Vikan - 11.12.1980, Blaðsíða 34
LAUGARÁSBÍÓ
XANADU-
œvintýri í
Laugarásbíói
„Nei, þetta gengur ekki,” segist
Grétar Hjartarson forstjóri Laugarás-
bíós hafa sagt þegar hann sá myndina
Xanadu í fyrsta skiptið — í mónó. Samt
sem áður er myndin alveg prýðileg, það
var ekki það. En hún er hreinlega byggð
upp á stemmningunni sem góður hljóm-
burður getur komið til skila. Xanadu er
músikmynd og ævintýramynd og tónlist
ELO (Electric Light Orchestra) þarf að
fá að njóta sín til fullnustu.
Sem betur fór sá Grétar myndina i
réttu Ijósi, eða réttara sagt heyrði í
réttum hljómi og síðan var ákveðið að
setja upp „dolby”-kerfi i Laugarásbíói.
Svo um jólin ættu gestir Laugarásbíós
að geta notíð tónkræsinga framleiddra á
fullkomnasta hátt. 12 hátalarar um allan
sal og flókið kerfi að tjaldabaki sjá til
þess.
Og auðvitað verður kerfið ekki tekið
niður þegar sýningu myndarinnar
Xanadu lýkur. Síður en svo.
Endurnýjun af þessu tagi mun vera
mjög I takt við timann og fleiri myndir í
„dolby” væntanlegar. Og það er kannski
athyglisvert að fleiri en poppunnendur
munu njóta góðs af því óperan Don
Giovanni mun væntanleg í fullri lengd
og hljóðsett í „dolby" og hver veit nema
menn geti mætt sparibúnir á óperu-
sýningu I Laugarásbíói.
Kvikmyndin Xanadu er söngva- og
ævintýramynd, lögin úr henni hafa
hljómað í íslenskum eyrum lengi vel,
Olivia Newton-John sem syngur sig inn í
hjörtu ungra og aldinna syngur titillagið
og leikur aðalhlutverkið. Mótleikari
hennar er reyndar enginn annar en
Gene Kelly, sem er ekki að upplifa sína
fyrstu söng- og dansmyndavertíð. Hann
hefur nefnilega komið við sögu ýmissa
kvikmynda í gegnum árin og ekki
alls fyrir löngu sýndi sjónvarpið einmitt
eina þá allra sígildustu, Singing in the
Rain.
En nú er önnur öld, ekki kannski eins
angurvær. og kvikmyndin Xanadu var
auðvitað sniðin í takt við timann. Við
ætlum auðvitað ekki að fara að rekja
efni myndarinnar hér, en það ætti þó
engan að saka að vita að það er mjög í
anda ævintýra og rúlluskautaæðis. Og
svo óskum við bara bíógestum góðrar
skemmtunar.
HÁSKÓLABÍÓ
Airplane
Jólamynd Háskólabíós verður að
þessu sinni „AIRPLANE”. Hún segir
frá flugi Trans American 209 frá Los
Angeles til Chicago. Flugmaðurinn fær
matareitrun, sömuleiðis aðstoðar-
flugmaðurinn og stór hluti farþeganna.
Einn farþeganna tekur að sér að lenda
flugvélinni, með hjálp flugstjórnar-
manna á jörðu niðri.
Hljómar þetta kunnuglega?
Það hlýtur að gera það! Þvi þetta er
uppskriftin að mörgum „stórslysa-
myndum" sem sýndar hafa verið við
metaðsókn síðustu árin. — En
„Airplane” er að þvi leyti ólík þeim „stór-
slysamyndum”sem fram hafa komið, að
hún gerir stólpagrín að þeim öllum
saman. Og tekst bara vel að því
Lundúna-dagblöð herma, en þar hefur
myndin verið sýnd fyrir fullu húsi síðan í
haust.
Myndin er hugarfóstur þeirra félaga
Jim Abrahams, David Zucker og Jerry
Zucker, sem áður hafa unnið saman við
gamanmyndina „The Kentucky Fried
Movie”. Framleiðandi er Jon Davison,
en stjórnandi myndatöku er Joseph
Biroc. Hann ætti að vera öllum hnútum
kunnugur um áhrifaríka myndatöku stór-
slysamynda. Hann vann nefnilega
óskarsverðlaun fyrir myndatöku í
„Towering Inferno” sem sýnd var í
Laugarásbíói fyrir nokkrum árum.
GAMLA BÍÓ
Drekinn
hans Péturs
Það má með sanni segja að barnaefni í
kvikmyndahúsum borgarinnar sé smánar-
lega lítið og lélegt. Eitt kvikmyndahús
hefur þó nokkra sérstöðu í þessum
efnum. Það er Gamla bíó sem sýnir eins
og áður barnamynd um jólin. Hún
nefnist Drekinn hans Péturs og er
ævintýramynd með söngvum. Myndin
er bæði leikin og teiknuð, gerð af Walt
Disney félaginu 1977. Með aðalhlutverk
fara Sean Marshall (sem leikur Pétur),
söngkonan Helen Reddy, Mickey
Rooney, Jim Dale, Red Buttons og
Shelley Winters. Leikstjóri Don
Chaffey. Drekinn hans Péturs fjallar um
munaðarleysingjann Pétur og vin hans
drekann. Drekinn er gæddur þeim eigin-
leika að geta flogið, horfið og birst að
vild. Pétur og drekinn lenda i ýmsum
ævintýrum, koma hvor öðrum i smá-
klandur og hjálpa hvor öðrum. Ekki er
vert að rekja söguþráðinn. Allt bendir til
að hér sé á ferðinni hin fjörlegasta
mynd. Góð og saklaus skemmtun fyrir
börn, foreldra, afa, ömmur, frænkur og
frændur.
34 Vlkan f o. tbl.