Vikan - 28.10.1982, Blaðsíða 10
Hljómborðsleikarinn
hefur vanalega einn
pólifónískan hljóðgervil,
strengjavél og/eða pianó en
hefur annars gífurlegt úrval
afhvers konar hljómborðum
að velja úr þegar hann
kaupir sór hljóðfæri. Hann
notar stundum ýmsa
effekta, svipað og gítar-
leikarinn, og notar jafnvel
síkvensera. Tæki sín tengir
hann oft i sérstakan hljóm-
borðsmagnara, sem síðan er
settur i söngkerfi gegnum
hljóðnema, eða þá að þau
eru tengd beint inn í söng-
kerfið.
Hljómborðsleikur hefur
orðið áberandi á ný /
rokktónlist með tílkomu sk.
nýrómantískrar tónlistar.
Hljómborðin eru notuð eins
og strengir eða blásturs-
Trommuleikarinn
hefur sitt trommusett sem
lýst var i upphafi. Venjulega
eru settir hljóðnemar við
settið og þeir tengdir söng-
kerfinu. Ýmsar hljómsveitir
nota nú trommuheila ýmist
.með trommusetti eða
eingöngu. Þykir sjónarsvipt-
ir að glæsilegu trommusett-
inu á sviðinu.
Trommuleikur i rokk-
tónlist hefur breyst eins
og gítar- og bassaleikur. Það
var í diskótónlist sem fyrst
komu fram þær hörðu og
vélrænu áherslur á sneril- og
bassatrommuslög sem nú
eru áberandi. Liggur við að
oft heyrist ekki annað
frá trommuleikaranum.
Trommusóló eru nú mjög fá-
UNN-trommuheiU.
tíð en í stað þess er reynt að
láta trommuleikinn ganga
upp / heildarhljómnum eins
og hin hljóðfærin. Dæmi-
gerðir trommuleikarar nú-
tímans eru UNN-trommu-
heilinn hjá Human League
og trommuleikarinn /
Deutsche Amerikanische
Freundschaft.
H/jóðblöndunarborð.
hljóðfæri til að skreyta
kökuna, og einnig nokkuð
sem rythmahljóðfæri. Þau
eru oft notuð á mjög
fjölbreyttan hátt, enda hafa
hljóðgervlar ótakmarkaða
möguleika eins og áður er
lýst. Góð dæmi um
hljómborðsleik má heyra hjá
Japan og Duran Duran.
Human League og Soft Cell
nota eingöngu hljóðgervla í
sinni tónlist.
Söngvarinn
er auðvitað andlit hljóm-
sveitarinnar. Hann hefur jú
sitt náttúrlega hljóðfæri,
röddina, sem oft fær
ýmiskonar meðferð, er sett
í bergmálstæki eða annað.
Söngvarinn notar söng-
kerfið meira en aðrir með-
limir þvi hann syngur
alltaf i gegnum það þarsem
hinir þurfa oft ekki að nota
nema magnarana sína. Sér-
staklega á það við um
hljómleika í litíum sölum.
Söngkerfið
er mjög mikilvægt. Það er
samsett úr þremur hlutum:
10 Vikan 43. tbl.