Vikan - 11.12.1980, Síða 2
Margt smátt
Viðskipta-
þrillar
Kannski ný bókmenntagrein verði
íslenskum rilhöfundum áhugaefni á
næstu árum. Danskur bókaklubbur
boðar þessar nýju bókmenntir innan
tiðar og fylgir kynningunni úr hlaði með
þessari málsgrein:
...við höfum áhuga á þvi að gefa
út bækur í þeim tilgangi að sjá ykkur
fyrir afþreyingu og skemmtun — en eru
jafnframt úr þvi unthverfi sem tengist
ykkar daglega amstri í vinnunni. Þær
eiga að vera spennandi, efnisríkar og
gerast i þvi umhverfi sem þú þekkir
sjálfur af eigin raun eða i umhverfi sem
hefur áhrif á daglega áætlanagerð þina.
— fiármálaöflin eða stjórnmálaöflin i
heiminum.
Þess vegna höfum við i huga bækur
sem . á gamansaman eða ádeilukenndan
liátt gerast I viðskiptaheiminum, sögur
sem fjalla unt mikilvæg málefni viðskipt-
anna og endurminningar eða ævisögur
þekkts fólks úr fjármálaheiminum."
Því miður gerir þessi bókaklúbbur
ekki betur en að gefa fyrirheit um þetta
heillandi lesefni og segir að þó
bókmenntir af þessu tagi séu staðreynd I
hinum engilsaxneska heimi sé ritun
þeirra á bernskuskeiði á Norður-
löndunum. Svo meðlimum bóka
klúbbsins verður enn um sinn haldið í
helgreipunt efans, en hver veit nenia úr
rætist innan skamms og Danir fái að
njóta viðskiptaþrilla eins ogengilsaxar.
19 örugg ráð til
að drepa . . .
nýjar hugmyndir
1 Við höfum reynt þetta áður.
2 Þetta er of dýrt.
3 Þetta er utan mins verkahrings.
4 Hér er ekki timi til að sýsla við
svona hluti.
5 Þetta er alltof róttæk breyting.
6 Við skulum halda okkur við
jörðina.
7 Því aðbreyta? Þetta gengur jú
eins og það er.
8 Þú ert auðsjáanlega tveim árurn á
undan tímanum.
9 Þaðererfittaðkennagömlum
hundi að sitja.
10 Ekki svo slæm hugmynd, en ófrarn-
kvæmanleg.
11 Það verður hlegið að okkur.
12 Farðu nú ekki að tala um þetta
aftur.
13 Erekki réttaðsetja nefnd i málið?
14 Hefur þetta verið reynt annars
staðar?
15 Eigunt við ekki að kanna þetta
nánar áður en lengra er haldið?
16 Þetta blessast aldrei.
17 Svona breytingar eru of þungar i
vöfum.
18 Þetta mun aldrei borga sig.
19 Við höfum alltaf gert þetta svona.
.. allt er á hverfanda hveli, síöan páfi leyföi prestum að gifta sig ..
2 Vikan SO.tbl.
Hvar er
Breiðholt
????
» • ■ ■
Reykvíkingur var spurður að því al
sveitunga sínum hvar Breiðholt væri. Sá
fyrrnefndi leit á spyrjandann. forviða
yfir fávisku hans. „Nú. það er auðvitað
þarna uppfrá — uppi í Breiðholti.
Vissulega má til sanns vegar færa að
Breiðholt sé I Breiðholti. Breiðholt er
ibúðahverfi i suð-austur Reykjavik. lEða
er Reykjavík I norð-vestur hluta
Breiðholts?) Bærinn sem hverfið er
kennt við stóð þar sem gróðrastöðin
Alaska stendur. Hins vegar vita ef til vill
færri að Breiðholt er líka annars staðar i
Reykjavík. Hús með því nafni er við
Hringþrautina neðanverða rétt hjá
Sölufélagj garðyrkjumanna. I Villinga-
holtshreppi í Árnessýslu er enn fremur
bær sem nefnist Breiðholt. Auk þess bera.
að minnsta kosti 7 bæir viðsvegar um
landið nafnið Árbær — en það er nú allt
önnur saga.
Ekki goðgá að
geta Goðgár
Ef það vefst fyrir einhverjum hvaða
hópur er hér á ferðinni skal það upplýst
að hér er á ferðinni nýendurreist
hljómsveitin Goðgá.
Hljómsveitin er tveggjaára unt þessar
mundir en meðlimir hennar að líkindum
eitthvað eldri og innan um eru þar á ferð
þekkt nöfn. Nægir þar að nefna Mjöll
Hólni, sem sér um sönginn. Menn
minnast sjálfsagt laganna sern hún söng
fyrir nokkrum árum, Mamie Blue og
Jón er koniinn heim. Sitthvað nýtt niun
á ferðinni hjá Goðgá og þau leggja
áherslu á létta og hressilega dansmúsík
og eflaust niunu niargir heyra i þeini á
næstunni.
„Tvöföld merk-
ing"
Lausnarorðið í „Tvöföld merking''
var „samheiti".