Vikan - 28.10.1982, Blaðsíða 43
Umsjón: Þórey
Penguin og Mystery To Me, einnig
á endurútgáfu Albatross. Lagið
komst í 2. sæti breska vinsældalist-
ans en með því má segja að Fleet-
wood Mac sé úr sögunni á þeim
vettvangi í bili.
Enn urðu mannabreytingar í
Fleetwood Mac 1973. Weston og
Waler héldu leiðar sinnar. Um
tíma lagðist hljómsveitin niður.
Umboðsmaður hennar gaf annarri
hljómsveit leyfi til þess að bera
nafnið og upp úr því urðu mikil
málaferli. Það var ekki fyrr en
seint á árinu 1974 að Fleetwood
Mac tók aftur til starfa og sendi
frá sér nýja plötu, Heroes Are
Hard To Find, sem komst á blað.
Enn urðu sviptingar 1975. Bob
Welch hætti og til sögunnar komu
þá hjónin Stevie Nicks og Lindsey
Buckingham. Loks ríkti jafnvægi í
liðsskipan sveitarinnar, valinn
maður í hverju rúmi og hæfileikar
hvers og eins nutu sín til fullnustu.
Það fór ekki hjá því að breiðskífan
Fleetwood Mac, sem kom út 1975,
næði miklum vinsældum. Vinsæld-
imar hafa síður en svo farið
þverrandi. Plötumar Rumours
(1977), Tusk (1979), Fleetwood
Mac Live (1980) og nú Mirage hafa
allar verið miklar metsöluplötur.
Fleetwood Mac hefur þannig
staöið af sér öll veður en það má
ekki gleymast að Fleetwood Mac
nú er allt önnur hljómsveit en
fyrir rúmum áratug. Hljómsveitin
er nú mjög bandarísk og minnir
um margt á mjúkarokkhljóm-
sveitir síð-hippatímabilsins, enda
teljast þau Nicks og Buckingham
til þeirrar kynslóöar sem þá
blómstraði.
Konumar hafa stóru hlutverki
að gegna í hljómsveitinni. Raddir
þeirra, einkum Stevie, setja sterk-
an svip á tónlist hljómsveitarinn-
ar og þær semja mikið af tónlist-
inni.
Bæöi hjónaböndin innan Fleet-
wood Mac hafa endað með skiln-
aði. Það hefur aö vissu leyti skap-
að meiri spennu en að öðru leyti
aukið á virðingu hljómsveitar-
manna hvers fyrir öðrum.
Margsinnis hefur endalokum
Fleetwood Mac verið spáð. Sóló-
plötur Mick Fleetwood (The Visi-
tor), Stevie Nicks (Bella Donna)
og Lindsey Buckingham (Law
And Order) hafa ýtt undir þetta en
Fleetwood Mac-menn hafa jafnan
neitað þessum orðrómi. 1 stað
þess að sundra hljómsveitinni
hefur einstaklingsframtakið innan
hennar styrkt heildina. Meðlim-
imir hafa hver í sínu lagi tækifæri
til þess að spreyta sig án afskipta
og aðstoðar hinna. Þegar hljóm-
sveitin kemur síðan saman í heild
eru liðsmenn afslappaðir og betur
undir það búnir að starfa saman á
ný. Mirage var tekin upp í Herou-
ville í Frakklandi þar sem hljóm-
sveitarmenn dvöldu saman í fimm
vikur. Eftir þaö sneri hljómsveitin
til Bandaríkjanna og hélt hljóðrit-
unum áfram í tveimur stúdíóum í
Los Angeles. Heildarupptökutím-
inn var tíu mánuðir. Lögin á plöt-
unni eru eftir Christine McVie (til
dæmis Hold Me, Only Over You),
Stevie Nicks (Gypsy) og Lindsay
Buckingham (Book Of Love, Oh
Diane).
Mirage hefur þegar selst í
milljónaupplögum og því liggur
ljóst fyrir aö margir kunna aö
meta tónlistina. Platan er fag-
mannlega og vandvirknislega
unnin. Tónlistin er hvorki sérlega
fersk né frumleg en er að sínu
leyti eitthvað það besta sem
bandarísk mjúkarokktónlist getur
státaö af um þessar mundir.
MNHBMNHHNHHaMaaMHBMW
Bob Welch gekk þá til liðs við
Fleetwood Mac og Peter Green
rétti félögum sínum hjálparhönd
við að standa við skuldbindingar í
Bandaríkjaferöinni.
Bob Welch er áberandi á Future
Games og með honum hafði
hljómsveitin fengið nægilega
bandarískt yfirbragð til þess að
ganga í þarlenda. Jafnharðan og
hljómsveitin óx í áliti í Bandaríkj-
unum féll hún í Bretlandi. Á næstu
breiðskífu, Bare Trees (1972),
voru sömu menn. Danny Kirwan
var þá látinn víkja fyrir tveimur
Bandaríkjamönnum.Bob Weston
og Dave Walker, síðla árs 1972. Þá
má heyra á breiðskífunum
43. tbl. Vlkan 43