Vikan - 11.12.1980, Page 21
Verkalýðsmál
Við fjariœgari enda borðtina sátu
var vandað til valsins á stofnendum
Samtaka uni vestræna samvinnu og
félagið hefur verið fremur fámennt frá
upphafi. Félagasöfnun hefur aldrei
tiðkast hjá samtökunum heldur koma
þeir til starfa sem áhuga hafa.
Um miðjan nóvember síðastliðinn
gengust samtökin fyrir fundi ,.um
alþjóðaverkalýðsmál. með sérstöku
tilliti til atburðanna og ástandsins i
Póllandi”. Þangað kom Edwald J.
McHale, aðalráðgjafi bandarísku
upplýsinga- og menningarmálastofn-
unarinnar í verkalýðsmálum.
McHale kvaðst ekki mundu taka
pólitíska afstöðu i erindi sínu og
tilsvörum, enda væri þetta ópólitískur
fundur. Hann rakti síðan sögu
bandaríska verkalýðsforingjans Samuel
Gompers, sem gekkst fyrir stofnun
bandarísku verkalýðssamtakanna A. F.
L. Gompers varð sem verkalýðsforingi
alþjóðlega þekktur sem ihaldsmaður.
A. F. L. runnu siðar saman við C.I.O.
og mynduðu nokkurs konar Alþýðu-
samband Bandaríkjanna.
Því nsest rakti McHale alþjóðleg
samskipti bandarískrar verkalýðshreyf-
ingar og lagði áherslu á að efla þyrfti
sambandið milli íslenskra og
bandariskra verkalýðssamtaka. Hann
sagði að framan af hefði verkalýðs-
hreyfingin í Bandaríkjunum þegið
aðstoð Kommúnistaflokks Banda-
ríkjanna, en í síðari heimsstyrjöldinni
hefði afstaða þess flokks opnað augu
verkalýðsins. Utanríkisstefna
Kommúnistaflokksins hefði verið
augljóst framsal sovéskrar utanrikis-
stefnu. Sama hefði gilt um verkalýðs-
félög þar sem kommúnistar hefðu haft
ítök.
Loks skýrði McHale fundarmönnum
frá tilurð alþjóðlegra verkalýðs-
samtaka. þeirra á meðal International
Labor Organisation (ILOl sent
Bandarikin höfðu sagt sig úr en
gerðust aftur fullgildir meðlimir i á
þessu ári. McHale sagði ennfremur að
AFL-CIO gengjust fyrir ýmiss konar
námskeiðum fyrir verkalýðsleiðtoga frá
öllum heimsálfum. Mestu fjármagni sé
í því skyni varið til Suður-Ameríku.
Ekki sagði McHale að ætlunin væri að
flytja út bandaríska stjórnarháttu.
þetta væri ekki trúboðsstarf, heldur
væri fræðsla aðeins veitl ef beðið væri
um hana af heimamönnum. I V
Pétur Bjömsson, Hannes Hólm-
stejnn Gissurarson, Pöll Heiflar
Jónsson, Björgvin Vilmundarson,
Hörflur Einarsson og fleiri.
Meflal fundarmanna voru Hreggvið-
ur Jónsson, Jónína Michaelsdóttir,
Bjarni Jakobsson, Magnús Þórðar-
son, Héðinn Finnbogason,
Guðmundur H. Garðarsson, Kristjén
G. Gíslason, auk nokkurra Banda-
rikjamanna.
50. ebl. Vlkan XI