Vikan - 28.10.1982, Blaðsíða 51
Qraumar
Eigið barn og
annarrar konu
Kæri draumráðandil
Mig dreymdi fyrir
skömmu draum sem mig
langar að fá ráðningu á.
Hann var svolítið óljós í
fyrstu.
Hér kemur draumurinn:
Mér fannst ég vera með
skrák á föstu. (Hann kom
aldrei fram í draumnum.)
Þessi strákur hafði verið
með giftri konu hér, sem
við skulum kalla X, og hún
orðið ófrísk. Þessi kona
kemur til mín og biður mig
að taka við barninu þegar
það sé fætt, en biður mig
að láta manninn sinn ekk-
ert vita af þessu. Við skul-
um kalla hann Z. Svo veit
ég ekkert fyrr en ég er búin
að fá barnið sem var strák-
ur. Hann liggur í vöggu og
ég veit ekkert hvernig ég á
að fara með hann, stend
bara og horfi á hann og tala
um hvað hann sé fallegur.
Barnið var hvítklætt og allt
hvítt í kringum það. Svo
veit ég ekki fyrr en ég er
komin út í búð og er að
kaupa barnaföt, öll hvít, og
barnapela, en frænka mín
átti að vera að hjálpa mér
(köllum hana D). Svo er
eins og draumurínn hætti
þama. En svo byrjar hann
aftur á því að ég kem inn
heima og er grátandi. Fólk-
ið heima reynir að fá upp
úr mér hvað sé að. Loks læt
ég undan og segist vera
ófrísk, komin 7 mánuði á
leið og það versta að það
var eftir strák sem við skul-
um kalla O og mér var
mjög illa við.
Með fyrírfram þakklæti
fyrír birtingu.
Ein fáfróð um drauma.
Fyrri draumurinn bendir
til þess að þér muni falið
eitthvert vandasamt verk-
efni og munir leysa það vel
af hendi og jafnvel svo að
þig hendi eitthvert happ í
framhaldi af því. Seinni
draumurinn er fyrir ein-
hverju mjög góðu (grátur-
inn) en jafnframt ættir þú
að vara þig á að vera ekki
of leiðitöm, það veldur þér
svo sem engu illu en þú
mættir vera sjálfstæðari.
Blóð
Kærí draumráðandil
Viltu gjöra svo vel að
ráða fyrír mig draum sem
mig dreymdi fyrír stuttu.
Hann ersvona:
Mig dreymdi að ég og
maður, X., værum inni í
þvottahúsi heima hjá mér
og þá segir hann allt í einu:
,, Það er miklu kaldara hér
og meira drasl en var
áður. ' ’ Ég segi þá: , ,Já,
mamma nennir aldrei að
taka til nú orðið. '' Varð svo
ekkert meira úr því og ég
labba inn í hjónaherbergi
og þá liggur mamma þar í
rúminu og grætur og engist
sundur og saman. Þá segi
ég: ,,Mamma, hvað er að
þér? ” ,,0, það er svo vont
að vera svona sveittur, ”
segir hún. Þá fer hún að
æla blóði og mér líst ekkert
á blikuna og tek ofan af
henni sængina og sé að hún
er ekkert nema blóð.
Lengrí varð þessi draumur
ekki, en hann var mjög skýr
og ég hef mjög mikinn
áhuga á að vita hvað hann
merkir.
Með fyrírfram þökk,
H.
Draumurinn bendir til
þess að með þér verði
vaktar falskar vonir um
ávinning, gróða og þægi-
legt líf, en ef þú varar þig
ekki gæti dæmið hæglega
snúist svo að þú yrðir fyrir
verulegum svikum eða
tjóni. Hætt er við að þú
missir vin vegna þessa, en
þú getur verið gætin og
staðist varasamar freist-
ingar. Grátur mömmu
þinnar er góðs viti og
bendir til þess að hún
muni ef til vill hafa hönd í
bagga með þér ef þú leitar
til hennar. En þú þarft
ekkert að vera hrædd um
að draumurinn boði
mömmu þinni neinn
miska. Samkvæmt hefð-
bundnum draumráðning-
um er draumurinn fyrir allt
öðru, sem sagt því sem að
ofan greinir.
Skop
43- tbl. Vlkan 51