Vikan - 11.12.1980, Qupperneq 27
Vlðtal Vlkunnar
Hljómsveit Björns R. Einarssonar í
Listamannaskálanum árið 1950.
Fremri röð frá vinstri: Gunnar
Ormslev, Vilhjálmur Guðjónsson,
Gunnar Egilsson, Bjöm R. og Árni
Elvar við píanóið. Aftari röö frá
vinstri: Jón „bassi" Sigurðsson,
Guðmundur R. Einarsson á trommur
og Jón Sigurðsson með trompetinn.
Hljómsveitin spilaði í 2-3 ár i Lista-
marmaskálanum og gerði mðda Udcu
Þeir voru lika dálitlir byggðastefnu-
menn í tónlistinni strákarnir og fóru
um Vestfirði og háldu hljómleika og
dansleiki.
Vígalegir kúrekar á Borginni.
Myndin er tekin 1960-61 af Hljóm-
sveit Björns R. eins og hún þá var
skipuð. Foringinn sjálfur er fremstur,
þá koma Ragnar Bjarnason, Gunnar
Ormslev, Guðjón Ingi Sigurðsson,
Kristjón Magnússon og Sigurbjörn
Ingþórsson.
Svona litu þeir út fálagamir i
Hljómsveit Bjöms R. sem spiluðu á
Borginni um hríð. Myndin er tekin
árið 1959 og andlitin eru vel þekkt.
Neðsta röð: Kristján Magnússon t.v.
og Ölafur Gaukur. Miðröð: Guðjón
Ingi Sigurðsson t.v. og Bjöm R.
Aftasta röð: Ragnar Bjarnason t.v.
og Árni Egilsson.
vorum lika um hrið ráðnir til að spila i
Breiðfirðingabúð.
Og útvarpið, ekki má gleynta því. Það
átti nefnilega ekki minnstan þátt í að
gera lifandi tónlist hátt undir höfði.
Ríkisútvarpið var með hljómsveit á
sínunt snærum og sendi út tónlistarþætti
viku- og hálfsntánaðarlega. í þá daga
spiluðunt við djass i beinni útsendingu i
útvarpi. Bjarni Böðvarsson var lika nteð
stóra hljómsveit í útvarpinu.
Eins og þú sérð er þetta ekki santbæri-
legt við það sem við þekkjunt í dag:
Diskótek út um allt og ntegnið af tónlisl
í útvarpinu af plötum."
Hefur fylgt Sinfóníunni frá
upphafi hennar
Björn R. Einarsson hefur verið nteð i
Sinfóníuhljómsveit lslands frá því hún
var stofnuð árið 1950 og hefur þvi hreint
ekki verið viðeina fjöl felldur í tónlistar-
legum skilningi.
„Auk þess sem ég hef áður nefnt um
tónlistarnám lærði ég að leika á píanó
hjá manni sem kom til íslands fyrir
1950. Hann hét og heitir Wilhelm
Lansky Otto og var útskúfaður frá
Danmörku fyrir að hafa spilað fyrir
þýska offísera í Danmörku. Lansky Otto
var stórkostlegur hornleikari og af
honum lærði ég ntikið. Hann er nú
búsettur i Svíþjóð og kont til íslands
ásanit syni sínunt i fyrra. Þeir feðgar
héldu ágætis konsert í Norræna húsinu.
Ég fór líka til Bandaríkjanna og var
þar i námi i þrjá mánuði hjá básúnu-
leikaranum Gordon Pulis sem spilaði i
New York-filharmóniunni. Tónfræði
lærði ég hjá Róbert Abrahant
Ottóssyni.”
Og þú tókst þátt í stofnun
Sinfóníuhljómsveitarinnar?
„Já. Kjarninn sem myndaði hljómsveit-
tna hafði spilað lengi sarnan áður. mcðal
annars í Tripolibíói. Þetta var lalsvert
átak. en ríkisútvarpið hjálpaði
Sinfóniunni af stað. Það hafði sitt uð
segja. Við æfðum í Góðtemplarahúsinu
við Vonarstræti og héldum tónleika í
Þjóðleikhúsinu.
Draumurinn var i upphafi að stofna
Sinfóníuhljóntsveit ÍSLANDS, en hann
hefur aldrei ræst. Hljómsveilin er
alþjóðleg en ekki íslensk. þriðjungur
hljóðfæraleikaranna er útlendingar.
Það hefur þvi miður ekki verið lögð
nægileg rækt við að byggja upp íslcnska
hljómsveit.”
Hljómsveitin til Þýskalands
og Austurríkis að vori
Því er stundum haldið fram opinber-
lega að Íslendingar hafi ekki efni á að
reka Sinfóníuhljómsveit, að mikill
minnihlutahópur vilji halda henni gang-
andi og að skattborgarar greiði niður
aðgöngumiðaverðið fyrir þennan minni-
hlutahóp. Skyldi Birni R. ekki sárna að
heyra slíkan málflutning um
hljómsveitina og klassíska tónlist?
„Nei, nei,” svaraði hann að bragði.
„Mér sárnar jafnvel ekki að heyra níð
unt Sinfóniuna. Ég hef bara gantan af
rifrildi!
Satt er það. segja má að við spilum
fyrir fiskiféð. Spurningin er bara þessi:
Eigurn við að skoða alla hluti út frá
kaldri peningahyggju? Eigunt við að
leggja niður Sinfóníuhljómsveitina og
tónlistarskóla landsins til dæmis?
Ég held ekki. Innst inni finna alvöru-
menn að þetta er menning. Sinfóniu-
hljómsveitin verður örugglega aldrei
lögð niður."
Er ekki nær að tala unt Sinfóniu-
hljómsveit Reykjavíkur en Sinfóníu-
hljómsveit tslands þegar tekið er tillit til
50. tbl. Vikan Z7