Vikan - 11.12.1980, Blaðsíða 7
Jólaföndur
ÞRIR KATIR
DAGAR
Hér á dögunum tókst blaða-
þiaður Vikunnar á hendur verk-
efni nokkurt og hvíldi mikil leynd
yfir. I anda sannrar rann-
sóknarblaðamennsku brá hann
sér á vettvang viðkomandi
atburða. Undir hálffölsku yfir-
skyni komst blaðamaður inn í
innsta hring málsins og kynntist
af eigin raun hvernig slíkir hlutir
fara fram. Hér er um að ræða jóla-
föndurnámskeið Heimilisiðnaðar-
skólans, Laufásvegi 12,
Reykjavík. Tók blaðamaður
þátt í fyrsta námskeiði vetrarins.
Nemendur voru 8 konur en því
miður fjölmenna karlmenn ekki
á námskeið af þessu tagi.
Jólaföndurnámskeiðin hafa um
langt skeið verið árviss atburður
hjá Heimilisiðnaðarskólanum.
Kennt er þrjá daga, þrjá tíma í
senn, ýmist morgna, kvöld eða
um miðjan dag. Undir góðri
leiðsögn er tekist á við sex verk-
efni á meðan á námskeiðinu
stendur. Sumir hlutirnir eru
ákaflega einfaldir en aðrir
flóknari, Nemendurnir voru
misjafnlega fingrafimir og höfðu
ekki allir jafnmikla reynslu á
þessu sviði. Engu að síður tókst
öllum að Ijúka með glæsibrag því
sem sett var fyrir. Á jólaföndur-
námskeiðinu ríkti gáski og einlæg
sköpunargleði. Það var ekki
erfitt að komast í sannkallað
jólaskap, jafnvel þó nóvember
væri þá rétt nýbyrjaður. Sumar
höfðu á orði að þær vildu taka
forskot á gleðina og byrja jólin
strax!
Hvað væru jólin án undir-
búningsins? Ef ekki er farið út í
öfgar varðandi bakstur og
hreingerningar getur desember
orðið einn ánægjulegasti
mánuður ársins. Fórnið nokkrum
smákökusortum fyrir föndur-
stund og hafið börnin með í
ráðum.
Á meðfylgjandi myndum sést
árangúr þessa ánægjulega
verkefnis. Teikningar og vinnu-
lýsingar fylgja með fyrir
lesendur að spreyta sig. Góða
skemmtun.
Þöra Trygg vadóttir lölðbeinandi.
50. tbl. Vlkan 7