Vikan - 18.09.1980, Side 30
Handavinna
Hnýtingar hafa orðið mjög
vinsælar á síðustu árum. Ekki
svo að skilja að menn hafi ekki i
aldanna rás hnýtt hnúta, sumir
kváðu jafnvel ekki binda bagga
sína sömu hnútum og samferöa-
mennirnir. En hnýtingar, sem
skreytilist og nytjalist, hafa verið
í mikilli sókn síðasta áratug,
jafnvel lengur, hnýtingar sem
sumir kjósa fremur að néfna
erlenda nafninu macramé, er
reyndar eldgömul iðja. Af og til
finnast i erlendum blöðum
uppskriftir að fallegum blóma-
hengjum eða þaðan af flóknari
fyrirbærum sem eiga það
sammerkt að vera HNÝTT.
Flestum þykir þessi kúnst of
flókin fyrir sig, einn og einn
kaupir sér bók um efnið og æ
fleiri fara á námskeið í kúnstinni,
svo margir reyndar að venjulega
komast mun færri að en vilja.
í þessari VIKU þótti okkur því
tilvalið að taka saman hvers
kyns efni um hnýtingar, sýna
einfalda hnúta og nokkur undir-
stöðuheilræði sem gott getur
verið að eiga, gefa upplýsingar
um hvar hægt er að komast á
Hún hefur kennt hnýtingar,
verslað með allt sem við kemur
hnýtingum og er auk þess mikil-
virk i hnýtingum sjálf. Hún leyfði
okkureinmittaðtaka myndiraf
sumu því sem hún hnýtti
sérstaklega fyrir heimilissýning-
una í Laugardalshöll.
Hnýtingar eru kannski ekki svo
ýkja flóknar, þegar til á að taka,
hægt er að vinna stykki sem
virðast býsna flókin upp úr
tveimur grunnhnútum eða svo.
En best er að brýna það strax
fyrir öllum sem ætla að fara að
spreyta sig á hnýtingum að byrja
á nógu einföldum verkefnum.
HNÝTINGAR ERU MIKIÐ
ÞOLINMÆÐISVERK, en ef vel
tekst til er árangurinn líka vel
þeirrar þolinmæöi virði. Þeim
sem hafa aðstöðu til aðsækja
hnýtinganámskeið er yfirleitt
eindregið ráðlagt að gera það.
Þar eru lika möguleikar á að
spreyta sig á fallegum en
flóknum verkefnum undir tryggri
handleiðslu sem getur komið í
veg fyrir mörg leiðinleg mistök.
En best er auövitað að sniða sér
stakk eftir vexti, það er miklu
skemmtilegra að eiga fallegt og
einfalt blómahengi en sjötugasta
part úr risastóru og flóknu vegg-
teppi. Ekki eru þó allir svo vel í
sveit settir að geta komist á
hnýtinganámskeið hvenær sem
þeim þóknast þó kvenfélögin úti
um allt land hafi nú verið nokkuð
dugleg við að finna kennara í
ýmsum greinum handavinnu til
að kenna á námskeiðum. Og þá
er alltaf reynandi að fikra sig
áfram eftir blöðum og bókum.
Þessar uppskriftir hrökkva
áhugasömum kannski skammt en
alltaf er þá hægt aðskrifa
stærstu bókaverslunum og fá
bækur um hnýtingar á norður-
landamálum eða ensku. Þær eru
flestar svo vel myndskreyttar að
auövelt er að átta sig ef maður
hefur einu sinni eitthvað fiktað
við að hnýta.
Veturinn er framundan, gott að
geta gripiö í handavinnu á
kvöldin, jafnvel yfir sjónvarpinu.
Sumir verða jafnvel svo áhuga-
samir að þeir uppgötva ekki fyrr
en þulurinn tilkynnir dagskrárlok
að þeir hafa steingleymt að horfa
á veðurfréttirnar. Og eitt enn: ef
veriö er að hnýta breitt stykki,
gardínukappa eða annaö slíkt, er
ekkert því til fyrirstöðu að öll
fjölskyldan sitji saman við þessa
iðju. Og þótt einn og einn hnútur
verði kannski öðrum lausar eða
fastar hnýttur þá er þetta nú
alltaf handavinna og gerir ekkert
til þótt ekki sé á henni
verksmiðjuáferö. En það er
auðvitað smekksatriði.
HNYT
IN6AR
eru ekki eins
erfiðar og þið gætuð
haldið
Okkur til aðstoöar i þessari
VIKU var Guðfinna Helgadóttir.
námskeið í hnýtingum og loks að
sýna þá óendanlegu fjölbreytni
sem hægt er að ná út úr
hnýtingum. Þar er tínt til það
sem markverðast þótti úr
erlendum blöðum og bókum en
megináhersla þó lögð á að sýna
hvað gert hefur verið hér á landi,
hvers konan í næsta húsi hefur
verið megnug eða sjómaöurinn á
loðnunni i vetur. Hnýtingar eru
reyndar ein af fáum tegundum
handavinnu sem ekki hefur með
góðu móti verið „tekin frá" fyrir
annaðhvort kyniö, eins og t.d.
hekl og útskuröur. Allt sem menn
hafa áður lært í hnýtingum
kemur að einhverju gagni, hvort
sem það er slaufa á skóreim-
unum eða tyrkneski poka-
hnúturinn með lykkju, sem
færustu skátar kunna. Þó er
líklegt að rembihnúturinn sé
haldbesta undirstaðan því margt
er nýtt og margt örlítið
frábrugðið því sem gagnar á
tyrkneskan poka (hvernig sem
hann nú lítur út) eða Iðunnarskó.
38. tbl. Vikan 29