Vikan - 11.12.1980, Qupperneq 4
Texti: Þórey Ljósm.: Ragnar Th.
Snið og teikn-
ingar á bls. 60
Jóla-kerling úr striga
i kerlinguna þarf: Veggfóður-
striga í búkinn, vattkúlu (2,5 cm í
þvermál) í haus, efnisbút i
svuntu, filtefni í sjal og skuplu,
tágar í handleggi, balsamviðar-
bút í kerti og gullpappír í loga,
fíngert garn í fléttur.
Búkurinn er teiknaður á
veggfóðurstrigann með penna
eða tússi og klippt eftir
strikunum( notið ekki uppáhalds-
skærin þvi þetta getur farið illa
með þau). Strigastykkið lagt
saman að aftan eins og
kramarhús — heft saman að
aftan. Vattkúlan er lituð aðeins
með blautum tepoka til að fé á
hana húðlit. Gatiö á kúlunni er
stækkað aöeins með blýanti, lím-
borið og hausinn límdur á. Hand-
leggirnir eru úr mjóum tágum, 8
cm. Tágarnar eru vættar aðeins
og beygðar varlega. Tvö göt eru
gerð í búkinn með blýantsoddi og
tágunum stungið í (e.t.v. má nota
pipuhreinsara í staðinn). Svuntan
er klippt út, rakið úr neðst og
límd á. Hárið er fléttað úr um 30
cm löngum þráðum 9-18 stk. eftir
grófleika. Fléttan er límd á
hausinn. (Kerlingin til vinstri er
á þessu stigi.) Sjal og skupla eru
sniðin úr filtinu (ath. að nota
ekki tússpenna á filt). Klippt
aðeins upp í sjalið. Skuplan er
fest með límdropa ofan á
hvirfilinn og undir „hökuna".
Sjalið límt saman að framan.
Kertið er gert úr balsamviöarbút
4-5 cm. Gert er far ofan í bútinn
með nöglinni, kertaloginn
klipptur úr með smáhaki sem
fester í rifuna. Einnig má setja
þurrkuö blóm og strá í fangið á
kerlingunni. Og þá er hún klár.
Föndrað og
föndrað til jóla
J
HVAR FÆST FÖNDUREFNI?
í jólaskrautið sem hór er sýnt er notað margs
konar efni. Það kann að vefjast fyrir einhverjum
hvar slíkt efni er fáanlegt. í versluninni Handíð
við Laugaveg 26 í Reykjavík fengum við þær
upplýsingar að þar fengist allt jólaföndurefni, þar
á meðal tágar, balsamviður, föndurpípuhreinsarar
og fleira. Vattkúlur og filt fæst og víðar.
Tveir litlir tappar með jóla-
sveinahúfur
Efni: Korktappar, 5 cm langir,
vattkúlur, 2.5 cm í þvermál,
rautt filt, svartir föndurpípu-
hreinsarar, tágar, hvítur lérefts-
bútur. Húfurnar sniðnar og
klipptar, saumaðar saman að
aftan. Dúskur (sem klipptureraf
tilbúnu dúskakögri) saumaður í
toppinn. Vattkúlurnar málaðar
með blautum tepoka. -Þegar
þær eru þurrar eru augu,
nef og munnur máluð
4 Vikan 50. tbl.