Vikan - 08.05.1980, Síða 34
Fimm mínútur með Willy Breinholst
í RÓOG
NÆÐI
Það er dásamlegt að fá gesti í
mat. Og enn dásamlegra þegar
þeir fara. Þá getur maður
sparkað af sér skónum, losað um
bindið, slengt fótunum upp á
borð og fengið sér einn góðan
drykk fyrir svefninn á meðan
frúin hreinsar öskubakkana og
sinnir ýmsum smáverkum sem
óumflýjanlega fylgja í kjölfar vel
heppnaðs matarboðs. Ég hlakka
alltaf jafnmikið til þeirra stunda
þegar síðustu gestirnir kveðja.
Þá fyllist stofan friði, maður
masar aðeins við konuna um
hversu góður marascino-
búðingurinn hafi verið svo ekki
sé minnst á Sanghai-steikina.
Það er dýrlegt að halla sér
makindalega aftur í stólnum
sínum, njóta drykkjarins án þess
að þurfa sífellt að brosa til
hægri, vinstri og beint fram, án
þess að þurfa að hlaupa í
kringum gestina með vindla-
kassann og gæta að því í leiðinni
að allir séu nú með nóg í
glösunum. Þegar gestirnir eru
loks farnir getur maður verið
eins og maður á að sér og þarf
ekki að hafa áhyggjur af neinum
glösum nema sínu eigin.
Að sitja einn eftir með glas í
hendi er hámark sælunnar hvað
mig áhrærir. En það gerðist nú
fyrir skömmu að við hjónin
vorum með 8 manns í mat og
enginn virtist ætla að fara þó
svo að klukkan tifaði stanslaust.
Klukkan varð tólf, hálfeitt og
svo eitt en enginn hreyfði sig.
— Sunnudagur! hrópaði ég
allt í einu og benti á dagatalið
sem hékk á veggnum. — Þetta
er vitlaust, það er kominn
mánudagur.
Ég stóð upp og bjó mig undir
að rífa sunnudagsseðilinn af
dagatalinu en þegar ég var
kominn hálfa leið að veggnum
varð mér ljóst að enginn hafði
tekið eftir þessari upphrópun
minni þannig að ég sneri aftur
og settist í stól minn. Ég reyndi
aftur:
— Sunnudagur! Dagatalið er
vitlaust — ÞAÐ ER KOMINN
MÁNUDAGUR! Ég stóð
aftur á fætur og ætlaði að rífa
sunnudagssnepilinn af en
Thomsen varð fyrri til.
— Láttu mig um þetta, sagði
hann en írafárið var svo mikið
að tvö blöð fuku og niður-
staðan varð ÞRIÐJUDAGUR.
— Fjandinn! sagði hann, —
þetta var helst til mikið. Það
breytir engu, við verðum þá
bara fram á þriðjudag!
Allir hlógu. Það þarf svo lítið
til að koma fullu fólki til að
hlæja. Ég sat í heilan hálftíma
og beið þess eins að einhver færi
að sýna á sér fararsnið. Skyrtu-
kraginn angraði mig, skórnir
þrengdu að fótunum, í stuttu
máli sagt þá leið mér afskaplega
illa og óskaði þess að fólkið færi
nú að koma sér svo ég gæti
fengið að njóta þess að sitja í ró
og næði.
Ég gerði tilraun til að ná
athygli frú Larsen sem sat í
sófanum og skvaldraði við
Nyberg.
— Hvað eru barnapíur með á
tímann núorðið? spurði ég og
bætti svo við: — Eru þær ekkí
Stjörnuspá
llnilurinn 2l.m;irs 20.ii|iríl Yiutið 21.-.jiríl 2l.ni;ii
T\ibumrnir 22.m;ii 2l.júni
kr;'.bhinn 22. jimi 2.4. juli
l. jónið 24. júli 24. jiíú'l
>lc‘> j;in 24.;li*úsl 2.4.sc-pl.
Gerðu sem minnst að
því að blanda þér í
einkamál annarra. 1
fæstum tilvikum gerir
það nokkurt gagn og
afleiðingar slikrar
afskiptasemi eru ósjald-
an bæði afdrifaríkar og
neikvæðar.
Hversdagsleikinn er að
sliga þig og þér finnst
að ekkert geti breytt
núverandi ástandi.
Stundum getur lika
verið nauðsynlegt að sjá
um allar breytingar af
eigin rammleik.
Þér gengur illa að
mynda þér skoðun á
kunningja þinum —
sem greinilega er ekki
allur þar sem hann er
séður. Sýndu aðgætni í
samskiptum en reyndu
þó að vera með
jákvæðara móti.
1 þessari viku muntu
þurfa á allri þinni
þolinmæði að halda og
ættir að kappkosta að
sýna sjónarmiðum
annarra meiri skilning
því það eru fleiri en ein
hlið á máli hverju.
Seinlæti og áhugaleysi á
ýmsum sviðum að
undanförnu kemur þér
nú í koll og þú þarft að
taka á honum stóra
þínum við að kippa öllu
I liðinn aftur af eigin
rammleik.
Vertu á verði ef einhver
kunningi biður þig um
peningalán og gættu
þess að hafa tryggingu
fyrir því að endur-
greiðslan verði á þeim
tíma sem þér hentar best
og þú óskar;eftir.
Gættu þess að gleyma
ekki gefnum loforðum,
því ella getur illa farið.
Breytingar á núverandi
högum leggjast illa í þig
en gætu orðið þér gleði-
gjafi síðar.
Spurúdrckinn 24.okl. 2.4.iio\.
Svartsýni og deyfð
sækir að þér en þar er
við engan að sakast
nema eigið áhugaleysi
og deyfð. Hertu þig upp
og líttu í kringum þig
þvi erfiðleikar þínir eru
ekkert einsdæmi.
1101*111.1011 rinn 24.00». 21.(lcs
Fjármálin eru að
komast á græna grein
ogjþér finnst tilvalið að
gera þér dagamun í
tilefni þess. Farðu
varlega i þeim efnum
því innan tíðar gæti
ástandið orðið svipað og
áður.
Slcingcilin 22.úcs. 20. jan.
Vikan verður nokkuð
góð í heildina en til þín
eru gerðar miklar kröfur
og þér finnst oft að þú
munir ekki rísa undir
þeim mikið lengur.
Þetta hefst með þolin-
mæði og ódrepandi
áhuga.
\alnsbcrinn 2l.jan. I'í.fcbr.
Miklar deilur eru í
uppsiglingu og því betra
að halda dómgreindinni
á réttum kili. Dragðu
ofurlítið i land því ekki
er öllnóttúti ennog
þú getur komið þínu að
þótt siðar verði.
Fiskarnir 20.fcbr. 20.mars
Flýttu þér ekki um of í
sambandi við allar
meiriháttar ákvarðanir
þvi það gæti valdið þér
ófyrirsjáanlegu tjóni.
Eitthvað sem hvilir
mjög þungt á þér snýst
til betri vegar innan
skamms.
34 VlKati 19. tbl.