Vikan - 11.12.1980, Blaðsíða 22
Texti: Guðfinna Eydal
Oft er rætt og ritað unt upplausn
hjónabandsins og aukningu skilnaða.
Menn hafa gjarnan ýrnsar áhyggjur í þvi
sambandi. ekki síst vegna þeirra
afleiðinga sem rofin fjölskyldutengsl
geta haft á uppeldi og líðan barna.
Vandantál í santbúð. skilnaður að borði
og sæng. og lögskilnaður. tilheyra orðið
þeini rnálunt sent nær hver einasta fjöl-
skylda þekkir eitthvað til, annaðhvort al'
eigin reynslu eða einhverra nákominna
ættingja eða vina. Leikmenn og lærðir
velta oft fyrir sér hver sé orsök siaukinna
skilnaða. Enginn hcfur algjörlega
tæmandi skýringu á þeirri þróun en
benda má á nokkra áhrifaþætti sent
taldir eru hafa áhrif á skilnaðartölur.
1 Almenn afstaða gagnvart skilnaði
hefur breyst og það er ekki lengur
álitið siðferðislega rangt að skilja.
2 Það er ekki álitið jákvætt að fólk búi
saman og haldi saman ef sambúðin
er „slæm”, heldur ekki ttótl unt börn
séaðræða.
3 Efnahagsleg staða kvenna og aukið
sjálfstæði þeirra i þeint efnunt hefur
haft verulegáhrif á aðstöðu þeirra til
aðslíta santbúð.
4 Breytingar á hlutverkum kynja.
Konur gera auknar kröfur um
þátttöku karlntanna í uppeldi og hús-
haldi og krefjast oft ákveðinnar
vinnuskiptingar á heimili.
5 Fjölskyldan hefur ekki sama gildi og
áður. þar sem santfélagið hefur yfir-
tekið mörg af fyrri starfssviðum
hennar.
6 Aðstæður i samfélaginu geta
valdið þvi að fjölskyldan á erfitt
uppdráttar og stuðlað að upplausn
hennar, t.d. húsnæðismál, almenn
lánapólitík, kaup og kjör.
dagvistunarmál o.fl. o. fl. Það getur
reynst fjölskyldu of mikið álag að sjá‘
um að innra jafnvægi haldist innan
fjölskyldu þegar ytra álag verður of
ntikið.
7 Samfélagsbreytingar sem stuðla að
22 Vikan 50. tbl.
röskun fjölskyldu, t.d. ef einn fjöl-
skyldumeðlimur verður að sækja
vinnu langt frá heimili um skentmri
eða lengri tinta. hafa áhrif á skilnaði.
8 Það virðist hafa áhrif á aukningu
skilnaða ef fólk giftir sig ntjög
snentma.
9 Ef starfsmenntun er ólokið jregar
fjölskyldan eignast barn getur það
orsakaðskilnaðseinna meir.
10 Slænt efnahagsleg afkoma fjölskyldu
og erfiðleikar við að takast á við
efnahagslegan vanda sem stofnun
hjónabands leiðir til.
11 Þegar stofnun hjónabands er eins
konar flótti frá foreldrum i jreim
tilgangi að upplifa nýtt og betra líf,
sem byggist á þvi að sambúðar-
aðilinn eigi að uppfylla allar kröfur
og óskir sent foreldrarnir gátu ekki
uppfyllt, getur það verið viss orsök
skilnaðar.
Hvernig verður upplausn
sambúðar?
Viðbrögð einstaklinga við skilnaði eru
jafnmörg og einstaklingarnir. Til er að
fólk geti leysl upp sambúð án þess að
það valdi því ntiklu hugarangri. og er
það gjarnan bæði háð þvi hvers vegna
var stofnað til sambúðar i upphafi og
hvers vegna sambúðin siðan leysist upp.
Langflestir reyna hins vegar svefnlaus-
ar nætur, langvarandi rifrildi og
tilraunir til að reyna einu sinni enn eða
aðeins lengur áður en skilnaður
verður að raunveruleika. Ekki er heldur
óalgengt að aðilar hafi notað langan
tíma til að reyna að iiaida sambúðinni
við og t.d. flutt hvort frá öðru unt tínia
ogsíðan reyntaftur.
Oft dregur það skilnað á langinn að
annar aðilinn er ósáttur við hann og
finnst hann vera algjör endir á lífinu.
Viðkomandi finnst þá gjarnan að illa
hafi verið farið með hann. traðkað sé á
honum, hann sé fyrirlitinn og honunt
úthýst. Skilnaður skilur oft annan
aðilann eftir i hjálparleysi og angist unt
hvað framtíðin eigi eftir að bera i skauti
sér og hræðslan unt að verða yfirgefinn
og einmana leitar gjarnan á hugann.
Hvernig er unnið úr
árekstrum?
Oft heyrist sagt: „Maðurinn er ekkert
nema vaninn." í þessari staðhæfingu
leynist sannleikskorn. þar sent mannleg
hegðun stjórnast oft af ýmiss konar
venjum og reglum sem hafa verið lærðar
þegar i bernsku. Einstaklingurinn hefur
hins vegar oftast gleymt því að hann
hafi nokkurn timann lært þessar venjur
eða reglur, hvort sem þær eru æskilegar
eða óæskilegar fyrir hegðan og liðan
hans — þær eru ómeðvitaðar eins og
það er stundum kallað. Venjur og reglur
sem móta einstaklinginn eiga hins vegar
ekki einungis við joað sem einstaklingur-
inn tekur sér fyrir hendur heldur einnig
við niargt af því sem hann segir. hugsar
og orðar daglega.
Flestar af þeim venjum sem við
berum i okkur og móta lif okkar sem
fullorðinna hafa orðið til mjög snemrna
eða fyrir skólaaldur. Þessar venjur
höfurn við fengið i arf frá foreldrum
okkar og við berum þær i okkur og
höldum áfram að móta eigin börn með
svipuðum venjum. Margar venjur sem
móta líf fullorðinna hafa verið til sem
nokkurs konar óskráðar reglur eða lög i
fjölskyldu þeirra, reglur um hvernig ætti
Upplausn
hjóna-
bandsins