Vikan - 11.12.1980, Blaðsíða 30
Jólamyndirnar í ár
Vikan kynnir það sem von er á í kvikmyndahúsum
borgarinnar
Að vanda kynnir Vikan lesendum sínum jólaglaðning
kvikmyndahúsanna í ár. Ljóst er að von er á ýmsu góðu en
mjög var misjafnt hve vel kvikmyndahúsin voru birg af
kynningarefni um nefndar myndir þegar Vikan fór í vinnslu.
í stað þess að miða kynninguna við það kvikmyndahús sem
erfiðast átti með að láta kynningarefni í té tókum við þann
kost að kynna hverja mynd fyrir sig eins vel og við gátum,
innan skynsamlegra marka þó, til að veita lesendum eins
góða þjónustu og okkur er unnt. Við erum ekki að dœma
myndirnar, ekki að gæðaprófa þær, aðeins að safna saman
upplýsingabrotum, öðrum til glöggvunar.
Það er skemmtilegt til þess að vita að á góðu er von alls
staðar og flestir ættu að geta fundið eitthvað viö sitt hæfi,
sumir eflaust sitt af hverju. . . ,
Goða skemmtun!
30 Vikan 50. tbl.
TÓIMABÍÓ
Hárið eða
Manhattan?
tveir kostir — en góðir
„Viö erum auðvitað bjartsýnir,” segir
Ingvi Þór Amarson hjá Tónabíói þegar
grennslast er fyrir um hvort stereo-
samstæðan sem verið er að setja upp
komist i gagnið fyrir jól. „En við höfum
í bakhöndinni aðra ntynd og ekki síðri,
ef Hárið og stereoið komast ekki í gagnið
fyrirjól.”
Þetta umrædda Hár kemur kannski
einhverjum kunnuglega fyrir eyru. Og
mikið rétt, það er hið eina sanna Hár
sem flæktist út um allt fyrir áratug.
Hárið sem Leikfélag Kópavogs sló í gegn
með í Glaumbæ sáluga í Reykjavík.
Hárið sem fjallaði um hippana og
svoleiðis forngripi. Og það sem best er,
kvikmyndin Hárið virðist hafa náð því
að verða ný og fersk i þessari mynd
Milosar Forman og samstarfsfólks hans.
Svo er að minnsta kosti að heyra á
erlendum gagnrýnendum.
Hárið verður sem sagt á ferðinni i
Tónabíói ef allar áætlanir standast um
uppsetningu nýju hljómflutnings-
tækjanna. 1 kjölfarið koma svo fleiri
kvikmyndir sem njóta sín eingöngu í
góðu stereoi. Nægir þar að nefna
Apocolypse Now.
Bakhandartrompið er ekki af verri
endanum. Ef tækin komast ekki upp
fyrir hátíðarnar verður Manhattan jóla-
mynd Tónabiós. Þar er Woody Allen á
ferð með mynd sem kölluð hefur verið
endurbætt útgáfa af Anny Hall. Sú
mynd hefur fengið verðlaun og viður-
kenningu viða um Evrópu, Bodil-
verðlaunin íDanmörkuog i Frakklandi
var hún kosin besta erlenda myndin.
Hún er bandarísk að uppruna, ekta
Woody Allen að svo miklu leyti sem
hægt er aðalhæfa um þann mæta ntann.
í nýjustu myndinni kvað hann nefnilega
draga dár að öllu og öllum og takast vel
upp. En Manhattan er sem sagt búin að
fá sinn dóm og hann góðan.
Einhvern tíma á seinustu dögum fyrir
jól verður gátan ráðin: Hver verður jóla-
myndin í ár í Tónabíói. En við getum
verið bjartsýn eins og þeir i Tónabiói.
Woody Allen tekst alltaf afl koma
sór I neyðarlegar kringumstœður
(Manhattan).
Eiginlega átti þetta að vera ósköp
virflulegt bofl. Treat Williams dansar
(úr Hórinu).