Vikan - 11.06.1981, Blaðsíða 4
umargc
UTANLANDSFERÐ
FYRIRTVO:
Verðmætasti vinningurinn er
tvímælalaust utanlandsferð
fyrir tvo. Verðmæti hans er 12
þúsund krónur. Sá heppni
getur valið um þrjá staði:
Marbella, Mallorka eða
Lignano. En hvert sem hann
kýs að fara fer hann með
ferðaskrifstofunni Útsýn sem
er trygging fyrir því að hann
fær það besta sem í boði er á
hverjum stað.
Mallorka er sá staðurinn af
þessum þrem sem flestir
íslendingar þekkja. Mallorka
hefur í áratugi verið vinsæll
sólarstaður landans — og ekki
aðeins hans því árlega sækja
þrjár milljónir ferðamanna til
Mallorka. Og þrjár milljónir
manna geta ekki verið að ana
tóma vitleysu árlega.
Mallorka er ein þriggja
spánskra eyja í Miðjarðarhafi
sem ganga undir samheitinu
Baleareyjar — eða Kastaraeyjar
á íslensku. Nafnið er til komið
af því að íbúar eyjanna til
forna voru snillingar í að nota
slöngvu sem vopn — og veitti
ekki af því eyjarnar voru þá
strax orðnar vinsælar — sem
viðkomustaður sjóræningja!
Þótt eyjan sé ekki stór er
hún mjög fjölbreytt og flestir
geta fundið þar eitthvað við
sitt hæfi. Landslag er mjög
breytilegt og einkar fallegt.
Þessi litla eyja hefur ótrúlega
mikið fjalllendi og akurlendi
er þar líka mikið. Sá sem
ferðast um hana, til dæmis á
bílaleigubil, á eftir að kynnast
mikilli náttúrufegurð, auk
þess sem hann rekst jafnt og
þétt á nýjar og nýjar
baðstrendur. Þarna er að
finna ýmsar fornminjar og
margvislegar. Skemmtanalíf er
með miklum blóma og mann-
lífið margvíslegt. Þeir sem
vilja góðan mat og góð vín
eiga auðvelt með að finna það
sem þeir leita að. Og þeir sem
vilja versla eiga völ á margvís-
legum búðum, eða þeir geta
skipt við götusala og markaðs-
sala þar sem engin kaup eru
gerð nema rækilega hafi verið
prúttað áður.
Það þarf því engum að
leiðast á Mallorka. Þeir sem
vilja sýsla við eitthvað hafa
nógu úr að velja. Þeir sem
vilja njóta hvildar og afslöpp-
unar geta tæpast valið betri
stað. Og Útsýn sér um að
gististaðurinn verður eins og
best verður á kosið. Þess
vegna er um að gera að vera
með og taka þátt í Sumar-
getraun 1981. Leikurinn er
skemmtilegur og lika til
nokkurs að vinna.
Sólarlandaferð
fyrir tvo
Reiðhjól
Bakpokar
Kassettutæki
Ferðaviðtæki
Ferðarakvélar
4 Vikan 24. tbl.