Vikan - 11.12.1980, Síða 36
Ernst Backman er fæddur og uppalinn á Akranesi.
Hann flutti til Reykjavikur 10 ára gamall á árinu
1961. Ernst hóf nám vió Myndlista- og handíöa-
skólann i Reykjavik árið 1968 og útskrifaðist sem
auglýsingateiknari árið 1972.
Um haustið hélt Ernst til Stokkhólms þar sem
hann stundaði nám i iðnhönnun (industriell
formgivning) þar til hann útskrifaðist sem
iðnhönnuður frá Konstfackskölan I Stokkhólmi.
Hvernig fór námið fram við Konstfackskolan?
— Þetta var svo til einvörðungu verklegt nám.
ég byrjaði til dæmis á að hanna tannbursta.
Það er ekki eins og gengið sé beint í að hanna
eitthvert fallegt form á tannbursta. Okkur var
fyrirlagt að svara fyrst ýmsum grundvallar
spurningum varðandi hönnunina. Byrjuðum við
þess vegna á gagnasöfnun varðandi tannburstun
og tannbursta. Við ræddum við og fræddumst af
tannlæknum og öðrum sérfræðingum og
söfnuðum öðrum faglegum fróðleik viðkomandi
tannburstun. Síðan var pælt í einstökum hlutum
tannburstans, eins og afstöðu burstans til hand-
fangsins, hve langt handfangið þyrfti að vera, af
hvaða gerð hárin gætu verið og svo framvegis.
Eftir þessa undirbúningsvinnu. sem tók lólu
verðan tíma, var byrjað að gera skissur að tann-
burstum eins og þeir gætu orðið, síðan unnin upp
og prófuð módel af tannburstum. Þá voru
módelin endurbætt og loks lá endanlega útgáfan
fyrir.
Á sama hátt unnum við mörg önnur verkefni:
brauðrist, tölvuskerm, baðherbergisinnréttingu,
skrifstofuhúsgögn, lampa af ýmsurn gerðunt,
eldhússtól, og þannig mætti lengi telja. Eitt sinn
fengum við verkefni sem simafyrirtækið L. M.
Ericson fjármagnaði, það var að hanna símtæki
með símtóli sem hægt væri að festa með spöng
yfir höfuðið,
Ég vann einnig fyrir sænska sjónvarpið, gerði
módel af senum vegna sjónvarpsgerðar Töfra-
flautunnar. Sú mynd hefur verið sýnd hér i
sjónvarpinu og er eftir Ingmar Bergman.
Hefurðu fengið vinnu við þitt hæfi hérlendis?
— Nei, það er nú ekki hægt að segja það.
Kannski get ég að einhverju leyti sjálfum mér um
kennt, en samt held ég að það sé afar takmarkað
að framleiðendur leiti til fagmanna um hönnun á
iðnaðarverkefnum.
Mestan áhuga hefði ég á að vinna við iðn-
hönnun. Ég hef gaman af að vinna að þess
36 Vikan 50. tbl.
háttar verkefnum og fylgja þeim eftir alveg
þangað’ til farið er að framleiða hlutinn. Ég er til
dæmis núna að vinna að hönnun svamphúsgagna
og hef lagt fyrstu tillögur fyrir framleiðandann.
Hann hefur gert sínar athugasemdir og nú er ég
að endurvinna tillögurnar og breyta þeim til
samræmis viðóskir framleiðandans.
En því miður hef ég aðeins fengið einstök verk-
efni við iðnhönnun og aðallega unnið fyrir mér
meðauglýsingagerð.
Og plötuumslag Utangarðsmanna flokkast
undir auglýsingateiknun?
— Já, ég þarf alls ekki að kvarta yfir að hafa
ekki nóg að gera við auglýsingateikningu. Ég hef
að undanförnu hannað plötuumslög fyrir Steinar
hf., það fyrsta var umslagið fyrir plötu Oylfa
Ægissonar og félaga. Meira salt.
Yfirleitt hlusta ég fyrst á tónlistina sem verður
á plötunni og reyni síðan að ná stemmningunni
fram á plötuumslaginu. Það var mjög skemmtilegt
að vinna umslagið fyrir Meira salt.
Sjónvarpskvikmyndin og Ijósntyndirnar voru
unnar saman i stúdiói. Fyrir einskæra tilviljun
hafði ég fundið niðri við höfn flatbytnuna sem við
notuðum. Hana skírðum við Halastjörnuna. í
stúdióinu voru hengd upp ský. sem hægt var að
hreyfa til, öldurnar voru festar á stengur og ýtt
fram og til baka. Ég stóð við kýraugað og skvetti
vatni á það og hafði líka langa stöng til að rugga
bátnum.
Fyrir plötu Utangarðsmanna höfðum við
ákveðið i sameiningu að miða umslagið við eitt
laganna, Hiroshima. Ég lagði siðan til að á
bakhliðinni væri sprengjan sprungin og ekkert
annað að sjá en geislavirk jarðnesk efni. Þannig
varð til nafnið á plötunni, Geislavirkir.
Siðan teiknaði ég skissur að framhlið
umslagsins og Friðþjófur Helgason tók svart-
hvitar Ijósmyndir af Utangarðsmönnum I stúdíói.
Ég skeytti svo myndina sem varð fyrir valinu
saman við Ijósmynd sem sýnir Reykjavík og
Suðurnesin. Að því loknu litaði ég myndina og
notaði sérstakan úðunarpenna, en þeirri grafísku
aðferð hef ég beitt talsvert mikið að undanförnu.
Þú miölar líka af þekkingu þinni?
— Ég kenni auglýsingateiknun við Fjölbrauta-
skólann i Breiðholti, alls 18 kennslutima á viku. 1
vetur hafa verið hjá mér 20 nemendur af lista- og
viðskiptasviðum að læra leturgerð, auglýsinga-
uppsetningu. myndbyggingu og fleiri undirstöðu-
atriði auglýsingateiknunar.