Vikan - 11.06.1981, Page 38
Fimm mínútur meö Willy Breinholst
Þýð.: Anna
Öllu gamni
fylgir
nokkur alvara
Þegar ég var ungur hafði ég
ákveðnar skoðanir á hjóna-
böndum. Ég flokkaði hjóna-
bandið nákvæmlega þannig:
Samansett af karli, konu og
tveim þrælum: alls tveir ein-
staklingar. Og ég leit svo á að
menn giftu sig til þess eins að
deila þeim áhyggjum sem þeir
höfðu ekki þegar þeir voru
piparsveinar með einhverjum
öðrum!
Ég hélt staðfastlega við þá
skoðun að hjónabandið væri
happdrætti þar sem karlmaður-
inn legði frelsi sitt undir og
konan siðsemina og upp kæmu
tóm núll.
Þegar ég var ungur fannst
mér piparsveinalífið vera eina
lífsformið sem gæti gert mann
hamingjusaman. Ekkert pils
kæmi mér á krókinn. KONUR
voru mér ekki annað en það
sem skrifað stóð fyrir utan
kvennaklósettið. Konur voru
furðuleg fyrirbæri sem
dönsuðu afturábak. Ég átti mér
mína staðföstu, óumbreytan-
legu, ákveðnu skoðun á öllu
kvenkyninu. Ég var fæddur
piparsveinn, holdgervingur
stéttarinnar . . . hélt ég þá.
Það eina við piparsveinalíf
mitt, sem mér gekk illa að
sætta mig við, var uppþvott-
urinn. Ég reyndi allt hugsanlegt
til að gera þennan þátt
tilverunnar eins litla plágu á
mér og mögulegt var. En án
sýnilegs árangurs. Hvert sem ég
sneri mér og kom diskunum
mínum undan þá rann sú stund
alltaf upp þegar ég fann ekki
einn einasta hreinan disk í
eldhússkápnum í litlu pipar-
sveinaíbúðinni minni. Ekki
einn einasta hreinan gaffal,
ekki einn einasta hreinan bolla,
pott eða pönnu. Stund uppþvott-
arins var runnin upp og annars
óhagganlegt piparsveinaeðli mitt
var lítt beysið. Það var engin
undankomuleið — ég varð að
binda svuntuna á magann og
leggja til atlögu við
vaskinn og uppþvottaburstann.1
Það tók marga klukkutíma að;
komast til botns í fjallháum
stöflunum — klukkustundir
voru rifnar úr annars glöðu
piparsveinalífi mínu. Tímum
kastað á glæ, rétt eins og
uppþ vottavatninu.
Ég varð að lengja tímann
milli uppþvottadaganna. En
hvernig fór maður að þegar
maður átti bara tólf grunna
diska og tólf djúpa? Jú, það
var hægt að fá sér annað tólf
manna matarstell og þvo upp á
24 daga fresti. Eða hvað um að
fá sér þrjú hræódýr tólf manna
stell í viðbót og fresta þessum
ömurlega degi um heila 48 daga í
framtíðinni?
Ég framkvæmdi þessa
bráðsnjöllu hugdettu. Ég rauk
niður í skranbúðina á horninu
og keypti þrjú matarstell af
ódýrustu gerð og 48 áhyggju-
lausir dagar liðu þar til að því
óumflýjanlega kom, er allir
diskarnir í skápum minum voru
horfnir, bæði þeir djúpu og
þeir grunnu, og ég varð að
borða steiktu eggin mín þrjú og
Stjörnuspá
llnilurinn 2l.m;irs 20.jifiril
Lífiö í kringum þig er
deyföarlegt um þessar
mundir og þaðer
ekki síst þínu eigin sleni
að kenna. Hristu það af
þér og gerðu eitthvað
sérlega skemmtilegt um
helgina, eitthvað sem
þig hefur lengi langað
til að framkvæma.
>«»iiiii 21. sc|vi. 2.V<ikl.
Vertu ósmeykur við að
notfæra þér þekkingu á
einhverju máli til þess
að leiða það farsællega
til lykta. Forðastu þó að
sýna öðrum vanþóknun,
fólk hefur rétt á að hafa
sínar skoðanir þó þær
séu ekki byggðar á
sérfræðiþekkingu.
Naulið 2l.;ipríl 2l.maí
Einhver þér nákominn
þarfnast aðstoðar þinnar
en leitar hennar ekki.
Reyndu að komast að
því hvernig i málum
liggur og láta lita svo út
sem þú eigir fruni
kvæðið. Farðu sérlega
varlega ef um eldra fólk
er að ræða.
Sporðilrckinn 24.ukl. 2.Vnó%.
Notaðu tækifæri til að
koma ýmsum smá
málum i lag. Hringdu
eða skrifaðu vinum eða
ættingjum sem hafa
lengi beðið eftir að
heyra frá þér. Rólegar
stundir með góðum
félögum eru góð
afþreying.
1\ihurarnir 22.mai 2l.júni
Þú gerir þér stundum
undarlegar hugmyndir
um sjálfan þig. Veltu þvi
fyrir þér hvort leiðinleg
framkoma einhvers i
þinn garð að undan-
förnu kann að vera að
einhverju leyti þér að
kenna.
Hoijiiiaöiirinn 2l.no\. 2l.dcs
Taktu orð annarra ekki
of nærri þér og reyndu
að standa að sem mestu
leyti utan við deilumál
sem er i uppsiglingu.
Beittu kimnigáfunni i
samskiptum við
manneskju sem á það
til að vera býsna upp-
stökk og skapheit.
kr;'.hhínn 22. jiim 2.1. julí
Reyndu ekki að brydda
upp á neinum nýjung-
um þessa vikuna þar
sem ólíklegt er að þær
kunni að blessast. Farðu
þér hægt, sérstaklega ef
þú stendur í meiri
háttar viðskiptum.
Helgina er best að nota
til hvildar.
Slcingcitin 22. dcs. 20. jan.
Þér finnst oft sem þú
sért ekki metinn að
verðleikum. Raunin er
sú að þeir sem þig
þekkja meta þig mjög
mikils en hlédræg og
jafnvel fráhrindandi
framkoma þín gerir það
að verkum að þeir láta
það ekki í ljósi.
I.jónid 24.júli 24. :igú«l
Vanhugsaðar og
fljótfærnislegar ákvarð-
anir koma þér í koll.
Bættu úr eins vel og þú
getur. Ekki er vist að
það breyti miklu en
gerir samt sitt gagn.
Varastu alla tilfinninga-
semi.
Vatnshcrinn 2l.jan. lú.fchi.
Einhver sem þú
umgengst tnikið en
þekkir litið kemur þér
þægilega á óvart.
Reyndu að sýna
viðkomandi að þú
kunnir að meta það sem
vel er gert.
Glens og gaman lifgar
upp á tilveruna.
Þeir sem umgangast þig
eru fyrir löngu hættir
að kippa sér upp við
furðuleg uppátæki þin.
Skemmtilegir atburðir
setja svip sinn á vikuna
og verða enn ánægju-
j legri ef þú færð gamla
’ vini til liðs við þig.
Kiskarnir 20.fcbr. 20.mars
Einhverjir erfiðleikar
reyna mjög á þolrifin.
Taktu á honum stóra
þínum og skjóttu engu á
frest. Illu er best aflokið
og að þessu afstöðnu
skaltu hvíla þig vel og
lengi.
38 Vikan 24. tbl.