Vikan - 11.12.1980, Side 45
þegar ég tala við menn þá vil ég að mér
sé svarað, sagði Hangikjötið og var
þúinn að æsa sig upp.
Hann gekk nær Sigga og ýtti snöggt
við öxl hans. Það var dauðaþögn. Ein-
hversstaðar heyrðist lyftarinn skrölta.
Það var eins og lamið væri með hamri
taktfast á brjóstið á mér.
— Svaraðu helvítis homminn þinn,
sagði Hangikjötið enn reiðari og lamdi
fastar í öxl Sigga. Siggi-Súpermann
hrautafturábak.
— Hann e-e-er að fara að mí-mí-miga
á sig aftur, stamaði Hálfvitinn. — Ha-
ha-hann er meiri aumingi en Stebbi.
Hálfvitinn flissaði og Hangikjötið hló.
— Þ-þ-þeir riða ...
Og þá gerði ég nokkuð sem kom sjálf-
um mér á óvart. Ég veit varla enn þann
dag í dag hvað kom yfir mig. Án þess að
hugsa hjólaði ég í Hangikjötið. Hangi-
kjötið var svo hissa að hann var næstum
bjánalegur í framan þar sem hann Iá i
sandinum. En hann var ekki eins hissa
og ég. Hann barðist um en ég hélt
honum niðri og ég fann að ég var
sterkari. Ég hafði ekki hugmynd um
hvernig ég átti að losna úr þessari klípu.
Ég var orðinn verulega hræddur. Ég sá
varla hópinn i kring. Hangikjötið
barðist um bólginn I framan.
— Hvað er að þér helvítið þitt, hvað
hef ég gert þér, ertu orðinn vitlaus
Stebbi, sagði hann hvað eftir annað og
reyndi að hrækja framan í mig.
— Viltu lofa því að hætta ef ég sleppi
þér, spurði ég og án þess að bíða eftir
svari stóð égáfætur.
Hangrkjötið spratt upp og gaf mér
einn á kjaftinn og ég fékk blóðbragð I
munninn. Ég fékk annað högg á nefið og
það kom undarleg fýla, líkust lykt af blá-
grýti úr nefinu. Þá heyrði ég rödd sem ég
kannaðist við. Það var pabbi.
— 1 hann Stefán, í hann drengur,
láttu ekki fara svona með þig. 1 hann
drengur.
Ég stökk á Hangikjötið og náði strax á
honum haustaki og kom honum undir
eftir mikið brölt. En ég var samt skít-
hræddur.
— Ég bað þig að hætta, sagði ég.
Hangikjötið reyndi að hlæja.
— Viltu lofa þvi að hætta ef ég sleppi
þér, másaði ég i eyra Hangikjötsins.
Hangikjötið hreyfði hausinn játandi.
En ég var ekki fyrr kominn á fætur en
hann réðist aftur á mig.
— Þú lofaðir að hætta, sagði ég.
— 1 hann Stefán, kallaði pabbi. —
Láttu ekki þennan greifa fara svona með
þig-
Hópurinn var orðinn stór. Ég sá
Sveitamanninn. Ég fékk högg I magann.
Mig verkjaði í vöðvana.
— Halda honum frá þér með vinstri,
ekki opna þig svona Stefán, kallaði
pabbi.
Ég barði Hangikjötið í brjóstið og
skallaði hann einn á nefið. Hann datt
afturábak og ég þrusaði í annað lærið á
honum. Mig verkjaði svo í vöðvana að
það var eins og þeir brynnu. Ég skutlaði
mér ofaná Hangikjötið og byrjaði að
lemja hann í fésið af öllum kröftum.
— Gefstu upp, stundi ég.
Hann svaraði ekki og ég barði hann
aftur og aftur. Hann slöngvaðist um á
milli lappanna á mér.
— Gefstu upp, helvítið þitt, hvæsti ég.
Ég barði og barði og fann hnefana renna
í blóði. Ég lamdi og lamdi. Ég reyndi að
hitta hann á kjaftinn. Berja úr honum
helvítis tennurnar. Allt í einu var tekið
undir hendurnar á mér og mér kippt á
lappir. Það var pabbi.
— Svona Stefán, þú ert búinn að
vinna drenguf, það er engin ástæða til
að þjarma svona að honum, hann er
kominn með fossandi blóðnasir, getiði
ekki jafnað málin fíflin ykkar án þess að
berja hvor annan til blóðs.
Hangikjötið reis á fætur blóðugur og
grenjandi af vonsku. Hann slagaði.
— Hver var að biðja þig um að skipta
þér af þessu, auminginn þinn, ég skal
drepa þig, helvítis auminginn þinn. Ég
skal drepa þig. Ég skal drepa þig.
Pabbi leiddi mig fram sundið I átt að
afgreiðsluskúrnum. Hálfvitinn kom
hlaupandi á eftir okkur.
— D-djöfull ba-ba-bakaðirðu hann.
Það hvein í nefinu.
Ég gekk inná klósettið og þvoði mér á
meðan pabbi fór inn til afgreiðslumann-
anna. Ég heyrði hann lýsa slagnum. Ég
þvoði af mér blóðið. Nefið var rautt og
þrútið. Neðrivörin sprungin. Ég var svo
máttlaus að ég gat varla staðið svo ég
settist á klósettið og lokaði að mér. Ég
hafði aldrei unniðslag áður. Ég var bæði
hræddur og glaður. Þeir skyldu bara
reyna að vera með stæla við mig.
Ég gat samt varla sofnað fyrir
áhyggjum um kvöldið. Hvað ef Hangi-
kjötið æsti nú alla strákana uppá móti
mér? Undir morgun dottaði ég loks. Mig
dreymdi að ég var að drösla stórum
hvítum poka um allan bæ. Ég gat hvergi
losnað við hann. Svo opnaðist pokinn í
annan endann og hausinn á t ■
mömmudattút. k i
fO.tbl. Vlkan 45