Vikan - 11.12.1980, Blaðsíða 40
leiðslunni þurrkaður og síðan
sendur til tígulsteinaverksmiðju
í nágrenninu. Hjá þeirri verk-
smiðju er kaffiúrgangurinn
notaður sem eldsneyti í ofnana,
og þessi samvinna hefur tekist
svo vel, að margir erlendir sér-
fræðingar hafa heimsótt fyrir-
tækin til að kynna sér þessa
úrgangsnýtingu.
Ávaxtabændur í Vestur-
Þýskalandi hafa tekið að nýta
þann hita sem myndast við starf-
rækslu kæligeymsla fyrir
ávextina. Hitinn sem myndast
við kælingu 3,3 milljóna tonna
af eplum í Hamborg nýtist til að
hita upp 1200 einbýlishús nær
allan veturinn. Kælikerfin þurfa
ekki að ganga í miklum kulda-
köstum, og þá tekur olíuhita-
veitan við.
Margar mjólkurkælivélar eru
þannig úr garði gerðar, að hitinn
sem stafar frá kælingunni nýtist
til að hita vatn. Úr 60 mjólkur-
kúm er hægt að fá með þessu
móti 900 lítra af 60 gráða heitu
vatni. Sami fjöldi nautgripa
nægir með sama móti til að hita
upp heilt íbúðarhús.
Nýting húsdýraúr-
gangs
Nautgripir, svín, hænsn og
önnur húsdýr framleiða mikla
orku. Rannsóknarstofnun
nýræktarbýla við háskólann í
Hannover hefur komist að þeirri
niðurstöðu að þarlendis sé í hús-
dýraáburði jafngildi 3 milljarða
lítra af hráolíu. í þessum
náttúrlega áburði er sama
magn og sett er í jörðina af
helstu efnum í tilbúnum
áburði, svo sem köfnunarefni,
kalium og fosfóri. Ástæðan er sú,
að gripirnir neyta mjög mikils
fóðurbætis sem erlendum gjald-
eyri hefur verið eytt i. En þessi
verðmæti náttúrlegi áburður
nýtist afar lítið og mengar bara
vatnið þar sem dýrin hafast við.
Öll þessi vandmál má leysa í
einu. Mykju-, orku- og um-
hverfisvandamálin væri hægt
að leysa með lyktarlausri gerjun
skepnuúrgangsins. Nota mætti
sýkla við að brjóta niður ómelt
næringarefnin og önnur lífræn
hráefni. Tvenns konar afurðir
fást þannig: annars vegar öflug-
ur áburður og hins vegar lífrænt
gas.
Loftframleiðsla sýklanna —
einkum metangas — líkist jarð-
gasi, gefur frá sér mikinn hita
Reglubræðurnir hjá klaustri
einu í Vestur-Þýskalandi
nýta nautgripina vel. Á efri
myndinni sést bróðir
Bierwirt fyrir framan tvo
turna þar sem mykjan úr 160
nautgripum er látin gerjast.
Afurðin er lífrænt gas sem
notað er til að hita, elda mat
og knýja rafal.
að endurnýta orku, í stað þess
að brenna henni burt eins og til
dæmis á sér stað við notkun
olíu, jarðgass og kola. Árlega
vex á jörðinni þvílíkt magn af
jurtum, að fræðilega séð væri
hægt að nýta 200 milljarða
tonna af þurrum gróðri (til
dæmis timbur og hey). í þessu
magni felst tífalt meiri orka en
mannkynið notar árlega. Vissu-
lega væri aðeins hægt að nýta
smáhluta af þessum risa-
birgðum, en jafnvel í efnahags-
lega vel stæðu landi eins og
Vestur-Þýskalandi misferst
nýting jurtaleifa og dýraúr-
gangs, einkum vegna þekkingar-
skorts og vöntunar á tækni.
Meginhluti nýtilegs úrgangs af
þessu tagi fer forgörðum. Sé
haldið áfram með Vestur-Þýska-
land sem dæmi, þá fer þar til
spillis orka sem jafngildir 3-4
milljónum tonna af brennslu-
olíu, og er það meira en árleg
olíunotkun í þarlendum land-
búnaði. Raforkuver sem
brenndu jurtaleifum voru fyrr á
árum aflögð í Hessen-fylki í
Vestur-Þýskalandi, vegna þess
að mengunarvarnir þóttu
ónógar. Á tímum kjarnorku-
vera ætti ekki að vera mikill
vandi að koma í veg fyrir
mengun frá strábrennsluverum.
Samstarf tveggja fyrirtækja
nálægt Bremen í Vestur-Þýska-
landi hefur sannað gildi þess að
nota jurtaleifar. Áður var 2500
tonnum af úrgangi frá kaffiverk-
smiðju einni ekið beint á haug-
ana. Núna er svarbrúnn úr-
gangurinn frá kaffiduftsfram-
4* Vlkan 50. tbl.