Vikan - 08.05.1980, Page 43
Erlent
Umdeildur banki f Bandaríkjunum:
MÁ BJÓÐA ÞÉR
NÓBELSBARN?
honum eins og hann var. Það ylli
honum vonbrigðum að Peter yrði ekki
tengdasonur hans. Jafnvel þó að Owen
hefði aldrei sagt það beinum orðum vissi
Peter að hann hafði vonast til þess. En
Susan var manneskja sem sýnt hafði svo
tkki varð um villst að ekki var pláss fyrir
Petenjlífi*hennar.
Hins vegar var nóg rúm i huga
Janetar og Karenar. Hjá þeim myndi
hann finna þá ástúð sem lífið aldrei fyrr
hafði getað boðið honum. Endir
Auðvitað gerðist þa8 i'Ameríku. Og
auðvitað var hugmyndin runnin undan
rifjum auðugs iðjuhölds. Menn verða að
hafa efni á að láta sér detta svona lagað i
hug. Robert J. Graham heitir maðurinn.
74 ára gamall, tvikvæntur og faðir 8
bama og hann hefur nú látið aldar
fjórðungs gamlan draum rætast. Hann
hefur opnað sæðisbanka, ekki neinn
venjulegan, heldur sæðisbanka þar sem
innistæðurnar eru eingöngu fengnar frá
nóbelsverðlaunahöfum. Robert J.
Graham bjóst við að fá hrós fyrir
tiltækið og hugvitssemina og það fékk
hann reyndar þó ekki væri það I miklum
mæli því þeir voru fleiri sem gagnrýndu
fyrirtækið og töldu hugmyndina á bak
við það alls ekki viðeigandi.
Linus Pauling, nóbelsverðlaunahafi i
efnafræði 1954 og handhafi friðarverð-
launanna 1962. hafði eftirfarandi urn
málið að segja: — Enn sem komið er
þykir mér gamla góða aðferðin við að
þúiþtij Jiom ákjt'Kanlegn og Jxhri.en þessi.
Max Delbuck, nóbelsverðlaun I
lifeðlisfræði 1969, sagði: — Maðurinn er
fífl. Burton Richter, nóbelsverðlaun I
eðlisfræði 1976, tók undir: — Alveg út I
hött! Dr. Robert Holly, nóbelsverðlaun I
læknisfræði 1969: — Það sem mér þykir
undarlegast I þessu máli er að saklausar
konur skuli verða gerðar að tilrauna-
dýrum I þessu skyni. Arthur Kronberg,
nóbelsverðlaun I læknisfræði 1959,
sagði: — Þetta er slæmur kostur, úrtakið
er allt of lítið — kosturinn hreint ekki
góður. Owen Chamberlain, nóbels-
verðlaun I eðlisfræði 1959, bætti við: —
Það er fjöldinn allur af snjöllu fólki I
veröldinni sem aldrei hefur fengið
nóbelsverðlaun. Forsvarsmenn bankans
ofmeta gildi nóbelsverðlauna i þessum
skilningi.
Fram að þessu hafa aðeins þrír
nóbelsverðlaunahafar tekið jákvætt
undir hugmyndir Grahams og gefið
sæði. Tveir þeirra vilja ekki láta nafns
sins getið en sá þriðji er William
Shockley, sjötugur að aldri, en hann
fékk nóbelsverðlaunin I eðlisfræði árið
1956.
Robert J. Graham segir sjálfur að
ætlun sín sé alls ekki sú að hefja
framleiðslu á ofurmennum heldur
einungis að stuðla að fæðingu skapandi
og gáfaðra einstaklinga sem ella hefðu
ekki litið dagsins ljós.
Milljónamæringurinn Robert J.
Graham er nú 74 ára gamall: — Engin
ofurmenni, aðeins skapandi
einstaklingar sem ella hefðu aldrei
litið dagsins Ijós.
Skop
Stjána finnst leiöinlegt að þú skulir
ekki geta komið.
Hvort er ég að fara á fætur eða að
hátta?
Ég er víst búinn að drek'ia einum
of mikið — ég get ekki borgað
síðasta glasið!
Ég er alltaf að segja honum að vera
ekki að rífast um stjórnmál við
rakarann sinn.
Viltu vera svo vænn að vekja mig
með þessu í fyrramálið.
19- tbl. Vikan 43