Vikan - 18.09.1980, Blaðsíða 14
Erlent
Fjölskyldumál —
Ný stjarna?
Susan Anton er nafn sem nú ný-
verið skaut upp á stjörnuhimin-
inn. Hún leikur aðalhlutverkið
í kvikmynd sem ber nafnið Gull-
stúlkan (The Golden Girl) og
fjallar um gullinhærða stúlku
sem alin er upp með það fyrir
augum að verða ólympíu-
Hver var aí> tala um a»
einhverju máli? Susan Anton með vini
sínum, enska grínleikaranum Dudley
Moore.
methafi í spretthlaupi. Allar
upptökur voru gerðar í
Kaliforníu og leikarar með
Susan eru m.a. James Coburn,
Curt Júrgens og Leslie Caron.
Ekki dónaleg byrjun það!
Fæðing og hvernig fæðing fer fram er
eitt af þeim efnum sem ekki er talað
mikið um. Það er í rauninni íhugunar-
vert hvernig staðið getur á því að konur
hafa sáralítið gert að því að opinbera
reynslu sina um fæðingar. Fæðing
tilheyrir þó þeirri reynslu sem flestar
konur eiga sameiginlega og lenda ein-
hvern tímann í og hún er gjarnan sú
mesta tilfinningalega reynsla sem konur
verða fyrir. Fæðing er einnig erfið
líkamlega vinna. samfara miklum sárs-
auka, áhyggjum og sálrænni streitu.
Flestar konur tala aðeins um
fæðingar vinkvenna á milli og sem
nokkurs konar leyndarmál sem er aðeins
fyrir konur. Þessi tilhneiging til að gera
fæðingar að leyndarmáli er háð ýmsum
goðsögnum sem enn eru um fæðingar,
eins og að fæðing sé hápunktur tilver-
unnar fyrir konur, nokkuð sem sé
eðlilegast af öllu fyrir konu að fara í
gegnum, dásamleg upplifun og
þviumlíkt. Fæðing er örugglega dásam-
leg reynsla fyrir margar konur en hún er
líka mikið áfall og fjarri því að vera
dásamleg fyrir margar konur. Það eru
sennilega fleiri konur sem kviða fyrir
fæðingu og verða fyrir áfalli þegar þær
skynja sársauka fæðingarhríðanna og
erfiðleikana við að koma barninu i
heiminn en þær sem finnst að þessi
reynsla sé einungis dásamleg. Þetta á að
vísu oftar við um konur sem eru að eiga
sitt fyrsta barn en þær konur sem hafa
eignast fleiri börn. Hins vegar mótar oft
fyrsta fæðingarreynsla konu mikið og
það hvernig hún skynjar fæðingu númer
tvö er oft háð því hvernig gekk i fyrsta
skipti. Það er engin ástæða til að hræða
konur á sársauka og erfiðleikum
fæðingar þegar þær ætla að fara að fæða
i fyrsta skipti. En það er á hinn bóginn
alls engin ástæða til þess að þegja og
segja þeim ekki frá því að fæðing sé yfir-
leitt erfið líkamleg vinna, mikil sálræn
reynsla og geti valdið mörgum áfalli
sem lengi er verið að ná sér eftir. Það er
oft auðveldara að standast raunirnar
þegar maður veit að aðrir hafa reynt
svipað og komist yfir það óg að ein-
liverju leyti búið sig undir hverju von er
á.
Karlmenn og fæðingar
Það hefur vakið furðu margra að
langmest af því efni sem hefur verið
skrifað um fæðingar hafa karlmenn
skrifað. Þetta er að sjálfsögðu þeim mun
furðulegra sem karlmenn hafa enga
jarðneska möguleika á þvi að upplifa
fæðingu á eigin líkama.
\