Vikan - 08.05.1980, Side 63
möguleikarnir aukast með
árunum, því þá verður
vinnukrafturinn eftirsóknar-
verðari fyrir viðkomandi sveita-
heimili.
Pennavinir
Kath Robson, Tunstall 7 Blind l.ane,
Chester-Le-Street, Co-Durham DH3
4AF, Scotland, er gift kona sem hefur
mikinn áhuga á frimerkjasöfnun og vill
þess vegna komast i bréfasamband við
einhvern hér á landi.
Edward Bright Ellis, A 78/4 Gegem
Street, Cape Coast, Ghana, er 19 ára
strákur. Áhugamál: knattspyrna. tónlist.
ferðalög og sjómennska.
Paa Younger, Post Office Bo\ 1012,
Cape Coast. Ghana, er 20 ára.
Áhugamál: sjómennska. knattspvrna og
tónlist.
Sherman Forgotch, No. 2, 1255
Pandora Street, Victoria V82 4B0.
Canada, er 30 ára. fæddur hér á landi en
fluttist ungur til Kanda. Vill skrifast á
við Isleninga. aldur og kyn skipta engu
máli.
Ilarold F. Almond, Route nr. I, Bo\ 56,
Fort Pierce, Florida, 33450 LJSA,
tiltekur ekki aldur en tekur fram að
hann sé hvítur og vilji skrifast á við
islenskar konur (aldur skiptir ekki málil.
Hefur áhuga á dýrum. myntsöfnun.
frimerkjum og Ijósmyndun.
Andreas Maurer, 5401 Waldesch,
Schulstrasse 7, W-Germany. Áhugamál:
Sund. körfubolti og frímcrkjasöfnun. 15
ára.
Gisle Digernes, Dvesvei 28, 4000
Stavanger, Norge, er 33 ára verkamaður
með alhliða áhugamál. Vill skrifast á við
islenskar konur á aldrinunt 25-30 ára.
Masayuki Ashida, Kotobuki Manshion
nr. -8, Minanti -11, Nishi -18 Chuo-Ku,
Shpporo- Shi, Hokkaido, Japan, er 16
ára menntaskólancmi. en hann á
fjöldann allan af vinum sem vilja
skrifast á við islenska unglinga.
Katya Pratico, Via Palaz/.o 110 A,
24100 Bergamo, Italia, er 18 ára stúlka
sem vill skrifast á við stráka á sania
aldri.
I.uis Angel Lorente, C/Huertas 60-4 B,
Madrid 14, Spain, er blaðamaður sent
vill skrifast á við íslenska stelpu.
Franco Bernardi, Plotone Bomandi R.R.
3 Gruppo Lavoia F.ava Leria Eas Ugo
Polonio, Merano, Bolzano, Italia, er 22
ára og vill skrifast á við stelpur á sama
aldri.
Scott Righetti, Rt. 3, Bo\ 267, San l.uis
Obispo, California, 93401 USA, er 22ja
ára. Áhugamál: tennis. golf. skokk og
cins er hann að læra rússnesku.
Dr. John Sanjean, Bo\ 453, Modesto.
CA. 95354 USA, er visindamaður sem
hefur sérstakan áhuga á landslags
Ijósmyndun og listum. Hann vill komast
i bréfasamband við islenska konu, ekki
eldri en 40 ára.
Alvin Guerrca, 2130 Jacocks Lane, Ft.
Worth, Te\as 76115, USA, er 34 ára
af frönskum og spænskum ættum og vill
skrifast á við einhleypar konur á
aldrinum 23-30 ára. Stundar stjarnfræði.
steinasöfnun og smásagnaritun i
lómstundum.
Ilanna Mellemsether, Postho\ 159,
7001 Trondheim, Norge, er 21 ársogvill
komasl i bréfasamband við heiðarlegan
og sjálfstæðan íslending sem er orðinn
tvitugur. Áhugantál: fólk. tónlist.
samfélagið og innihaldsrikt lífl
Gerd Hamer, Solherg, 3093 Hillestad,
Norge, er fertug húsmóðir og spyr hvort
íslensk stalla hennar hefði áhuga á að
skrifa henni.
Tor de Caspary l.a Nesto, Glm. Dr. vei
282 C, 1370 Asker, Norge, er 21 árs og
vill einungis skrifast á við konur á aldr-
inum 18-30ára.
Milton Linhelstein, 15 Vincent Street,
Chemart, New Jersey 07105 USA, vill
skrifast á við íslenska karla og konur.
Margrél Guðbjornsdóttir, Birkilundi
10,600 Akureyri, er 13 ára og óskar eftir
pennavinum á aldrinunt 12-13 ára.
Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
Áhugamál: Iþróttir. skíði. teikningar og
margt fleira.
Sigríður St. Kristinsdóttir, Hliðartúni 9,
780 Hdfn Hornafirði, er 12 ára og óskar
að komast i bréfasamband við stelpur i
Vestmannaeyjum. á aldrinum 1113 ára.
Áhugítmál margvisleg og mynd fylgi
fyrsta bréfi ef hægt er.
Anna Kristjánsdóttir, Steinnýjarstdðum,
545 Skagaströnd, er 14 ára og vill
skrifast á við krakka á aldrinum 14-15
ára. Áhugamál hennar eru margvisleg.
Mynd fylgi fyrsta bréfi.
Margrét Þórey Magnúsdóttir, Gils-
bakka 28, 710 Seyðisfirði, er 9 ára og
vill skrifast á við stelpur og stráka á
aldrinum 9-10 ára. Mvnd fylgi fyrsta
bréfi.
Sólrún Sigurjónsdóttir, Hofi, Öræfum,
785 Fagurhólsmýri, óskar eftir að
skrifast á við stráka og stelpur á
aldrinum 10-11 ára.
Tatiana Remperová, Stred II B-5, 050
01 Revúca OKR. Roznava, Czechoslova-
Kía (CSSR), er 16 ára stúlka og vill eign-
ast pennavini á Íslandi. Skrifar á þýsku.
Margrét Anna Hlöðversdóttir, Álfheim-
um 28, 104 Reykjavík, 11 ára, og Berg-
lind Steffensen, Álfheimunt 30, 104
Reykjavik, 12 ára. vilja eignast
pennavini á aldrinum 10-13 ára.
Áhugamál: Skiði. skautar. ferðalög og
borðtennis. Mynd fylgi fyrsta bréfi.
Kathlyn Berkerley Henderson, Houchins
Farm Flat, Coggeshall, Clochester,
F.sse\, C06 IRT, England, UK, er 24 ára
Skoti en býr í Essex þar sem hún lcggur
stund á nám fyrir MA-próf í ameriskum
Ijóðunt. Hefur lokið BA-prófi i bók
menntum og vill skrifast á við hvern
þann sem áhuga hefur á Ijóðum. Ijós-
myndum. bókalestri. málun og þar fram
eftir götunum.
Bert Overheek, Wilhelminastraat 33,
8019 AJ /wolle, Holland, er tvítugur
rithöfundur. hefur mikinn áhuga á
Islandi og vill komast i bréfasanthand
við fólk á aldrinum 19-26. Hann skrifar
ensku og stingur upp á að skrifað verði
um popptónlist. stjórnmál. trúniál.
löndin tvöog klassiska tónlist cða jass.
Annika Andersson, Bjdrkángsgatan 10,
Kinnarp, 52100 Falkdping, Sveriga, er
ellefu ára og vill skrifast á við stúlku á.
sama aldri. Hún hefur mikinn áhuga á
hcstum og hvers konar dýrum.
Jorunn Rdssaak, Gaupeveien 17, 8500
Narvik, Norge, sendir engar frekari
upplýsingar um sig. en af skriftinni að
dæma er hún u.þ.b. tólf ára.
Willy Bcrntsson, Blomskog, 67200
Árgáng, Sverige, er tólf ára og vill
skrifasl á um alla mögulega hluti við
stráka og stelpur á sama aldri.
. . . en ég verð að læra líka
Halló kæri Póstur.
Ég nenni ekki að vera með neinn formála á þessu. Ég
ætla bara að skvera mér strax i vandamálið og ég vona að
þú getir nú hjálpað mér.
Éger 16 ára og á nokkuð marga vini. Sumir eru í skóla
og aðrir ekki. Þeim finnst gott að heimsækja mig því pabbi
og mamma láta okkur alveg i friði og ég á stórt herbergi (og
góðar hljómfutningsgrœjur!) En það er bara eitt vandamál.
Ég er í skóla og mig langar til að standa mig vel. En til þess
verð ég að lesa. Ég er enginn kúristi eða svoleiðis en ég
verð að læra fyrir hvern dag ef ég á að standa mig í
prófunum. Og þá er komið að vandamálinu. Þau hanga hjá
mér öll kvöld og kannski langt fram eftir nóttu og ég get
ómögulega lært og sagtjá og nei við þau samtímis. Ég hef
reynt að tala um þetta við þau og biðja þau um að hringja
áður eða eitthvað, fara fyrr eða koma seinna, en það
gengur ekki. Þau gera það í stuttan tíma og svo byrjar sama
sagan aftur.
Ég vil ekki missa vinskapinn, alls ekki. Mér þykja þau
ferlega skemmtileg öll saman og ég get ekki bara hent þeim
út því þau eru jú vinir mínir.
Hvernig í fjáranum á ég að snúa mér í þessu, kœri
Póstur. /('veðjur frá aumingja mér.
Það er ekki um neitt annað að ræða fyrir þig en taka þig
saman í andlitinu og gera harðar ráðstafanir til þess að ná ein-
hverjum árangri. Samt sem áður þurfa aðgerðirnar ekki að
vera mjög áberandi og hægur vandi er að fara fínt í hlutina.
Til dæmis getur þú reynt að vera ekki heima á ákveðnum
tímum, byrja á því að læra á öðrum stöðum en í herberginu
þínu, svo erfitt gæti reynst að ná til þín. Þegar þú kemur heim
úr skólanum skaltu vinda þér strax í heimaverkefnin svo sem
allra mestu sé lokið fyrir kvöldið og þegar mjög mikið er að
gera er ekki um annað að ræða en hreinlega læra á öðrum stað
á heimilinu og láta foreldrana segja að þú sért því miður ekki
viðlátinn og hvort þeir geti tekið skilaboð — símanúmer og
beðið þig að hringja þegar færi getst.
Með tímanum venjast þau af svo miklum og tíðum
heimsóknum og það er alls ekki nauðsynlegt að særa eða
móðga einn eða neinn.
Aðalatriðið er að sjálfsögðu að þér sé full alvara og notir
ekki vini þína sem afsökun fyrir eigin leti í úrvinnslu heima-
verkefna. Vinir þínir eru varla svo þaulsætnir og skilnings-
vana að þú lendir í miklum vandræðum með þetta ef þú raun-
verulega vilt leysa vandann og sýnir þeim að þér er fyllsta
alvara.
19- tbl. Vikan 63