðina. Hins vegar mun
það verða þín skoðun á
stundum að meiri áhættu fylgi
einnig von um skjótari og meiri
árangur ef vel tekst til og í
draumnum kemur ekki fram
hvernig fer að leikslokum. 1
þessum efnum verður kona þín
þolandi, engu síður en þú
sjálfur, en til þess að geta sagt
nánar til um merkinguna hefði
þurft að tilgreina fleiri atvik úr
draumnum.
Við glaum og
gleði
Draumráðandi góður.
Fyrir nokkru dreymdi mig
draum sem hefur setið mjög í
mér. Ég sendi þér hann í von
um að þú ráðir hann ef þú sérð
eitthvað út úr honum.
Mér fannst ég vera um borð
i einhvers konar ferju og átti
hún að flytja mig til lands sem
ég man ekki hvað hét. Mér
fannst ég ætla í langt ferðalag,
ein og fótgangandi. Ég
hlakkaði mjög mikið til og
hafði ég keypt mér ferðabúning
í tilefni ferðalagsins, samfesting
sem var svona purpurarauður
að lit en það undarlega var að
hann var allur bættur og
snjáður. Um borð í ferjunni
var margt kátt fólk og mér
fannst ég vera í einhvers konar
setustofu. Einhver byrjaði að
syngja og þá fannst mér ég allt
í einu vera komin með flðlu í
hendurnar og byrjuð að spila á
fullu. (Ég tek það fram að fyrir
utan að læra á blokkflautu í
eldgamla daga hef ég aldrei
snert á neinu hljóðfæri, hvað
þá flðlu!) Kvöldið leið við
glaum og gleði og ég var mjög
svekkt þegar ég vaknaði og
heyrði regnið lemja rúðurnar
og vissi að framundan var
aðeins venjulegur vinnudagur.
Með fyrirfram þökk.
Ein hlédrœg.
Eitthvert leyndarmál hefur
valdið þér duldri ánægju um
sinn og þess er varla langt að
bíða að upp komist um pukrið.
Hins vegar kemur í ljós að
þessi leynd hefur verið með
öllu ástæðulaus og ýmislegt
verður til þess að tilveran tekur
á sig sýnu ánægjulegri blæ en
verið hefur um skeið. Söngur
margra manna i draumi getur
boðað hvassviðri og rigningu og
mun svo vera í þessum draumi
þínum.
30 Vikan 19. tbl.