Vikan - 11.06.1981, Side 40
Texti: Guðfinna Eydal
Flestum l'innst þad vera talsverður við-
burður þegar von er á einu barni í fjöl-
skyldu og fæstir hugsa um þann mögu-
leika að barnið sem von er á geti allt í
einu orðið að tveim börnum. Allt um
það á þetta við um flesta foreldra sem
ekki þekkja til þess að tvíburar séu i fjöl-
skyldu þeirra. Algengt er að foreldrar
sem fá að vita að von er á tvíburum
verði fyrir skammtíma áfalli og finni á
sama tima fyrir gleði og vonbrigðum.
Gleðin kemur oft til af því að það er
eitthvað ólýsanlega heillandi og sérstakt
við að eignast tvö börn I einu. —
Vonbrigðin tengjast gjarnan ýmsum
áhyggjum i sambandi við þá erfiðleika
sem fólk veit að koma upp þegar á að
annast um tvö börn I staðinn fyrir eitt.
Víða erlendis hafa tvíburaforeldrar
kvartað yfir þvi að engar upplýsingar sé
að fá um tvíbura innan um allt það
fræðsluefni sem foreldrum annars býðst.
Tvíbura sé yfirleitt alls ekki getið, en ef
minnst sé á þá sé það með srnáu letri eöa
neðanmáls. Þó að ekki sé völ á miklu
fræðsluefni fyrir íslenska foreldra má
segja að I því litla sem til er fái tvíburar
ekki einu sinni að vera með neðanmáls
né með smáu letri. Tvíburar hafa hins
vegar alltaf heillað mannkynið. Biblían
segir frá tvíburum, skýrt er frá tvíburum
I rómverskum og griskum sögum og eins
og allir muna áttu tvíburarnir Rómúlus
og Remus að hafa stornð Róm.
Tvíbura er einnig að finna í fornsögum
og sérstakt stjörnumerki er helgað tví-
buruni.
Hvað eru tvíburar?
Það er hægt að eignast eineggja eða
tvíeggja tvíbura. Þegar um eineggja tví-
bura er að ræða frjóvgar sæðisfruman
eitt egg. Eggið skiptir sér í tvo helminga
og hafa þeir sömu erfðaeiginleika.
Eineggja tvíburar eru því alltaf
samkynja og hafa mjög líkt útlit. Þeir
hafa eins hár, eins augnalit. sömu
likamsbyggingu og sama blóðflokk.
Fjöldi eineggja tvibura er næstum þvi sá
sami um allan heiminn og er talað um að
miðað við 1000 fæðingar séu 3-4
fæðingar eineggja tvibura. Það er ekki
vitað hvort erfðir eða aldur móður hefur
áhrif á tilurð eineggja tvíbura og það er
ekki heldur vitað af hverju eggið skiptir
sér I tvennt.
Þegar um tvíeggja tvíbura er að ræða
frjóvga tvær sæðisfrumur tvö egg.
Tvieggja tvíburar hafa því mismunandi
erfðaeiginleika og eru ekki likari en syst-
kini almennt. Þeir geta þar af leiðandi
annaðhvort verið samkynja eða sinn af
hvoru kyni. Það er vitað að erfðir valda
því að sumar konur losa fleiri en eitt egg
við egglos. Það þýðir að ef kona er sjálf
tviburi, eða á tvíbura fyrir nákomna
ættingja I kvenlegg, aukast
líkur á að hún eignist tvíbura. Með
aldrinum eru einnig meiri likur til þess
að fleiri en eitt egg losni við egglos og
eykur það einnig likurnar á að eignast
tvíeggja tvibura. Ef kona hefur fengið
hormónameðhöndlun við barnleysi er
algengt að hún geti eignast tvíbura.
þribura eða jafnvel meira. Tiðni tvíeggja
tvíbura er talsvert breytileg eftir
löndum, en tíðni eineggja tvibura er
næstum sú sania alls staðar. eins og fyrr
greinir.
Unnið hefur verið að því víða erlendis
að safna upplýsingum um tvíbura fyrir
foreldra, og verður drepið á nokkur
atriði i því sambandi.
Uppeldi tvíbura
Það er erfiðara að verða sjálfstæður
40 Vikan 24. tbl.