Vikan - 10.02.1983, Side 3
Brostu í kampinn!
Bjössi bolla var kominn í heim-
sókn í gamla hverfið sitt. Hann
hitti gamlan vin sinn, Tomma
tjakk, fyrir framan skólann og
spurði hann hvernig hann hefði
þaö:
— Ferlegt, sagði Tommi. Ég
fékk lungnabólgu, giktarkast,
hálskirtlabólgu og botnlangakast!
Bjössa dauðbrá: — Þú drepst nú
úr þessu!
— Já, það segirðu satt, sagði
Tommi hugsi. — Pabbi drepur
mig ef ég hef skrifað eitthvaö af
þessu vitlaust á stafsetningar-
prófinu.
Halli: Mamma vann hvolp í
bingói!
Lalli: Þetta kallar maður hunda-
heppni!
Halli: Ég vildi gjarnan taka skip
til Englands.
Lalli: Eg held að ég vildi nú
heldur taka ferðatösku.
Bubbi: Fékkstu þér morgunverð í
morgun?
Bubba: Auðvitað. Ef ég hefði
fengið mér hann í hádeginu hefði
hann verið hádegismatur.
Fyrstimaður: Eg er svo svangur
að éggæti étiðhest!
Annarmaður: Égersvo svangur
aöég gæti étiðfíl!
Þriðji maður: Ég er svo svangur
aö ég gæti étið flóðhest!
Kona: Ég er búin að missa
matarlystina.
Spakmæli Vikunnar:
Það er enginn vandi að sætta sig við fæðinguna og dauð-
ann. Það er bara þetta sem gerist í millitíðinni sem er svo-
lítið tæpt.
Bómullarbolur-barnaföt
Ef þið eigið einhvers staðar liggjandi þykkan bol
(sweatshirt) sem þið eruð hætt að nota, en er þó heill, má
sauma úr honum snotrustu barnaföt. Bolurinn þarf að vísu
að vera í stærra lagi en á teikningunni má sjá hvernig barna-
fötin eru sniðin upp úr bolnum. Setjið teygju í mitti og erm-
ar. Klippið efnisræmu, rykkið og saumið í hálsinn ef vill.
Prinsinn
og
teikningin
Fyrir um ári velti breskt timarit
þvi fyrir sér hvernig hið þá ófædda
barn Karls og Diönu kæmi til með
að lita út. Forsendurnar sem blaðið
gaf sér voru útlit foreldranna sem
barna og sérfræðilegt álit erfða-
fræðings. Blaðið lét teikna hug-
myndina og teiknarinn hefur senni-
lega gert ráð fyrir að barnið yrði
stúlka. Teikningin er af barninu sex
mánaða og meðfylgjandi myndir af
litla prinsinum eru frá þvi skömmu
fyrir jól en þá var hann einmitt sex
mánaða. Spádómsgáfa sérfræðing-
anna og teiknarans eru i betra lagi
, þvi myndin er hreint ekki svo ólik
prinsinum að frátöldu krullaða
hárinu, eða hvað finnst lesendum?
—
Mest um fólk
— Hún er eins og Venus í laginu
— það er að segja plánetan.
Það er auðvelt að skipta fólki í
hópa: Það greinda, það fallega og
allt hitt.
— Hvort hann sé ljótur? Jú, svo
sannarlega. Hann er hér um bil
eins og myndin í passanum hans!
6. tbl. Vikana