Vikan - 18.09.1980, Page 63
Draumar
Valdi spaða-
sjöuna
Kæri draumráðandi!
Mér leikur forvitni á að vita
hvort þér finnst eftirfarandi
draumur merkja eitthvað:
Ég var heima hjá foreldrum
mínum og u.þ.b. 10 manns
aðrir, sem koma ekki við sögu,
og átti að fara að spila félags-
vist. Ég hélt á spilabunka og
afhenti hverjum eitt spil,
nokkurs konar aðgöngumiða.
Þá kom maður, sem heitir V.
Ég rétti honum efsta spilið I
bunkanum, sem var
spaðaþristur, en hann vildi
hann ekki, tók af mér
bunkann, valdi spaðasjöuna úr
honum og sagði eitthvað á þá
leið að þetta væri happatalan
sín (frekar en uppáhalds). Ég
varð alveg hissa á þessu og
sagði: „Hvers lags, ” þegar hann
tók af mér spilin, bjóst ekki við
þessu af manninum. Síðan var
farið að spila og sátu allir
saman við borð. Eitthvað
þurfti að skipuleggja hver
spilaði á móti hverjum, en ég
veit ekki á móti hverjum ég
átti að spila. Eini maðurinn
sem ég man eftir við borðið
heitir G. Held að V hafi ekki
verið. Seinni hluti draumsins
var miklu óskýrari. Með
fyrirfram þökk.
R.
Að sitja við spilaborð þýðir yfir-
leitt að dreymanda bjóðist innan
skamms tækifæri til að auka
tekjur sínar að mun frá því sem
áður var. Spaði í draumi tengist
oft einhvers konar leiðindum,
veikindum eða fjárhagstjóni, en
um það er varla að ræða hvað
þennan draum varðar.
Um nákvæma merkingu
þessa draums er ekki hægt að
fullyrða nema draumráðandi fái
gleggri upplýsingar en hér
fylgdu um ýmislegt sem þessu
fólki tengist í vökunni, því hér er
um greinilegan tákndraum að
ræða, sem tengist mjög sterkt
ákveðnum atvikum í vökunni.
Sennilega táknar þessi
draumur ákveðna atburði sem
verða innan skamms og ýmislegt
þar að lútandi kemur þér vægast
sagt mjög á óvart. Óhætt mun
að fullyrða að þetta tengist þér
og þínum nánustu og ef ekki
verði varlega farið muni meiri
háttar árekstrar og erfiðleikar á
næsta leiti. En fátt er svo með
öllu illt . . segir einhvers staðar
og svo mun einnig verða í þetta
skiptið.
Blómakarfa að
gjof
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi draum fyrir
stuttu, sem miglangarað fá
ráðinn. Mér fannst ég fá mjög
fallega blómakörfu að gjöf frá
manni sem er dáinn fyrir
nokkuð mörgum árum en ég
var honum ekki málkunnug.
Mér fannst þetta vera 60 ára
afmæli en nú er ég orðin 68
ára. Á körfunni voru, auk
mjög fallegra blóma, borðar,
sem voru alveg logagylltir eins
og gull á litinn, en ofan á
körfunni var pakki og þegar ég
tók hann upp var þar þriggja
álma silfurkertastjaki. Lengri
var draumurinn ekki. Með
fyrirfram þökk.
Kona úr Kefavík.
Yfirleitt táknar afmælisgjöf í
draumi að þiggjandi gjafarinnar
muni verða einhvers happs eða
heiðurs aðnjótandi og er þá
ósjaldan um endurgjald til hans
að ræða fyrir veitta aðstoð eða
greiða. Hins vegar er erfitt að
fullyrða um merkingu þessa
draums nema vita nafn
mannsins, sem í draumnum
afhenti blómakörfuna. Nafn
hans er lykiltákn þessa draums
og ræður öllu um hvort þarna er
á ferðinni mjög góður draumur
eða einhver fyrirboði slæmra
atburða.
Draumur um eitt
og annað
Elsku draumráðandi!
Ég bið þig um að ráða
þennan draum fyrir mig. Hann
byrjar svona: Ég var I strætis-
vagni og hann klessti á
eitthvað. Þegar ég kom út úr
bílnum sá ég vinkonu mína
standa þar með tvo hesta,
annar var svartur en hinn
hvítur. Hún varð samferða
mér. Við fórum yfr girðingu
þar sem hún skildi hestana eftir
og þar sá ég aðra hesta. Annar
var brúnskjóttur en hinn
brúnn. Hún spurði hvort mig
langaði á hestbak og ég sagði:
„Mig langar svo á hestbak (ég
er nýbúin að læra að sitja hest)
að ég er að drepast. ” Svo tók
hún einn hest og spurði mig
hvernig hann væri á litinn. Ég
sagði grár en hún sagði að
hann vœri hvítur. Svo gengum
við af stað en þegar við
heyrðum fótatak fyrir aftan
okkur tókum við til fótanna og
komum að hliði. Hún festist í
hliðinu af hræðslu en mér tókst
að losa hana. Við sáum tvo
stráka og beygðum til að sjá
bíóútstillingu. Þá spurðu þeir
okkur hvort við vildum koma
með þeim í bíó. Eg sagði strax
já því ég var hrifn af öðrum
þeirra en hún sagði nei. Síðan
talaði ég við hana og hún sagði
já við strákana. Þessir strákar
hétu SogJ (ég þekki þá ekki).
S bauð mér og J henni. S tók
utan um mig og J utan um
hana. Við vorum byrjuð að
vera saman. Daginn eftir
vorum við á leiðinni í skólann,
bara ég og vinkona mín. Við
fórum gegnum hliðið sem við
fórum áður út um. Þar kom ég
auga á bræður mína. Þeir
réðust á okkur. Við skriðum út
um hliðið og gengum í átt til
skólans. Við sáum strákana frá
því daginn áður sitja og borða
ís. Eg hljóp til S og bað hann
að gefa mér sleik af ísnum.
Hann sagði já. Eg kyssti hann
á kinnina fyrir og kveðjukoss.
Ég sá strákinn sem ég var
hrifin af og sá hvernig hann
horfði á mig kyssa S. Önnur
stelpa sem ég þekki og strákur-
inn eru í sama bekk. Eg spurði
hvenær hann hefði komið.
Hún sagði klukkan 6. Eg sá
síðan þá sem ég varð samferða
ganga inn í skólann. „ Við erum
orðnar of seinar, ” sagði hún.
„Ég veit það, ” sagði ég. Við
fórum úr útifötunum og ég var
að laga mig til þegar stelpan
opnaði dyrnar og kennarinn
sagði: „ Við erum búin að leysa
gátuna fyrirykkur. "Síðan lét
hún okkur fá kött sem við
áttum að lita eftir tölustöfum.
Eini tölustafurinn á kettinum
mínum var II.
Þakka þér kærlega fyrir að
birta þetta bréf.
R.G. N.G.
Þið vinkonurnar getið átt von á
viðburðaríkum vetri og líklega
mun ýmislegt sem tengist
skólanum koma ykkur á óvart.
Gætið þess að framkvæma
ekkert í fljótfærni og allar
skemmtanir í vetur geta reynst
ykkur afdrifaríkar ef ekki er
varlega farið. Þið gætuð báðar
tengst einhverjum af gagnstæða
kyninu sterkum böndum á
næstu mánuðum, en hvort þau
sambönd verða haldgóð eða
ykkur vinkonunum til góðs er
ekki hægt að fullyrða um. Til
þess er draumurinn ekki
nægilega markviss og einnig
virðast dagdraumar tengjast
ýmsum táknum þannig að ekki
verður greint á milli hvort er i
nokkrum tilvikum.
Að muna draumtölur i vöku
er yfirleitt talið dreymanda
mikið happ en þá er oftast átt
við hærri tölur. Þarna er frekar
um að ræða aðvörun og þú skalt
gæta þess að láta ekki glepjast
um of af fagurgala og er þar
einkum átt við kunningja af
hinu kyninu.
* *
Jæja, nú ertu að minnsta kosti kominn
með svarta beltið.
38. tbl. Vikan 63