Vikan - 28.10.1982, Blaðsíða 44
Ertu of indæl mannvera?
Á yfirborðinu er kannski hægt
að segja að tímamir séu tímar
einstaklingshyggju og eigingirni
og efnishyggjan sé að ná tökum á
okkur. En undir þessu yfirborði er
talsvert mikið af umhyggju og
alúð. Sumir eru sjálfsagt indælli
en aðrir. Sumir eru jafnvel of
indælir, svo indælir aö vinir og
ættingjar ganga ósjálfrátt á lagið.
Aðrir gætu á hinn bóginn að skað-
lausu veriö ljúfari í sér. Þeir vilja
frekar taka en gefa í lífinu. Við
höldum reyndar ekki að þú sért
einn af þeim. En ef þú ert það
samt þá mun þessi spurningalisti
afhjúpa þig heiðarlega og af-
dráttarlaust. Eins kemst upp um
þig ef þú ert of indæl mannvera.
Vertu fullkomlega heiðarlegur í
svörum þínum. Þú átt þetta bara
við þig sjálfan.
1. Ef vinur þinn eða ættingi gerir
eitthvað sem er mjög heimsku-
legt....
a) finnurðu þá til með honum ?
b) veröurðu gramur viðkom-
andi?
c) hefurðu samúð með þeim sem
íhlutá?
2. Þú deilir við náinn vin. Þér
finnst eftir á að þú hafir haft á
öldungis réttu að standa. Ertu. . .
a) samt tilbúinn að biðja hann
afsökunar?
b) að bíða eftir að vinurinn biöjist
afsökunar fyrst?
c) sárargur þar til viðkomandi
hefur beðist velviröingar?
3. Ef þessi sami vinur væri lagður
á sjúkrahús áður en þið eruð
orðnir sáttir myndir þú þá....
a) komastraxíheimsókn?
b) senda blóm eða kort: Góðan
bata?
c) ekki gera neitt sérstakt?
4. Hvað finnst þér um þessa
athugasemd: Það er eitthvað gott
í okkur öllum?
a) Ertuhjartanlegasammála?
b) Ertu sammála en þó með efa-
semdir?
c) Ertuósammála?
5. Þú ert að flýta þér eftir götimni
og hefur mikið að gera, alveg að
verða of seinn í vinmma eða eitt-
hvað annað mikilvægt. Barn
dettur og meiðir sig og fer að
gráta. Hvað gerir þú?
a) Nemurðu staðar og hjálpar
barninu?
b) Heldurðuáfram?
c) Fer það eftir kringumstæðum ?
6. Þú ert á stórmarkaði og ert
kominn með vagninn að kassan-
um. Gömul kona sem er fyrir
framan þig — og þú þekkir ekki
neitt — kemst að raun um að hún
er ekki með nóg af peningum á
sér. Hvað gerir þú?
a) Lánar henni peninga
b) Gefur henni peninga
c) Lætur málið afskiptalaust
7. Þú finnur í garðinum þínum
lítinn hvolp eða kettling sem
greinilega er týndur. Hann er
magur og ræfUslegur að sjá. Hvað
gerir þú?
a) Ekkert og vonar að hann fari
b) Flæmir hann burt
c) Hleypir honum inn og gefur
honum mjólk og mat
8. Þú ert úti á gangi og gengur
fram á mann sem er að aga hund.
í hvert sinn sem hundurinn gerir '
eitthvað vitlaust lemur maðurinn
hann með staf. Hvað gerir þú?
a) Skiptir þér ekki af því af því að
það kemur þér ekkert við
b) Blandar þér í málið, ofur var-
lega
c) Verður öskuillur og skiptir þér
af málinu
9. Finnst þér sælla að gefa en
þiggja?
a) Stundum
b) Alltaf
c) Nei
10. Þegar þú ert að kaupa gjafir
handa öðrum, leitarðu þá að...
a) einhverju ódýru?
b) einhverju sem er sérstaklega
viðhæfi?
c) hvorugu fyrrnefndu?
11. Gefurðu peninga til styrktar
góðu málefni?
a) Mj ög oft og háar upphæöir
b) Kaupir happdrættismiða og
merki þegar þú átt peninga
c) Finnst nógu gott málefni að
styrkja eigin f járhag og heimili
12. Þú ert á veitingahúsi þar sem
þjónustufólkið hefur hræðilega
mikið að gera og sýnist að því
komið að gefast upp. Einhver úr
hópi þess missir súpu niður á þig.
Hvað gerir þú?
a) Kvartar viö yfirþjóninn
b) Setur ofan í við viðkomandi
c) Segir viðkomandi aö þetta sé
alls ekki honum aö kenna
44 Vikan 43. tbl.