Vikan - 28.10.1982, Blaðsíða 5
Nú nýverið var tekið í
notkun glæsilegt húsnæði á
götuhæð Suðurlands-
brautar 2, Hótel Esju. Þar
eru til húsa þjónustufyrir-
tæki og verslanir, þar á
meðal snyrtistofan Sól og
snyrting og hárgreiðslu-
stofan Hjá Dúdda og
Matta. — Þessar stofur
vinna undir kjörorðinu
„Aðlaðandi er fólkið
ánægt" og er þar bæði átt
við kvenfólk og karlmenn.
Húsnæðið er allt hið glæsi-
legasta, eins og sést á
meðfylgjandi myndum sem
teknar voru í snyrtistofunni
Sól og snyrting. öll aðstaða
þar er til mikillar fyrir-
myndar og veitir snyrti-
stofan alla nauðsynlega
þjónustu, ásamt því að vera
með sólarlampa og sturtur
fyrir þá sem vilja halda við
brúna litnum yfir vetrar-
tímann.
Það eru snyrtisérfræð-
ingarnir Erla Gunnarsdóttir
og Ólöf Wessman sem reka
snyrtistofuna og halda þær
reglulega námskeið þar
sem kennd er öll meðferð
húðarinnar og snyrting.
Þær snyrtu Heiðdísi Þor-
bjarnardóttur fyrir VIKUNA
og sýna hér þá litasamsetn-
ingu sem á eftir að verða
mjög vinsæl í vetur. Hár-
greiðslan er unnin Hjá
Dúdda og Matta og er
stutta línan þar í algleym-
ingi.
Snyrtivörurnar sem eru
notaðar eru frá enska fyrir-
tækinu Boots og fást
á snyrtistofunni. Höfuð-
áhersla er lögð á silfur-
grátt, brúnt og svart og
augnumgjörðin gerð áber-
andi. Kinnalitur er bleikur,
varaliturinn rauðbleikur og
naglalakkið rauðbleikt í stíl.
Hárið er klippt í styttur,
mjög stutt ofan á hvirflin-
um, en hnakkahárin höfð
síðari. Settar voru strípur
fremst í toppinn. Hárið var
síðan þurrkað og lagað til
með „jellí" sem hægt er að
kaupa á hárgreiðslustof-
unni. Blússan og slaufan
eru frá Hjá Báru.
43. tbl. Vikan 5