Vikan - 28.10.1982, Blaðsíða 62
Hvernig fæst
Loboplata?
Kæri Póstur.
Ég er aUieg voöalega for-
vitin að fá að vita eftirfar-
andi: Getur þú nokkuð gefið
mér upplýsingar um LOBO
(það er maður sem ég held að
kalli sig þessu nafni frekar
en hann heiti því). Það eina
sem ég veit er að hann er
Bandaríkjamaður og var
þekktastur fyrir lagið sitt,
I’d Love You to Want Me, og
hefur gefið út eina stóra
plötu sem heitir Best of
Lobo. Ég átti þessa plötu
einu sinni en missti hana í
húsbruna. Ég sé alveg ofsa-
lega eftir þeirri plötu enda
virðist hún vera ófáanleg hér
á landi, ég er margbúin að
reyna að fá hana pantaða.
Ég man að þessi plata sem
ég átti var gefin út hjá
hljómplötufyrirtœkinu Phi-
lips. Eina ráðið sem ég eygi í
þessu er því að skrifa
þessum manni og mér þœtti
afar vœnt um ef þið gætuð
haft uppi á heimilisfanginu
hans, hvar sem hann er, ef
hann er á lífi. Lögin sem eru
á þessari toppplötu hans eru
I’d Love You to Want Me,
Ring Ring, Me and you and
a Dog Name Boo og Stand at
the End of the Line. Þetta
eru lögin sem ég man eftir en
þau eru auðvitað fleiri. Með
fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna.
Einn Lobo-aðdáandi.
Lobo þessi sem þú átt við
var vinsæll mjög hér fyrir
nokkrum árum. Því miöur
verð ég að hryggja þig með
því að platan er ófáanleg
bæði í Bretlandi og Hol-
landi þar sem Philips fyrir-
tækið hefur höfuðstöðvar
sínar og hefur svo verið
síðan 1977. Hins vegar er
hugsanlegt að þú gætir
fengið plötuna í Bandaríkj-
unum þar sem hún er enn á
skrá. Plötunúmerið er BIG
89513. Hið eina sem Póstur-
inn getur hjálpað þér með
er að benda þér á að skrifa
Phonogram International
(núverandi eigendur
Philips plötuútgáfunnar) í
Hollandi. Heimilisfangið er
sem hér segir:
Phonogram International
B. V. P. O. Box 23
AA 3740 AA Baarn
The Nederlands
Einnig lætur Pósturinn
sér detta í hug að spyrja
lesendur hvort þeir eigi
nokkuð þessa plötu í fórum
sínum og séu tilbúnir að
selja hana. Geta þeir þá
sett sig í samband við
Póstinn bréfleiðis.
Birtast allir
draumar í
blaðinu?
Hœ, hæ, elsku besti
Póstur.
Eg er hér með tvœr spurn-
ingar sem ég vona að þú
svarir.
Fyrri spurningin er svona:
Birtast allar draumaráðn-
ingar? Og sú seinni: Birtast
allar pennavinaóskir ?
Svo datt mér í hug
hvernig vœri að birta alltaf
utanáskrift Póstsins á
Póstsopnunni. Ég held að
það vœri snjallt.
Og svo máttu skila því að
merkin á Vikuplakötunum
eru allt ofstór.
Ein afskiptasöm.
Ekki birtast allir
draumar sem blaðinu
berast vegna þess að þeir
eru miklu fleiri en rúm er
fyrir. Hins vegar reynir
blaðið að birta allar penna-
vinaóskir. Þær eru svo
gífurlega margar að löng
bið er eftir því að nafnið
birtist í blaðinu.
Utanáskrift Póstsins:
Pósturinn Vikunni
pósthólf 533
121 Reykjavík.
Þetta með merkin hefur
þegar verið tekið til
jákvæðrar athugunar.
Heillaráð við
bólum frá
lesanda
Kæri Póstur.
Ég er áskrifandi að
Vikunni og les hvert einasta
blað sem kemur út, meðal
annars les ég alltaf Póstinn.
Að undanförnu hafa
margir beðið þig, ágœti
Póstur, um ráðleggingar við
bólum (unglingabólum). Mér
datt í hug að gefa lesendum
þessum nokkrar ráðlegg-
ingar um bólur, svona smá-
uppbót á það sem þú hefur
sagt um þetta mál.
Til lesendanna:
Þvoið andlitið alltaf vel,
LUKKUPLATAN
Þetta hárprúða rokkmenni hugö-
ist heimsækja okkur fyrir nokkru i
tilefni af útkomu nýrrar plötu sinn-
ar, Magic. Hann sótti ísland heim
fyrir nokkrum árum með hljómsveit
sinni sem þá var Deep Purple. Hvað
heitir maðurinn?
Maðurinn heitir:-----------------------------------
Smndmndi mr: _____________________________
timimitt
i iMimr -
Póatnúmmr_____________________Póststöð_____________
Utanáakrlftln er: VIKAN, lukkuplatan '82-43
PÓSTHÓLF 533,101 REYKJAVÍK.
Lukkuplatan
Vinningshafar '82—37
Á myndinni var lagasmiðurinn og söngkonan Bergþóra Árna-
dóttir.
Ágústa A. Valdimarsdóttir, Orrahólum 7,109 Reykjavik.
Guðbjörg Vignisdóttir Boðagerði 10, 670 Kópaskeri.
Finnur Baldursson, Lynghrauni 5, 660 Reykjahlíð.
62 Vikan 43- tbl.