Vikan - 11.12.1980, Síða 6
klippt út. Efnisbútarnir sniðnir.
Fallegast er að hafa hjörtun öll
sitt með hverju mynstrinu. Efnis-
hjörtun þrædd saman tvö og tvö
á róttunni, um 1 1/2 cm frá brún.
Skiljið eftir gat til að fylla.
Dralonkemba er hér notuð sem
fylling, en einnig má nota vatt,
bómull o.fl. Gætið þess að troða
ekki of miklu. Strigahjörtun eru
límd saman utan um kantinn á
efnishjörtunum og spotti límdur
á milli þeirra og til að hengja
upp.
Jólasveinar róla sór: Órói
Grindin og rólurnar eru gerðar
úr tágum. Þær eru látnar í bleyti
í um 10 mínútur. Tágarnar í
hringinn eru um 70 cm langar.
Þær eru tvær saman snúnar og
beygðar varlega, límt saman
með málaralímbandi. Rólurnar
eru úr um 30 cm löngum tágum.
Þær eru beygðar varlega og
bundnar saman. Jólasveinarnir
eru búnir til úr föndurpípuhreins-
urum og vattkúlum. i fjóra þarf 3
stk., 50 cm langa. Tveimur er
skipt i tvennt en einum í fernt.
Vafið með tvöföldum plötulopa.
Fyrst hálsinn, þá annar hand-
leggurinn, síðan hinn, bolurinn,
annar fótleggurinn, þá hinn og
loks bolurinn aftur þar til hann
er orðinn sæmilega þykkur.
Vattkúla, 2,5 cm í þvermál, lituð
með blautum tepoka, er notuð
fyrir haus. Búknum er þá stungið
upp i gatið á kúlunni. Best er að
gera það áður en farið er að
vefja. Fötin sniðin og saumuð.
Hár úr lopakembu límt á kollinn
og síðast húfan. Rólurnar eru
festar með böndum við hringinn.
Þau eru höfð það löng aðeinnig
megi nota þau til að festa óróann
upp. Kötturinn er saumaður úr
svörtu filti. Rófan er úr svörtum
föndurpípuhreinsára sem snúið
er upp á og stungið í köttinn.
Bandspotti er þræddur efst i
hann og bundinn saman með
upphengiþráðunum.
6 ViKan 50- tbl.