Vikan


Vikan - 10.02.1983, Síða 9

Vikan - 10.02.1983, Síða 9
ímubúningar í tilefni föstubyrjunar hafa menn uppi hvars kyns sprell á götum úti i löndum þar sem kaþólskir búa. Kjötkveðjuhátíðin í Rio de Janero i Brasilíu er sú frægasta. Þar virðist hugmyndaflugi fólks engin takmörk sett og allir kappkosta að hafa bún- inga sina sem glæsilegasta. Á Vesturlöndum hafa grimuböll tiðkast um aldir og hérlendis sem og víðar i Norður-Evrópu tengja menn grimuböllin föstubyrjun og halda þau i námunda við öskudag- inn. Sums staðar á landinu fara börn- in grímuklædd í skrúðgöngu (ef veður leyfir) og slá köttinn úr tunn- unni. Á barnaheimilum og leikskól- um mega börnin mæta grimuklædd á öskudag og er þá oft líf í tuskun- um. Grímubúningar barnanna þurfa ekki að vera flóknir og iburðarmikl- ir til að gera sitt gagn og gaman. Hér á opnunni má sjá hugmyndir að einföldum búningum sem búnir eru að mestu til úr gömlum fötum og efnisbútum. Hægt er að búa þessa búninga til með litlum fyrirvara. Andlitsmálningin setur punktinn yfir i-ið. Leyfið hugarfluginu að njóta sin. Andlitslitir sem óhætt er að mála börnin með fást tilbúnir i versluninni Pennanum i Reykjavik. Þeir eru í blýantsformi og kosta fimm saman 46,85 kr. og átta 86,90 kr. Einnig fæst hvitur og brúnn litur til að mála allt andlitið, i dósum, á 103 kr. dósin. En það er lika hægt að búa sér til sina eigin andlitsliti. Þá eru notaðir venjulegir þekjulitir og þeir hrærðir saman við vaselín þar til rétt áferð fæst, eða duft-litir hrærðir saman við barnaoliu. Gætið þess að litirnir séu skaðlausir, það er ef stendur ,,non-toxic" á um- búðunum. Duft og þekjulitir fást i Skólavörubúðinni. Notið finan pensil til að mála með. Á stuttum tima má breyta litl- um snáða eða snót í glaðbeittan trúð, stríðsmálaðan indiána eða svertingja, leðurblökumanninn, kóngulóarmanninn eða hvað þau heita nú öll ofurmennin. Hægt er að mála veiðihár og trýni, freknur, skegg og hvað annað sem ykkur dettur i hug.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.